|
|
|
 |
Nýtt á www.bordtennis.is |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
 |
Hafðu samband |
|
|
|
|
|
| z |
|
|
|
|
|
27. júlí 2010
Kári Mímisson sigraði í -18 ára flokki á bandarísku borðtennismóti
Kári Mímisson borðtennismaður úr KR tók þátt í Lake Superior International Open mótinu í borðtennis í Duluth í Minnesota í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Kári náði ágætum árangri á mótinu. Hann sigraði í flokki unglinga 18 ára og yngri og komst í 8 manna úrslit í opnum flokki karla.
Að auki vann Kári Killerspin borðtennisborð í keppni en borðið fer til borðtennisklúbbs á svæðinu.
Thor Truelson, sem sigraði á afmælismóti Borðtennisdeildar KR í nóvember sl. tók einnig þátt í mótinu. Hann komst líka í 8 manna úrslit og sigraði i stigaflokki undir 2400 stigum, en styrkleikastigin í Bandaríkjunum eru ekki ósvipuð þeim sem eru notuð á Íslandi.
ÁMU
|
|
|
|
26. júlí 2010
Úrslit úr einstaklingsgreinum á Evrópumeistaramóti unglinga
Evrópumeistaramóti unglinga í borðtennis lauk í Istanbúl í Tyrklandi í gær. Rúmenía vann flesta titla á mótinu eða 6 talsins, en Frakkland vann flest verðlaun allra landa, 12 alls. Danmörk, Holland, Þýskaland og Ítalía eignuðust einnig meistara á mótinu.
Bernadette Szocs frá Rúmeníu vann þrenn gullverðlaun í meyjaflokki og Irina Ciobanu tvenn, og Christina Hirici frá Rúmeníu varð tvöfaldur meistari í stúlknaflokki. Hjá drengjunum varð Tristan Flore frá Frakklandi þrefaldur meistari í sveinaflokki en komst þó ekki á pall í einliðaleik og félagi hans Enzo Angles hlaut tvenn gullverðlaun.
Næsta mót verður haldið í Kazan í Tatarstan héraði Rússlands þann 15.-24. júlí 2011.
Úrslit úr einstökum flokkum:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
20. júlí 2010
Frakkar og Rúmenar tvöfaldir meistarar í liðakeppni á EM unglinga
Frakkar sigruðu bæði í kadetflokki sveina og juniorflokki drengja í liðakeppni unglinga á Evrópumeistaramóti unglinga, sem fram fer í Istanbúl í Tyrklandi. Þetta er þriðja árið í röð sem Frakkar vinna tvöfalt í liðakeppni á EM unglinga.
Í kadettflokki sveina 15 ára og yngri sigraði Frakkland Ungverjaland 3-0 í úrslitunum. Þýskaland vann Pólland 3-1 í leik um bronsverðlaunin.
Í juniorflokki drengja sigraði Frakkland Króatíu 3-1 i úrslitaleiknum. Þýskaland sigraði England 3-1 í leik um bronsið.
Rúmenía sigraði í báðum stúlknaflokkunum. Í kadettflokki stúlkna varð Rúmenia Evrópumeistari eftir 3-0 sigur á Rússlandi. Evrópumeistararnir 2009 frá Þýskaland unnu Króatíu 3-0 í leik um 3. sætið.
Í juniorflokki stúlkna sigraði Rúmenía Þýskaland 3-2 í spennandi úrslitaleik og vörðu rúmensku stúlkurnar þar með titilinn sem þær unnu í fyrra. Frakkland vann Ungverjaland 3-1 í leik um bronsið.
Að lokinni liðakeppni tekur við keppni í einliðaleik, tvíliðaleik og liðakeppni. Mótinu lýkur 25. júlí.
ÁMU
|
|
|
|
18. júlí 2010
Evrópumeistaramót unglinga er hafið í Istanbúl
Evrópumeistaramót unglinga 2010 er haldið í Istanbúl í Tyrklandi um þessar mundir. Mótið hófst föstudaginn 16. júlí og lýkur sunnudaginn 25. júlí. Á mótinu keppa 57 unglingar frá 46 löndum. Engir íslenskir unglingar þátt í mótinu að þessu sinni.
Nú stendur yfir keppni í liðakeppni, og verður leikið til úrslita á þriðjudaginn 20. júlí. Fylgjast má með úrslitum á mótinu á heimasíðu mótsins http://www.vitesseonline.it/2010eyc_istanbul/.
Á tenglinum http://www.laola1.tv/en/int/ettu/video/205--.html má bæði horfa beint á mótið og sjá upptökur af leikjum.
ÁMU
|
|
|
|
09. júlí 2010
Borðtennisbúðir Guðmundar Stephensen 13.-16.júlí
Guðmundur Stephensen mun halda æfingabúðir í TBR húsinu.
Samtals 4 æfingar, dagana 13.-16.júlí.
-Allar æfingar verða sniðnar að getu hvers og eins.
- Farið verður yfir helstu grunnatriði sem og nýjar tækniæfingar.
-Mót á lokaæfingunni.
-Hver æfing verður í tvær klukkustundir.
-Mæta þarf með borðtennisfatnað, fatnað fyrir útihlaup eftir veðri.
TBR Húsinu Gnoðavogi 1.
• Þriðjudaginn 13.júlí. kl.16.00-18.00
• Miðvikudaginn 14.júlí. kl. 16.00-18.00
• Fimmtudaginn 15.júlí. kl. 16.00-18.00
• Föstudaginn 16.júlí. kl. 16.00-18.00
Fyrir krakka á öllum aldri.
Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að!!
Verð: 5000 krónur
Skráning í síma: 6980001
Netfang: stephensen@gmail.com
|
|
|
|
 |
 |
04. júlí 2010
Drög að Íslandsmeistaratali uppfærð
 |
Í glugganum hér til vinstri má sjá uppfærð drög að Íslandsmeistaratali, þar sem flestum titlum sem keppt var um á keppnistímabilinu 2009-2010 hefur verið bætt við þann lista sem þar var fyrir. Skjalið fylgir einnig með hér sem viðhengi.
Á listann vantar Íslandsmeistara í einliðaleik í flokki eldri karla 50 ára og eldri. Á Íslandsmótinu þann 24. apríl sl. var bæði keppt í einliðaleik karla 50 ára og eldri og í flokkum 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára og eldri. Skv. reglugerð um Íslandsmót skal auglýst keppni í flokkum 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára og eldri. Sé þátttaka ekki nóg má sameina flokkana og keppa í flokki 50 ára og eldri. Ekki er gert ráð fyrir að keppt sé bæði í flokki 50 ára og eldri og flokkum 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára og eldri enda er óheimilt að keppa í fleiri en einum aldursflokki á aldursflokkameistaramóti. Stjórn BTÍ hefur ekki úrskurðað hverjir skuli teljast Íslandsmeistarar í einliðaleik 50 ára og eldri; sá sem vann 50 ára og eldri einliðaleikinn (Pétur Stephensen, Víkingi) eða þeir þrír sem unnu hina þrjá flokkana (Pétur Stephensen vann 50-59 ára, Árni Siemsen úr Erninum vann 60-69 ára og Jóhann Örn Sigurjónsson úr Erninum vann 70 ára og eldri einliðaleikinn).
Islandsmeistaratal_1971-2010
ÁMU
|
|
|
|
20. júní 2010
Fjórir Íslendingar hafa lokið 1. stigi þjálfararéttinda ITTF
 |
|
Guðfinna Magnea Clausen var eina konan sem hlaut þjálfararéttindi
|
 |
Í september 2008 var haldið þjálfaranámskeið á vegum BTÍ og var það sænski Norðmaðurinn Jan Berner sem kenndi. Hópur fólks sótti námskeiðið (sjá frétt frá 15. september 2008) en fjórir skiluðu öllum gögnum til ITTF og hafa því fengið 1. stigs þjálfararéttindi skv. heimasíðu ITTF. Þetta eru:
Bjarni Þorgeir Bjarnason
Finnur Hrafn Jónsson
Guðfinna Magnea Clausen
Mihaita Barbascu
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
17. júní 2010
Leikmenn á styrkleikalista 2009-2010 eftir aldursflokkum
 |
|
Kjartan Briem er stigahæstur í öldungaflokki og næststigahæstur í karlaflokki
|
 |
Alls tóku 198 leikmenn þátt í mótum á vegum BTÍ á keppnistímabilinu 2009-2010.
Hér eru birt nöfn stigahæstu leikmanna á styrkleikalistanum í borðtennis miðað við 1. júní 2010 eftir aldursflokkum. Eingöngu eru birt nöfn þeirra leikmanna, sem tóku þátt í mótum á keppnistímabilinu 2009-2010.
Aldur leikmanna er fenginn úr kennitölu leikmanna, þannig að vanti kennitölu leikmanna í unglinga- eða öldungaflokkum í gagnagrunn um styrkleikalista vantar þessa leikmenn á listann. Ef kennitalan er röng getur einhver verið talinn í vitlausum aldursflokki. Kennitölur 28 leikmanna 2009-2010 vantar í gagnagrunn um styrkleikalista.
Beðið er um að leiðréttingar verði sendar til umsjónarmanns styrkleikalista, Ástu Urbancic, netfang astaurb@gmail.com.
Allir drengir í unglingaflokki, sem hafa keppt á þessu keppnistímabili eru í meðfylgjandi skjali: Virkir_leikmenn_2009-2010_unglingar_karlar
Allar stúlkur í unglingaflokki, sem hafa keppt á þessu keppnistímabili eru í meðfylgjandi skjali: Virkir_leikmenn_2009-2010_unglingar_konur
Allir karlmenn í öldungaflokki, sem hafa keppt á þessu keppnistímabili eru í meðfylgjandi skjali: Virkir_leikmenn_2009-2010_oldungar_karlar
Allir konur í öldungaflokki, sem hafa keppt á þessu keppnistímabili eru í meðfylgjandi skjali: Virkir_leikmenn_2009-2010_oldungar_konur
ÁMU (upfært 21.6.)
|
|
|
|
 |
 |
10. júní 2010
Sindri og Bergrún hækkuðu mest á styrkleikalistanum á keppnistímabilinu 2009-2010
 |
|
Sindri Þór Sigurðsson hækkaði sig mest á styrkleikalistanum á keppnistímabilinu
|
 |
Sindri Þór Sigurðsson úr Víkingi hefur hækkað mest allra á styrkleikalistanum 1. júní 2010 miðað við styrkleikalistann 1. júní 2009. Sindri bætti við sig 370 stigum á keppnistímabilinu. Næstmest hækkaði Davíð Jónsson úr KR, sem hækkaði um 214 stig. Daníel Bergmann Ásmundsson úr Víkingi var þriðji og bætti við sig 194 stigum. Daníel var einnig einn þeirra sem hækkaði mest í fyrra. Markús Brekke Þorfinnsson kom nýr inn á listann í fyrra og hefur hækkað sig um 184 stig. Þrír aðrir karlar hækkuðu um 100 stig eða meira á tímabilinu: Sigurbjörn Sigfússon, Víkingi (153), sem hóf keppni eftir langt hlé snemma árs 2009 og var settur inn á styrkleikalistann með 1500 stig; Kári Mímisson, KR (103) og Daði Freyr Guðmundsson úr Víkingi (100). Kári var meðal þeirra sem hefur hækkað sig mest á hverju ári fjórða árið í röð og hefur Kári hækkað um 682 stig frá 1.4. 2006.
Bergrún Linda Björgvinsdóttir í Dímon hækkaði mest kvenna á styrkleikalistanum á milli ára. Hún bætti sig um 88 stig á tímabilinu. Bergrún var einnig meðal þeirra kvenna sem bætti sig mest í fyrra og í hitteðfyrra hækkaði hún sig mest kvenna eins og nú. Eyrún Elíasdóttir úr Víkingi bætti sig næstmest, eða um 45 stig. Ólafía Ásbjörnsdóttir úr Dímon bætti við sig 29 stigum og Hrafnhildur Sigurðardóttir úr Dímon hækkaði um 26 stig.
Aðeins er miðað við leikmenn sem tóku þátt í mótum bæði keppnistímabilin 2008-2009 og 2009-2010.
55 karlar og 10 konur hækkuðu sig á styrkleikalistanum á þessu tímabili en 36 karlar og 10 konur lækkuðu á listanum.
Yfirlit yfir alla leikmenn, sem léku á síðasta keppnistímabili og stöðu þeirra á styrkleikalista 1.6.2010 má sjá í meðfylgjandi skjali:
Leikmenn_2009-2010_samanburdur_allir
Leikmenn_2009-2010_samanburdur_karlar
Leikmenn_2009-2010_samanburdur_konur
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
10. júní 2010
Tæplega 200 leikmenn kepptu á mótum á keppnistímabilinu 2009-2010
 |
|
Guðmundur og Lilja voru stigahæst þeirra leikmanna sem kepptu 2009-2010
|
 |
Alls tóku 198 leikmenn þátt í mótum á vegum Borðtennissambands Íslands keppnistímabilið 2009-2010. Þetta er nokkur fækkun frá fyrra keppnistímabili þegar 242 leikmenn tóku þátt í mótum.
Á mótum vetrarins kepptu 170 karlar en aðeins 28 konur. Munar þar mestu um fækkun kvenna úr Dímon, sem voru 27 í fyrra en aðeins 8 á keppnistímabilinu sem er að ljúka.
Þessir 198 leikmenn komu frá 9 félögum. Flestir kepptu fyrir Víking, 66 leikmenn, 39 fyrir KR og 35 fyrir HK.
Íslandsmeistararnir Guðmundur E. Stephensen og Lilja Rós Jóhannesdóttir úr Víkingi eru stigahæsti karlinn og konan sem kepptu á keppnistímabilinu. Í meðfylgjandi skjölum má sjá röð þeirra leikmanna sem kepptu á keppnistímabilinu á styrkleikalistanum 1. júní.
Þann 16. júní verður svo birt röð leikmanna á styrkleikalista eftir aldursflokkum.
Sjá nánar í skjölunum:
Leikmenn_ 2009-2010_felog
Leikmenn_2009-2010_allir
Leikmenn_2009-2010_karlar
Leikmenn_2009-2010_konur
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
04. júní 2010
Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2010 birtur á vef BTÍ
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2010 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. maí var birtur hefur punktamót Víkings 8. maí verið lesið inn í styrkleikalistann, alls 69 leikir:
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalistann vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.6.2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
30. maí 2010
Óvænt úrslit þegar Singapore lagði Kína í úrslitum í liðakeppni kvenna
 |
Óvæntustu úrslit sem orðið hafa í borðtennisheiminum lengi urðu staðreynd í dag þegar Singapore lagði Kína 3-1 í úrslitum í liðakeppni kvenna á HM í Moskvu í dag. Skv. þuli ITTF hefur Kína tekið þátt í HM 17 sinnum og þetta var þeirra fyrsti ósigur í kvennaflokki.
Feng Tianwei, sem er önnur á heimslistanum, var hetja Singapore þegar hún tryggði sigurinn með því að leggja efstu konu heimslistans, Liu Shiwen, 11-7 í oddalotu í síðasta leiknum. Hún hafði áður sigrað Ding Ning og Wang Yue Gu sigraði Liu Shiwen. Gue Yue, heimsmeistarinn í einliðaleik kvenna 2007 vann eina leik Kínverja þegar húnn vann Sun Bei Bei í leik þriðju manna liðanna. Þjóðverjar og Japanir fengu bronsið.
Í karlaflokki mættust Kínverjar og Þjóðverjar í úrslitum. Timo Boll byrjaði vel fyrir Þjóðverja og lagði Ma Long, efsta manna heimslistans 3-2. Dimitry Ovtcharov tapaði 0-3 fyrir Ma Lin og Christian Süss tapaði 1-3 fyrir Zhang Jike í leik þar sem hann hafði góða möguleika á að gera betur. Ma Lin tryggði svo Kínverjum heimsmeistaratitilinn með því að leggja Timo Boll 3-1 í fjórða leiknum.
Þetta var fimmti heimsmeistaratitill Kínverja í röð en þeir töpuðu síðast fyrir Svíum árið 2000. Japanir og Kóreumenn fengu bronsverðlaunin.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
30. maí 2010
Ísland hafnaði í 94. sæti á HM eftir tap gegn Makedóníu
 |
|
Guðmundur tapaði aðeins einni lotu í 16 leikjum á HM
|
 |
Íslenska karlalandsliðið lék við Makedóníu um 93. sæti í síðasta leik sínum á HM í Moskvu en liðin mættust líka í riðlinum. Aftur tapaði liðið 2-3 fyrir Makedóníu og hafnaði liðið því í 94. sæti á mótinu.
Á síðasta heimsmeistaramóti enduðu íslensku karlarnir í 99. sæti en þá lék Guðmundur Stephensen ekki með liðinu.
Eins og í riðlinum vann Guðmundur Stephensen báða sína leiki en nú tapaði hann einni lotu fyrir Sashko Bogatinov og var það eina lotan sem hann tapaði á mótinu. Magnús K. Magnússon tapaði báðum sínum leikjum 1-3. Daði Freyr Guðmundsson lék sem þriðji maður og tapaði sínum leik 0-3.
Úrslit í einstökum leikjum:
Ísland - Makedónía 2-3
Guðmundur Stephensen - Sashko Bogatinov 3-1 (5-11, 11-7, 11-5, 11-8)
Magnús K. Magnússon - Filip Mladenovski 1-3 (7-11, 9-11, 11-8, 11-13)
Daði Freyr Guðmundsson - Agon Saiti 0-3 (8-11, 5-11, 4-11)
Guðmundur Stephensen - Filip Mladenovski 3-0 (11-5, 11-4, 11-7)
Magnús K. Magnússon - Sashko Bogatinov 1-3 (11-9, 9-11, 5-11, 7-11)
Í kvöld (30. maí) verður sýnt frá mótinu á Eurosport, auk þess sem hægt er að horfa á leiki frá mótinu á vef ITTF.
ÁMU
|
|
|
|
29. maí 2010
Ísland sigraði Costa Rica og leikur um 93. sæti á HM
 |
|
Guðmundur og Magnús tryggðu Íslandi sigur á móti Costa Rica
|
 |
Íslenska karlalandsliðið sigraði Costa Rica 3-1 í liðakeppni HM í dag og leikur um 93. sætið. Mótherjarnir í síðasta leik liðsins i keppninni verður lið Makedóníu. Leikurinn fer fram á morgun, 30. maí kl. 10 að staðartíma.
Eins og í fyrri leikjum vann Guðmundur Stephensen báða sína leiki 3-0. Magnús K. Magnússon lék sem þriðji maður og vann sinn leik 3-2. Daði Feyr tapaði sínum leik 1-3.
Úrslit í einstökum leikjum:
Ísland - Costa Rica 3-1
Guðmundur Stephensen - Steve Herra 3-0 (13-11, 11-8, 11-5)
Daði Freyr Guðmundsson - Allan Calvo 1-3 (7-11, 12-10, 5-11, 9-11)
Magnús K. Magnússon - Jeison Martinez 3-2 (11-7, 7-11, 8-11, 11-8, 11-8)
Guðmundur Stephensen - Allan Calvo 3-0 (11-7, 11-3, 11-5)
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
29. maí 2010
Kínverjar, Japanir og Þjóðverjar komnir í undanúrslit bæði í karla- og kvennaflokki á HM í Moskvu
 |
Komið er að undanúrslitum í liðakeppni á HM í borðtennis í Moskvu. Kínverjar stefna hraðbyri að því að verja titlana bæði í karla- og kvennaflokki. Í báðum flokkum hafa þeir unnið alla sína leiki 3-0.
Í karlaflokki mættu Kínverjar Japönum í undanúrslitum og sigruðu örugglega 3-0. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Þjóðverjar og Kóreumenn, og fer leikurinn fram síðar í dag.
Sænsku karlarnir eru efstir Norðurlandabúa en þeir leika við Pólverja um 11. sæti í dag. Danir leika um 23. sæti við Ítali.
Í kvennaflokki mætast Kína og Japan í undanúrslitum síðar í dag. Í hinum undanúrslitunum mættust Þýskaland og Singapore í morgun og sigraði Singapore 3-1.
Sænsku konurnar urðu líka efstar Norðurlandaþjóðanna eins og sænsku karlarnir. Þær urðu efstar í 2. deild sem skilar þeim í 25. sæti.
Sýnt var frá mótinu á Eurosport í morgun og aftur verður sýnt frá mótinu í kvöld og annað kvöld. Einnig má horfa á leiki á vefnum. Sjá nánar á vef ITTF www.ittf.com.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
27. maí 2010
Sigur og tap hjá íslensku körlunum á HM í dag
 |
|
Daði Freyr vann sinn fyrsta leik á HM á móti Laos
|
 |
Íslenska karlalandsliðið sigraði Laos 3-1 í fyrri leik dagsins á HM í Moskvu í leik um sæti 89-104. Liðið keppti þá við San Marínó um sæti 89-96 og tapaði 2-3.
Liðið leikur því næst við Costa Rica í leik um sæti 93-96 og fer leikurinn fram á laugardaginn kl. 16.30. Ef liðið vinnur leikur það um sæti 93-94 en ef liðið tapar keppir það um sæti 95-96. Eins og sést á þessum úrslitum skiptir hver sigur í leik á þessu stigi mótsins töluverðu máli og færir liðið upp um mörg sæti í lokaröð liðanna.
Á móti Laos vann Guðmundur Stephensen báða sína leiki örugglega 3-0. Daði Freyr Guðmundsson lék sem annar maður og vann sinn leik örugglega 3-0 en Magnús K. Magnússon tapaði þriðja leiknum 1-3.
Íslensku karlarnir hafa leikið við San Marínó á Smáþjóðaleikjunum og þekkja því til liðsins. Eins og í öllum leikjum liðsins til þessa vann Guðmundur báða sína leiki 3-0. Hann hefur unnið 12 leiki 3-0 og ekki tapað lotu til þessa. Magnús tapaði fyrri leiknum 0-3 en tapaði síðasta leiknum 2-3, og er það í þriðja sinn sem Magnús tapar síðasta leik liðsins í oddalotu. Daði Freyr Guðmundsson lék sem þriðji maður og tapaði 1-3.
Úrslit í einstökum leikjum:
Ísland - Laos 3-1
Guðmundur Stephensen - Thavisack Phataphone 3-0 (11-4, 11-5, 11-8)
Daði Freyr Guðmundsson - Khouanechay Xaykaotho 3-0 (11-8, 11-7, 11-6)
Magnús K. Magnússon - Chansamone Khunladsuvannavong 1-3 (11-8, 5-11, 6-11, 8-11)
Guðmundur Stephensen - Khouanechay Xaykaotho 3-0 (11-2, 11-3, 11-2)
Ísland - San Marino 2-3
Guðmundur Stephensen - Mattia Berardi 3-0 (11-2, 11-6, 11-4)
Magnús K. Magnússon - Marco Vannucci 0-3 (5-11, 3-11, 8-11)
Daði Freyr Guðmundsson - Riccardo Tentoni 1-3 (6-11, 11-9, 3-11, 1-11)
Guðmundur Stephensen - Marco Vannucci 3-0 (11-7, 12-10, 13-11)
Magnús K. Magnússon - Mattia Berardi 2-3 (11-7, 8-11, 11-8, 8-11, 8-7-11)
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
26. maí 2010
Íslensku karlarnir töpuðu enn einum leiknum 2-3 í riðlakeppni HM í borðtennis
 |
|
Guðmundur tapaði ekki lotu í N-riðli
|
 |
Íslenska karlalandsliðið tapaði þriðja leiknum í N-riðli 2-3 á HM í borðtennis í Moskvu í dag. Nú tapaði liðið fyrir Angóla. Eins og í fyrri leikjum vann Guðmundur Stephensen báða sína leiki örugglega 3-0. Magnús K. Magnússon lék aftur sem þriðji maður en tapaði nú 1-3 fyrir þriðja manni Angóla. Daði tapaði báðum sínum leikjum.
Úrslit í einstökum leikjum:
Ísland - Angóla 2-3
Daði Freyr Guðmundsson - Hermenegildo Sebastiao 0-3 (9-11, 7-11, 7-11)
Guðmundur Stephensen - Bernardo Quifica 3-0 (11-4, 11-4, 11-6)
Magnús K. Magnússon - Domingos Manuel 1-3 (11-8, 9-11, 10-12, 8-11)
Guðmundur Stephensen - Hermenegildo Sebastiao 3-0 (11-4, 11-6, 11-6)
Daði Freyr Guðmundsson - Bernardo Quifica 1-3 (3-11, 11-7, 7-11, 6-11)
Lokastaðan í riðlinum er þá sú að Ísland hafnaði í fjórða sæti með einn sigur. Liðið fer því áfram í keppni um sæti 89-104 og leikur þar við liðin sem voru í 3. og 4. sæti í hinum riðlunum í 4. deild karla.
Næsti leikur íslensku karlanna er við Laos þann 27. maí kl. 13.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
25. maí 2010
Ísland sigraði Madagaskar í þriðja leiknum á HM í borðtennis
 |
|
Magnús vann sinn fyrsta leik á mótinu í dag
|
 |
Íslenska karlalandsliðið sigraði Madagaskar 3-1 í þriðja leik sínum í N-riðli 4. deildar á HM í borðtennis í Moskvu í dag. Eins og í fyrri leikjum vann Guðmundur Stephensen báða sína leiki örugglega 3-0. Hann hefur enn ekki tapað lotu á mótinu. Nú lék Magnús K. Magnússon sem þriðji maður og vann sinn leik 3-1. Leikmaðurinn sem hann sigraði er merktur sem 1. maður Madagaskar og kann því að vera besti maður liðsins. Daði tapaði sínum leik 0-3 á móti 2. manni Madagaskar.
Úrslit í einstökum leikjum:
Ísland - Madagaskar 3-1
Daði Freyr Guðmundsson - Nicolas Razafimamonjy 0-3 (5-11, 6-11, 16-18)
Guðmundur Stephensen - Dimbiniaina Razakamalanto 3-0 (11-6, 11-2, 11-1)
Magnús K. Magnússon - Tahiriniaina Rakotoarisoa 3-1 (11-9, 13-15, 11-4, 12-10)
Guðmundur Stephensen - Nicolas Razafimamonjy 3-0 (11-3, 11-3, 11-2)
Í hinum leiknum í riðlinum sigraði Líbanon Makedóníu 3-2.
Síðasti leikur Íslands í riðlinum er á morgun við Angóla.
Staðan í riðlinum eftir fjórar umferðir af fimm er þannig að Líbanon er efst með 8 stig og hefur unnið alla sína leiki og þar með riðilinn. Ísland og Angóla keppa við Makedóníu um sæti 2-4 í riðlinum. Angóla hefur unnið tvo leiki og tapað einum. Makedónía hefur unnið einn leik og tapað tveimur en stendur vel að vígi þar sem liðið á eftir að leika við Madagaskar, sem hefur enn ekki unnið leik í riðlinum. Ísland hefur líka unnið einn leik og tapað tveimur.
Um næstu helgi (29.-30. maí) verður sýnt frá mótinu á Eurosport, auk þess sem hægt er að horfa á leiki á vef ITTF.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
24. maí 2010
Ísland tapaði aftur naumlega á HM í borðtennis
 |
|
Daði Freyr vann sína fyrstu lotu á HM í dag
|
 |
Íslenska karlalandsliðið tapaði aftur 2-3 í liðakeppni í N-riðli 4. deildar á HM í borðtennis í Moskvu í dag. Í þetta sinn tapaði liðið fyrir Makedóníu. Eins og í gær vann Guðmundur Stephensen báða sína leiki 3-0. Magnús K. Magnússon tapaði sínum leikjum 0-3 og 1-3. Daði Freyr Guðmundsson lék sem þriðji maður og tapaði sínum leik 1-3.
Úrslit í einstökum leikjum:
Ísland - Makedónía 2-3
Magnús K. Magnússon - Agon Saiti 0-3 (15-17, 9-11, 6-11)
Guðmundur Stephensen - Sashko Bogatinov 3-0 (11-6, 11-5, 11-7)
Daði Freyr Guðmundsson - Filip Mladenovski 1-3 (5-11, 11-8, 1-11, 4-11)
Guðmundur Stephensen - Agon Saiti 3-0 (11-6, 11-2, 11-5)
Magnús K. Magnússon - Sashko Bogatinov 1-3 (7-11, 11-8, 5-11, 7-11)
Í hinum leiknum í riðlinum sigraði Líbanon Angóla 3-1. Fyrr í dag vann Líbanon Madagaskar 3-0 og Angóla sigraði Makedóníu 3-0. Þá sat Ísland hjá.
Staðan í riðlinum eftir þrjár umferðir er þá þannig að Líbanon er efst með 6 stig eftir þrjá leiki. Angóla hefur unnið tvo leiki og tapað einum og Makedónía hefur unnið einn og tapað einum. Madagaskar og Ísland hafa tapað báðum leikjum sínum.
Næsti leikur Íslands er á morgun við Madagaskar.
Um næstu helgi (29.-30. maí) verður sýnt frá mótinu á Eurosport, auk þess sem hægt er að horfa á leiki á vef ITTF.
ÁMU
|
|
|
|
23. maí 2010
Ísland tapaði naumlega fyrir Líbanon í fyrsta leiknum á HM í Moskvu
 |
|
Guðmundur byrjaði vel á mótinu og vann báða sína leiki
|
 |
Íslenska karlalandsliðið tapaði naumlega 2-3 fyrir Líbanon í fyrsta leiknum í N-riðli 4. deildar á HM í borðtennis í Moskvu í dag. Guðmundur Stephensen vann báða sína leiki 3-0 en Magnús K. Magnússon tapaði báðum sínum leikjum 2-3 í oddalotu. Daði Freyr Guðmundsson lék sem þriðji maður og tapaði sínum leik 0-3.
Úrslit í einstökum leikjum:
Ísland - Líbanon 2-3
Guðmundur Stephensen - Youssef Chalboub 3-0 (11-5, 11-8, 11-4)
Magnús K. Magnússon - Rachid El Boubou 2-3 (7-11, 11-9, 7-11, 11-8, 7-11)
Daði Freyr Guðmundsson - Mohamed El Habech 0-3 (6-11, 8-11, 5-11)
Guðmundur Stephensen - Rachid El Boubou 3-0 (11-7, 11-7, 11-6)
Magnús K. Magnússon - Youssef Chalboub 2-3 (7-11, 6-11, 11-9, 11-4, 6-11)
Í hinum leiknum í riðlinum sigraði Angóla Madagaskar 3-0.
Næsti leikur Íslands er á morgun við Makedóníu.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
22. maí 2010
HM í borðtennis hefst í Moskvu á morgun
Heimsmeistaramótið í liðakeppni í borðtennis hefst í Moskvu 23. maí, og stendur til 30. maí.
Fyrir Íslands hönd leika þeir Daði Freyr Guðmundsson, Guðmundur Stephensen og Magnús K. Magnússon. Landsliðsþjálfarinn Ólafur Rafnsson er með liðinu í Rússlandi.
Íslensku karlarnir leika í N riðli í 4. deild mótsins. Mótherjarnir eru Angóla, Líbanon, Madagaskar og Makedónía.
Leikir Íslands eru þessir, og verður fylgst með úrslitum hér á vef Borðtennissambands Íslands. Tími er staðartími í Moskvu.
Ísland - Líbanon sunnudaginn 23. maí kl. 16.00
Ísland - Makedónía mánudaginn 24. maí kl. 19.30
Ísland - Madagaskar þriðjudaginn 25. maí kl. 16.30
Ísland - Angóla miðvikudaginn 26. maí kl. 13.00
Að loknum þessum riðli fara liðin áfram í milliriðla og leika við önnur lið úr hinum sjö riðlunum í 4. deild karla.
Hægt verður að horfa á leiki á 1. borði mótsins á vef ITTF. Sjá nánar á vef ITTF, www.ittf.com.
Að flestra dómi eru Kínverjar líklegir til að verja titla sína bæði í karla- og kvennaflokki. Í karlaflokki hefur það vakið athygli að Wang Liqin, fyrrum þrefaldur heimsmeistari í einliðaleik karla 2003, 2005 og 2007, komst ekki í kínverska karlaliðið. Hann tapaði einvígi um sæti í liðinu fyrir Ma Lin. Auk Ma Lin skipa liðið þeir Ma Long, efsti maður heimslistans, Wang Hao, núverandi heimsmeistari í einliðaleik karla, Zhang Jike og Xu Xin. Kínverjar eiga 6 af 7 hæstu mönnum á heimslistanum. Það er aðeins Þjóðverjinn Timo Boll sem er meðal 7 efstu, en hann er í þriðja sæti.
ÁMU
|
|
|
|
21. maí 2010
Ný stjórn tekin við hjá Borðtennisdeild KR
Á aðalfundi Borðtennisdeildar KR sem var haldinn nýlega tók ný stjórn við stjórnartaumunum í deildinni. Aðeins einn situr áfram úr eldri stjórn, Hlöðver Þorsteinsson. Gunnar Snorri Ragnarsson er nýr formaður deildarinnar, og tekur hann við af Kjartani Briem, sem hefur verið formaður í áratug.
Í stjórn voru kjörin:
Gunnar Snorri Ragnarsson, formaður
Hlöðver Þorsteinsson, varaformaður
Ásta M. Urbancic, gjaldkeri
Finnur Hrafn Jónsson, ritari
Einar Geirsson, meðstjórnandi
Í varastjórn voru kosnir:
Davíð Jónsson
Hlöðver Steini Hlöðversson
Ingólfur Sveinn Ingólfsson
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
15. maí 2010
Svíar unnu öll 7 gullverðlaunin á Norður-Evrópumótinu í borðtennis
 |
Norður-Evrópumótið í borðtennis fór fram í Helsinki um síðustu helgi. Að þessu sinni voru engir þátttakendur frá Íslandi en til leiks mættu keppendur frá hinum Norðurlöndunum fjórum, Eistlandi og Litháen.
Í sigurliði Svía í liðakeppni karla voru þeir Hampus Söderlund, Mattias Karlsson og Kristian Karlsson. Þeir sigruðu lið Dana, sem var skipað Christian Kongsgård, Jonathan Groth og Jakob Asmussen. Norðmenn urðu þriðju, Finnar fjórðu, þá Litháar og Eistland rak lestina.
Í liðakeppni kvenna var sigurlið Svíþjóðar skiptað Madeleine Melcher, Danielu Moskovitz og Michelle Quach. Þær sigruðu eistnesku stúlkurnar Olesju Ketsko, Tatjönu Tshistjakovu og Katlin Latt í úrslitum. Danmörk fékk bronsið, Noregur varð í fjórða sæti og heimalið Finna varð í fimmta og neðsta sæti.
Í einliðaleik karla sigraði Matthias Karlsson Danann Jakob Asmussen 4-1 í úrslitum. Í tvíliðaleik karla sigraði Matthias aftur með Kristian Karlsson þá Aleksandr Smirnov og Vallot Vainula frá Eistlandi 3-0.
Í einliðaleik kvenna sigraði Madeleine Melcher dönsku stúlkuna Sabine B. Larsen 4-0 í úrslitum. Í tvíliðaleik kvenna lék Madeleine Melcher með Michelle Quach og sigruðu þær eistneska parið Tatjönu Tshistjakovu og Katlin Latt 3-2 í úrslitum.
Í tvenndarkeppni vann svo Madeleine Melcher sitt fjórða gull þegar hún hrósaði sigri með Kristian Karlsson gegn Jonathan Groth og Pernille Agerholm 3-2 í jöfnum úrslitaleik.
ÁMU
|
|
|
|
12. maí 2010
Þingi Borðtennissambands Íslands hefur verið frestað til hausts
Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá stjórn BTÍ:
----------------------------
Góðir félagar
Stjórn BTÍ hefur tekið þá ákvörðun að fresta þingi Borðtennissambands Íslands til haustsins af óviðráðanlegum ástæðum. Forsvarsmönnum félaganna hefur verið tilkynnt um þetta nú á síðustu dögum og hefur náðst víðtæk sátt um frestunina. Þingið verður haldið í fyrstu eða annarri viku septembermánaðar fyrir upphaf næsta tímabils en endurnýjuð auglýsing verður send a.m.k. 1 mánuði fyrir þingið.
Óskir um lagabreytingar hafa þegar borist og mun þeim haldið til haga fyrir komandi þing og þær birtar fyrir þingið.
Með vinsemd og virðingu,
Fyrir hönd stjórnar BTÍ.
Snorri Páll Einarsson
Formaður BTÍ
|
|
|
|
|
|
06. maí 2010
Breyting á æfingartíma á unglingalandsliðsæfingu 8. maí
Kristján Viðar Haraldsson, unglingalandsliðsþjálfari hefur breytt æfingatímanum fyrir unglingalandsliðsæfinguna sem fyrirhuguð var laugardaginn 8. maí, vegna punktamóts Víkings á sama tíma. Í staðinn verður unglingalandsliðsæfing sunnudaginn 9. maí í húsnæði KR.
Æfingarnar verða:
9. maí sunnudagur Dr 16-18 og Dr U15 kl. 10.00 í KR-heimilinu (í stað laugardags 8. maí í TBR)
9. maí sunnudagur
St 16-18 og St U15 kl. 11.30 í KR-heimilinu (í stað laugardags 8. maí í TBR)
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
05. maí 2010
Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2010 birtur
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2010 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. apríl var birtur hafa eftirtalin mót verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 226 leikir (þar af margir tvíliðaleikir, sem ekki telja á styrkleikalistanum):
Punktamót ÍFR 17. apríl 2010
Punktamót Dímonar 22. apríl 2010
Íslandsmót öldunga 24. apríl 2010
Lokamót Grand Prix 24. apríl 2010
Leikir í úrslitakeppni 1. deildar karla 2010
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalistann vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.5.2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
05. maí 2010
Punktamót Víkings verður haldið 8. maí
 |
Víkings stigamótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu (stóra salnum) Laugardaginn 8. maí 2010.
Keppt verður í eldri flokki karla og
2. flokki karla og kvenna.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki.
Dagskrá mótsins:
Laugardagur 8. maí kl. 10:00 Eldri flokkur karla
Laugardagur 8. maí kl. 11:00 2. flokkur karla og kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Keppt verður með gulum kúlum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 500.
Dómarar: Ólafur Ólafs og Pétur Ó. Stephensen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen
Matthías Stephensen
Magnús F. Magnússon
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 6. maí kl. 19:00 Í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar:
Pétur s- 5536862/8940040/pos@itn.is
Magnús F. Magnússon s-8690340
Matthías Stephensen s-5536862/8692962
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 6. maí kl. 18:00.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi skjali:
Vikings_stigamot_mai_2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
04. maí 2010
Landsliðið fyrir HM í Moskvu hefur verið valið
 |
Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Ólafi Rafnssyni, landsliðsþjálfara:
-----------------
Búið er að velja A-landslið karla sem fer á heimsmeistarmótið í borðtennis sem haldið er í Moskvu í Rússlandi dagana 23. maí til 30. maí 2010.
Þeir sem hafa verið valdir eru:
Guðmundur Eggert Stephensen
Magnús K. Magnússon
Daði Freyr Guðmundsson
Næstu landsliðsæfingar (allir í æfingahópnum):
Fimmtudagur 6.maí kl. 19:00.
Tekið verður þátt í Reykjavík Airport Run. 7 km. Skráningargjald er 1000 kr. Hlaupið hefst kl. 19:00, hægt er að skrá sig í hlaupið á keppnisdaginn frá klukkan 17:00 eða á hlaupsíðunni www.hlaup.is.
Föstudagur 7. maí kl. 17:00 í TBR-húsinu.
Laugardagur 8. maí kl. 15:00 í TBR-húsinu.
Sunnudagur 9. maí kl. 10:00 í TBR-húsinu.
Þriðjudagur 11 .maí kl 18:00 í TBR-húsinu.
Fimmtudagur 13. maí kl 18:00 í TBR-húsinu.
Laugardagur 15. maí kl 10:00 í TBR-húsinu.
Sunnudagur 16. maí kl 13:00 í TBR-húsinu.
Þriðjudagur 18. maí kl. 18:00 í TBR-húsinu.
Fimmtudagur 20. maí kl 18:00 í TBR-húsinu.
Kveðja,
Ólafur Rafnsson
Landsliðsþjálfari BTÍ
------------------
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
02. maí 2010
Unglingalandsliðshópur hefur verið valinn
 |
Kristján Viðar Haraldsson hefur valið unglingalandsliðshóp til æfinga. Ein æfing hefur þegar farið fram hjá drengjunum.
Í meðfylgjandi skjali er yfirlit yfir æfingar í maí og nöfn þeirra sem eru í hópunum. Næsta æfing er 5. maí hjá drengjunum en 8. maí hjá stúlkunum. Æfingar fara ýmist fram í æfingahúsnæði HK, KR eða Víkings.
Nánari upplýsingar um æfingar eru í meðfylgjandi skjali: Sjá einnig breytingu á æfingatíma í frétt 6. maí.
Landslidsaefingar_vor_2010
Eftirtaldir leikmenn skipa hópana:
Drengir 16-18 ára
Ari Páll Olsen, Víkingi
Daníel Bergmann Ásmundsson, Víkingi
Jakob Ingason, HK
Jóhannes Bjarki Tómasson, KR
Jónatan Jónatansson, Víkingi
Kári Mímisson, KR
Markús Brekke Þorfinnsson, Víkingi
Rafn Kumar, Víkingi
Sindri Þór Sigurðsson, Víkingi
Tómas Ingi Shelton, KR
Stúlkur 16-18 ára
Eyrún Elíasdóttir, Víkingi
Fríður Rún Sigurðardóttir, KR
Harpa Sif Þorsteinsdóttir, Dímon
Drengir 15 ára og yngri
Adrian Héðinsson Gonzalez, HK
Andri Þór Jónsson, Víkingi
Bendik Brekke Þorfinnsson, Víkingi
Björn Gunnarsson, HK
Bolli Magnússon, HK
Daníel A. Bergersen, Vikingi
Hávar Gunnarsson, HK
Högni Gunnarsson, HK
Logi Ágústsson, Víkingi
Pétur Andrésson, HK
Pétur Gunnarsson, KR
Skúli Gunnarsson, KR
Vignir Þór Sigurjónsson, Dímon
Stúlkur 15 ára og yngri
Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon
Hólmfríður Snorradóttir, HK
Hrefna Namfa Finnsdóttir, HK
Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR
ÁMU (uppfært 3.5. og 6.5.)
|
|
|
|
 |
 |
02. maí 2010
Borðtennisbúðir Guðmundar Stephensen.
 |
|
Guðmundur Stephensen landsliðsmaður
|
 |
   
Guðmundur Stephensen fremsti borðtennisspilari landsins mun í samstarfi við Stiga halda æfingabúðir fyrir lengra komna unglinga í TBR húsinu. Samtals 4 æfingar.
- Allir fá gefins Stiga bol sem á að vera í á æfingunum.
- Allar æfingar verða sniðnar að getu hvers og eins.
- Hver og einn mun fá minnispunkta um það hvað hann þarf helst að bæta.
- Farið verður yfir helstu grunnatriði sem og nýjar tækniæfingar.
- Verðlaun eru veitt frá Stiga fyrir mestu framfarir.
- Mót á lokaæfingunni og verðlaun frá Stiga.
- Hver æfing verður í tvær klukkustundir.
- Mæta þarf með borðtennisfatnað, fatnað fyrir útihlaup eftir veðri.
TBR Húsinu Gnoðavogi 1.
Laugardaginn 8.maí. kl.16.00-18.00
Sunnudaginn 9.maí. kl. 16.00-18.00
Laugardaginn 15.maí kl. 16.00-18.00
Sunnudaginn 16.maí kl. 16.00-18.00
Fyrir krakka á öllum aldri.
Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að!!
Verð: 10.000 krónur
Skráning í síma: 6980001
Netfang: stephensen@gmail.com
   
BTI
| | Meira |
|
|
|
01. maí 2010
Gamlar borðtenniskempur á mánudögum kl: 9
Á síðustu mánudagskvöldum kl: 21:00 hafa komið saman gamlar borðtenniskempur til að etja kappi í TBR húsinu Gnoðavogi.
Nú verður þetta venja að hittast og spila borðtennis á mánudagskvöldum kl: 9 í TBR húsinu.
Það eru allir velkomnir! Eldgamlir, gamlir, ungir og nýjir borðtennisspilarar. Stelpur og strákar, konur og menn. Látiði sjá ykkur!
Alltaf gaman að spila borðtennis saman og ekki slæmt að þagga niðrí gömlum hetjum sem þykjast geta eitthvað lengur :)
Endilega bjóðið fólki sem þið þekkið eða vitið um að geti eitthvað í borðtennis. Gamlar borðtenniskempur, nýjar hetjur eða bara hvern sem er sem þykist geta eitthvað í borðtennis.
Mánudagskvöld kl: 21:00 í TBR.
Borðtennis að eilífu!
DFG
|
|
|
|
29. apríl 2010
Landsliðsæfingar laugardaginn 1. og sunnudaginn 2.maí
Næstu tvær landsliðsæfingar karla verða laugardaginn 1.mai kl. 14:00 í TBR-húsinu og sunnudaginn 2.maí kl. 10:00 í TBR-húsinu.
Upphitun hefst stundvíslega kl. 14:00 og kl. 10:00, mæta þarf með útihlaupaskó og fatnað miðað við veður.
Forföll á æfingar eiga að tilkynnast í síma 617-4531.
Kveðja,
Ólafur Þór Rafnsson
Landsliðsþjálfari BTÍ
(Uppfært 1.5.´10)
|
|
|
|
 |
 |
28. apríl 2010
Víkingur A Íslandsmeistari í 1.deild karla tímabilið 2009-2010
 |
|
Íslandsmeistarar Víkings í borðtennis, t.v. Daði Freyr Guðmundsson, Magnús K. Magnússon og Sigurður Jónsson.
|
 |
Víkingur A varð Íslandsmeistari í gærkvöldi í 1.deild karla 2010 í borðtennis eftir að hafa sigrað KR 4-0 í hreinum úrslitaleik. Og endurheimti þar með titilinn sem hefur legið í höndum KR síðustu tvö ár. En þar á undan stóð sigurganga Víkings í 13 ár.
Lið Íslandsmeistara Víkings er skipað Magnúsi K. Magnússyni, Sigurði Jónssyni og Daða Frey Guðmundssyni.
Fjöldinn allur af áhorfendum var kominn til að horfa á leikinn og styðja sín lið. En um 40-50 manns voru í borðtennissal Víkings í TBR húsinu.
Var þetta þriðji leikur liðanna í úrslitakeppninni. En KR sigraði fyrsta leikinn á heimvelli Víkings 2-4. Víkingsmenn komu til baka og knúðu fram oddaleik með sigri á heimvelli KR 2-4 og var þá staðan orðin 1-1 og hreinn úrslitaleikur sem fram fór í gær.
Þrátt fyrir 4-0 úrslit var þetta spennandi leikur, þrjár oddalotur og áhorfendur fengu eitthvað fyrir sinn snúð.
Úrslit úr leiknum voru eftirfarandi:
1. leikur: Magnús K. Magnússon Víkingi sigraði Ingólf Ingólfsson KR 3 – 0 (11 – 8, 11 – 4, 11-7).
2. leikur: Sigurður Jónsson Víkingi sigraði Davíð Jónsson KR 3 – 2 í hörkuleik (7 – 11, 12 – 10, 12 – 10, 7 – 11, 11 – 8).
3. leikur: Daði Freyr Guðmundsson Víkingi sigraði Kára Mímisson KR 3 – 2 í spennandi leik (7 – 11, 11 – 9, 9 – 11, 11 – 2, 11 – 5).
4.leikur-tvíliðaleikur: Magnús K. og Sigurður J. sigruðu Ingólf I. og Davíð J. 3 – 2 í hörku leik eftir að hafa verið 0-2 undir,(8 -11, 7 -11, 11 – 9, 11 – 5, 11 – 7).
Víkingar eru tvöfaldir meistarar í 1.deild karla 2010. Fyrst Bikarmeistarar og svo Íslandsmeistarar. Er þetta í fyrsta skiptið í sögu borðtennis á Íslandi að tveir titlar séu í boði í 1. deild karla og kvenna.
Hér er frétt sem kom á stöð 2 um leikinn. Klikka hér
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
25. apríl 2010
Davíð Jónsson og Eva Jósteins sigruðu Lokamót Grand Prix 2010
 |
|
Davíð Jóns Grand Prix meistari 2010
|
 |
Lokamót Grand Prix mótaraða Borðtennissambands Íslands keppnistímabislins 2009-2010 fór fram í Íþróttahúsi TBR laugardaginn 24. apríl 2010.
Grand prix meistarar keppnistímabilsins 2009-2010 urðu í meistaraflokki kvenna Eva Jósteinsdóttir, Víkingur og í meistaraflokki karla Davíð Jónsson, KR
Undanúrslit:
Í meistaraflokki karla léku í undanúrslitum Magnús K. Magnússon Víkingi gegn Sigurði Jónssyni Víkingi og fóru leikar þannig að Magnús sigraði 4 - 1.
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Davíð Jónsson KR gegn Daða Freyr Guðmundssyni Víkingi þar sem Davíð sigraði í hörkuleik 4 - 3.
Í meistaraflokki kvenna léku í undanúrslitum Magnea Ólafs Víkingi gegn Eyrúnu Elíasdóttir Víkingur, þar sem Magnea sigraði örugglega 4-0.
Í hinum undanúrslitaleiknum í meistaraflokki kvenna léku Eva Jósteinsdóttir Víkingi gegn Hrefnu Finnsdóttir HK, þar sem Eva sigraði örugglega 4 - O.
Úrslit:
Í Meistaraflokki karla léku því til úrslita Davíð Jónsson KR gegn Magnúsi K. Magnússsyni Víkingi þar sem Davíð sigraði í miklum baráttuleik 4 - 3
(8 - 11, 6 -11, 11 - 4, 11 - 8, 11 -6, 4-11, 16-14).
Í Meistaraflokki kvenna léku til úrslita Eva Jósteinsdóttir Víkingi gegn Magneu J. Ólafs Víkingi.
Leikar fóru þannig að Eva sigraði 4 - 0 (11 - 5, 11 - 7, 11 - 9, 11-6)
Úrslit vorur eftirfarandi..
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
25. apríl 2010
Íslandsmót eldri flokks karla og kvenna 2010.
 |
Íslandsmót eldri flokks karla og kvenna fór fram í TBR-Íþróttahúsinu 24. apríl 2010.
Keppt var í einliðaleik og tvíliðaleik.
Úrslit voru eftirfarandi:
Tvíliðaleikur karla 40-49:
1. Sigurbjörn Sigfússon/Kristján Hjartarson Víkingur/HK
2. Bjarni Bjarnason/Vignir Kristmundsson HK
3. Stefán Birkisson/Gunnar Birkisson Víkingur/Örninn
Tvíliðaleikur karla 50 ára og eldri:
1. Ólafur Helgi Ólafsson/Árni Siemsen Örninn
2. Pétur Ó. Stephensen/Jóhann Ö. Sigurjónsson Víkingur/Örninn
3. Emil Pálsson/Sigurður Herlufsen Víkingur
4. Guðmundur Halldórsson/Aðalsteinn Eiríksson Fjölnir/
Einliðaleikur karla 40-49 ára:
1. Sigurbjörn Sigfússon Víkingur
2. Bjarni Bjarnason HK
3-4. Stefán Birkisson Víkingur
3-4.Vignir Kristmundsson HK
Einliðaleikur karla 50 ára og eldri:
1. Pétur Ó. Stephensen Víkingur
2. Árni Siemsen Örninn
3-4. Jóhann Örn Sigurjónsson Örninn
3-4. Ólafur Helgi Ólafsson Örninn
Einliðaleikur karla 50-59 ára:
1. Pétur Ó. Stephensen Víkingur
2. Guðmundur Halldórsson Fjölnir
Einliðaleikur karla 60-69 ára:
1. Árni Siemsen Örninn
2. Ólafur Helgi Ólafsson Örninn
Einliðaleikur karla 70 ára og eldri:
1. Jóhann Örn Sigurjónsson Örninn
2. Emil Pálsson Víkingur
3-4. Sigurður Herlufsen Víkingur
3-4. Aðalsteinn Eiríksson Örninn
Tvíliðaleikur kvenna 40 ára og eldri:
1. Elísabet Ólafsdóttir/Ásta Urbancic KR/Örninn
2. Hrafnhildur Sigurðardóttir/Ásta L. Sigurðardóttir Dímon
Einliðaleikur kvenna 40-49 ára:
1. Elísabet Ólafsdóttir KR
2. Hrafnhildur Sigurðardóttir Dímon
3. Ásta L. Sigurðardóttir Dímon
Einliðaleikur kvenna 50 ára og eldri:
1. Ásta Urbancic Örninn
DFG
ÁMU (uppfært 29.4.)
|
|
|
|
23. apríl 2010
Vikingur-A jafnaði metin við KR-A með sigri í kvöld í úrslitakeppni 1. deildar karla
Víkingur-A sigraði KR-A 4-2 í öðrum úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í 1.deild karla, sem fram fór í KR-heimilinu í kvöld. Þar með er staðan í úrslitakeppninni jöfn, 1-1 og fer hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn fram í TBR-húsinu þriðjudaginn 27. apríl kl. 18.00.
Úrslit einstakra leikja:
Davíð Jónsson - Daði Freyr Guðmundsson 1-3 (7-11, 11-6, 8-11, 7-11)
Ingólfur S. Ingólfsson - Magnús K. Magnússon 0-3 (2-11, 3-11, 6-11)
Kári Mímisson - Sigurður Jónsson 3-1 (11-7, 6-11, 11-6, 11-8)
Davíð/Ingólfur - Magnús/Sigurður 2-3 (11-5, 9-11, 5-11, 11-6, 5-11)
Davíð Jónsson - Magnús K. Magnússon 3-2 (5-11, 11-8, 11-8, 13-15, 15-13)
Kári Mímisson - Daði Freyr Guðmundsson 0-3 (10-12, 5-11, 7-11)
Borðtennisáhugafólk er hvatt til að fjölmenna í TBR-húsið á þriðjudaginn og fylgjast með spennandi úrslitaleik.
ÁMU
|
|
|
|
23. apríl 2010
Annar leikurinn í úrslitum 1. deildar karla verður í kvöld
 |
|
Íslandsmeistaralið KR frá síðasta keppnistímabili
|
 |
Annar leikurinn í úrslitum í 1.deild karla fer fram í kvöld, föstudaginn 23. apríl kl. 18:00 í KR heimilinu, Frostaskjóli.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum í 1. deild karla og dugar því KR-ingum sigur til að halda titlinum.
Víkingur-A sigraði KR-A í báðum viðureignum liðanna í deildinni í vetur og ætlar liðið örugglega ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Það má því búast við hörkuleik í KR-heimilinu í kvöld.
Sigri Víkingur í kvöld verður þriðji og síðasti leikurinn á heimavelli Víkings í TBR-húsinu þriðjudagskvöldið 27. apríl kl. 18.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
22. apríl 2010
Guðmundur Halldórsson sigraði tvöfalt á punktamóti Dímonar í dag
 |
Árlegt punktamót Dímonar á sumardaginn fyrsta var haldið í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli í dag. Að vanda var keppt í 1. og 2. flokki karla og kvenna. Keppendur voru nokkru færri á mótinu en undanfarin ár.
Fjölnismaðurinn Guðmundur Halldórsson kom, sá og sigraði bæði í 1. og 2. flokki karla. Í 1. flokki karla sigraði hann stigahæsta keppandann, Jóhann Rúnar Kristjánsson úr Nesi 3-0 (11-7, 11-2, 11-9) í úrslitaleik. Í undanúrslitum sigraði Guðmundur Ólaf Elí Magnússon úr Dímon 3-0 en Jóhann lagði Viðar Árnason úr ÍFR 3-0 í hinum undanúrslitunum.
Í 2. flokki karla sigraði Guðmundur Tómas Björnsson úr ÍFR 3-1 (11-6, 6-11, 11-6, 11-6) í úrslitum. Í undanúrslitum vann hann Skúla Gunnarsson úr KR 12-10 í oddalotu en Tómas vann Ívar Mána Garðarson úr Dímon 3-1 í hinum undanúrslitunum.
Í kvennaflokkum kepptu allar konurnar innbyrðis í einum riðli og voru þær allar úr Dímon. Í 1. flokki kvenna sigraði Ásta Laufey Sigurðardóttir og vann hún alla andstæðinga sína. Önnur varð Hrafnhildur Sigurðardóttir, en Ásta Laufey vann Hrafnhildi 3-0 (11-7, 11-6, 11-6). Þriðja varð Ólafía Ásbjörnsdóttir og fjórða Harpa Sif Þorsteinsdóttir.
Í 2. flokki kvenna sigraði Hrafnhildur Sigurðardóttir og vann hún alla leikina í flokknum. Önnur varð Ásta Laufey Sigurðardóttir og höfðu þær því sætaskipti frá fyrsta flokki. Hrafnhildur sigraði Ástu Laufey 3-0 (12-10, 11-7, 11-3). Þriðja varð Ólafía Ásbjörnsdóttir og fjórða Harpa Sif Þorsteinsdóttir eins og í 1. flokki kvenna.
ÁMU
|
|
|
|
21. apríl 2010
KR-A sigraði Víking-A í fyrsta leiknum í úrslitakeppni 1. deildar karla
KR-A sigraði Víking-A 4-2 í fyrsta úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í 1.deild karla, sem fram fór í TBR húsinu í kvöld.
Úrslit einstakra leikja:
Magnús K. Magnússon - Davíð Jónsson 3-0 (11-5, 11-3, 11-2)
Daði Freyr Guðmundsson - Ingólfur S. Ingólfsson 3-0 (12-10, 11-5, 11-5)
Sigurður Jónsson - Kári Mímisson 1-3 (9-11, 7-11, 14-12, 9-11)
Daði/Magnús - Davíð/Ingólfur 0-3 (14-16, 9-11, 8-11)
Magnús K. Magnússon - Ingólfur S. Ingólfsson 2-3 (11-8, 9-11, 11-6, 8-11, 11-13)
Sigurður Jónsson - Davíð Jónsson 0-3 (8-11, 8-11, 7-11)
Annar leikurinn fer fram föstudaginn 23. apríl kl. 18:00 í KR heimilinu, Frostaskjóli.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum í 1. deild karla og dugar því KR-ingum sigur í Frostaskjólinu á föstudagskvöldið til að halda titlinum.
ÁMU (uppfært 22.4.)
|
|
|
|
21. apríl 2010
Skráning í punktamót Dímonar á morgun framlengd til kl. 22 í kvöld
Punktamót Dímonar verður haldið í Íþrótamiðstöðinni á Hvolsvelli á morgun, sumardaginn fyrsta, eins og ráð var fyrir gert. Skráning hefur verið framlengd til kl. 22 í kvöld.
Fram til þessa hefur engin aska fallið á Hvolsvelli en þaðan er gott útsýni í góðu veðri til Eyjafjallajökuls. Því er tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi og fara í bíltúr á Hvolsvöll, spila borðtennis og skoða eldgosið.
Veðurspá fyrir morgundaginn er góð.
ÁMU
|
|
|
|
20. apríl 2010
Úrslitaleikirnir í 1. deild karla hefjast á morgun, 21. apríl
 |
|
Deildarmeistarar Víkings-A taka á móti Íslandsmeisturum KR-A (Mynd: Btd. Víkings)
|
 |
Fyrsti úrslitaleikur Víkings-A og KR-A um Íslandsmeistaratitilinn í 1.deild karla 2010 fer fram á morgun, miðvikudaginn 21. apríl kl. 18:00 í TBR húsinu, Gnoðavogi.
Annar leikurinn fer fram föstudaginn 23. apríl kl. 18:00 í KR heimilinu, Frostaskjóli.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum í 1. deild karla.
Borðtennisfólk er hvatt til að mæta á leikinn og hvetja sín lið.
ÁMU
|
|
|
|
17. apríl 2010
Sindri og Hrefna sigruðu á punktamóti ÍFR í dag
Punktamót ÍFR í 2. flokki karla og kvenna fór fram í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún. Mörg ár eru síðan ÍFR hélt opið mót í borðtennis en mjög hefur vantað mót í 2. flokki. Skráðir keppendur voru fjölmargir en of mikið var um að skráðir keppendur mættu ekki til leiks.
Í 2. flokki karla mættust þeir Sindri Þór Sigurðsson úr Víkingi og Pétur Gunnarsson úr KR í úrslitum. Þeir eiga báðir möguleika á að vinna sig upp í 1. flokk fyrir lok keppnistímabilsins. Sindri hafði betur í jöfnum leik, 3-1 (12-10, 11-9, 8-11, 11-9). Sindri vann Bjarna Gunnarsson úr KR í undanúrslitum 3-0 (11-5, 11-5, 11-7) en
Pétur vann Daníel Bergmann Ásmundsson úr Víkingi 3-1 (11-3, 6-11, 11-3, 12-10).
Í 2. flokki kvenna mættu tveir leikmenn til leiks. Hrefna Namfa Finnsdóttir úr HK vann öruggan 3-0 sigur á Soffíu Rúnu Jensdóttur úr ÍFR (11-1, 11-1, 11-3).
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
16. apríl 2010
Þing Borðtennissambands Íslands verður haldið 15. Maí 2010
Stjórn BTÍ sendi í gærkvöldi út boð um borðtennisþing vorið 2010.
Þingboð formanns Borðtennissambands Íslands:
-------------------------------------------
Stjórn BTÍ boðar til Borðtennisþings 2010 laugardaginn 15.maí 2010 kl. 11 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Dagskrá verður samkvæmt 6.gr. laga BTÍ, sjá einnig í meðfylgjandi skjali.
Frestur til að skila inn tillögum að málum, sem tekin verða fyrir á þinginu, rennur út 15 dögum fyrir þing. Tillögum skal skila til stjórnar BTÍ á rafrænu formi (email) á netfangið snorripall@bordtennis.is.
Úthlutun þingfulltrúa er í samræmi við tillögur sem samþykktar voru á framhaldsþingi sem haldið var 16. nóvember 2008. Úthlutunin byggist á fjölda leikmanna fullgildra borðtennisfélaga á styrkleikalista BTÍ síðustu fjögur ár. Alls verða 27 fulltrúar á þinginu vegna 456 leikmanna á styrkleikalista 31. desember 2009.
Úthlutun þingfulltrúa:
Akur 2
Dimon 4
Garpur 2
ÍFR 2
HK 4
KR 4
Víkingur 7
Örninn 2
Alls 27
Störf borðtennisþings eru:
1. Þingsettning
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
3. Staðfest lögmæti fundarins.
4. Kosning kjörbréfanefndar.
5. Fundargerð síðasta þings.
6. Afhending viðurkenninga.
7. Ávörp gesta.
8. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
9. Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
10. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
11. Reikningar borðnir undir atkvæði.
12. Fjárhagsáætlun.
13. Lagabreytingar.
14. Umræður og afgreiðsla á tillögum sem þinginu hafa borist.
15. Kostning stjórnar og varamanna.
16. Kosning skoðunarmanna reikninga.
17. Kosnir 3 menn í borðtennisdómstól og 3 til vara.
18. Val fulltrúa á íþróttaþing.
19. Önnur mál.
20. Ávarp formanns.
21. Þingslit.
Næstu daga munu upplýsingar birtast á vef BTÍ www.bordtennis.is vegna þingsins og tillögur að breytingu laga og reglugerða sem kunna að berast.
Með bestu kveðju,
Snorri Páll Einarsson
Formaður BTÍ
-------------------
ÁMU
|
|
|
|
15. apríl 2010
Úrslitakeppni KR-A og Víkings-A í 1. deild karla hefst 21. apríl
Mótanefnd hefur dagsett úrslitaleiki Víkings-A og KR-A um Íslandsmeistaratitilinn í 1.deild karla 2010.
Fyrri leikur: Víkingur A - KR-A
Miðvikudaginn 21. apríl kl. 18:00 í TBR húsinu Gnoðavogi.
Seinni leikur: KR-A - Víkingur-A
Föstudaginn 23. apríl kl. 18:00 í KR heimilinu Frostaskjóli.
Oddaleikur ef með þarf:
Þriðjudaginn 27. apríl kl. 18:00 í TBR húsinu Gnoðavogi.
Borðtennissamband Íslands hvetur fólk til að mæta á leikinn og verða vitni að þessum frábæra íþróttaviðburði um Íslandsmeistaratitilinn í 1.deild karla 2010.
kveðja,
Daði Freyr Guðmundsson
Mótanefnd BTÍ
ÁMU
|
|
|
|
15. apríl 2010
Gamlar kempur á mánudögum kl: 21:00
Á síðustu mánudagskvöldum kl: 21:00 hafa komið saman gamlar borðtenniskempur til að etja kappi í TBR húsinu Gnoðavogi.
Það eru allir velkomnir! Eldgamlir, gamlir, ungir og nýjir borðtennisspilarar. Stelpur og strákar, konur og menn. Látiði sjá ykkur!
Alltaf gaman að spila borðtennis saman og ekki slæmt að þagga niðrí gömlum hetjum sem þykjast geta eitthvað lengur :)
Mánudagskvöld kl: 21:00 í TBR.
Borðtennis að eilífu!
DFG
|
|
|
|
14. apríl 2010
Landsliðsæfingar laugardaginn 17. og sunnudaginn 18.apríl
Næstu tvær landsliðsæfingar karla verða laugardaginn 17.apríl kl. 13:00 í TBR-húsinu og sunnudaginn 18.apríl kl. 9:15 í TBR-húsinu.
Upphitun hefst stundvíslega kl. 13:00 , mæta þarf með útihlaupaskó og fatnað miðað við veður.
Forföll á æfingar eiga að tilkynnast í síma 617-4531.
Kveðja,
Ólafur Þór Rafnsson
Landsliðsþjálfari BTÍ
|
|
|
|
 |
 |
14. apríl 2010
Punktamót Dímonar verður á sumardaginn fyrsta
 |
Punktamót Dímonar verður haldið á sumardaginn fyrsta, 22. apríl 2010
í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli.
Keppt verður í 1. og 2. flokki karla og kvenna.
Keppni hefst kl. 11:00 að staðartíma á Hvolsvelli.
Skráningargjald er kr. 800,- á þátttakanda fyrir einn flokk en kr. 1200,- á þátttakanda fyrir báða flokka.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
1. flokkur karla. Keppni hefst kl. 13:15 og lýkur kl. 15:15
2. flokkur karla. Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 13:00
1. flokkur kvenna. Keppni hefst kl. 13:15 og lýkur kl. 15:15
2. flokkur kvenna. Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 13:00
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 21. apríl kl. 19:00 og skal skráningum skilað til olieli@simnet.is eða sigsva@rarik.is.
Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi.
Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.
Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Dregið verður í riðla kl 08:30 á fimmtudagsmorgni á skrifstofu Dímonar í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi skjali:
Punktamot_Dimonar_2010
ÁMU
|
|
|
|
13. apríl 2010
Íslandsmót öldunga fer fram laugardaginn 24. apríl
Íslandsmót eldri flokka karla og kvenna árið 2010 fer fram í TBR- Íþróttahúsinu laugardaginn 24. apríl 2010.
Dagskrá mótsins:
kl. 10:00 Tvíliðaleikur karla og kvenna 40-49 ára
kl. 10:00 Tvíliðaleikur karla og kvenna 50-59 ára
kl. 10:00 Tvíliðaleikur karla og kvenna 60-69 ára
kl. 10:00 Tvíliðaleikur karla og kvenna 70 ára og eldri
kl. 11:30 Einliðaleikur karla og kvenna 40-49 ára
kl. 11:30 Einliðaleikur karla og kvenna 50-59 ára
kl. 11:30 Einliðaleikur karla og kvenna 60-69 ára
kl. 11:30 Einliðaleikur karla og kvenna 70 ára og eldri
Skráningargjald er kr. 600 í einstaklingskeppnina og kr. 1.000 fyrir parið í tvíliðaleik.
Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 20. apríl kl. 18.00 í síma 8940040 (Pétur) eða á netfangið pos@itn.is.
Dregið verður í mótið í TBR- Íþróttahúsinu þriðjudaginn 20. apríl kl. 19.30.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi skjali:
Islandsmot_oldunga_2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
13. apríl 2010
Lokamóti Grand Prix frestað til 24. apríl
 |
|
Magnús Kristinn og Magnea eru stigahæst í Grand Prix stigum
|
 |
Lokamóti Grand Prix mótaraðarinnar, sem á skv. mótaskrá að vera í KR-heimilinu sunnudaginn 18. apríl, verður frestað til laugardagsins 24.apríl. Mótið fer fram í TBR-húsinu og hefst kl. 14:00, að loknu Íslandsmeistaramóti öldunga.
Samkvæmt reglugerð um Grand Prix mót vinna 8 efstu karlarnir og 8 efstu konurnar á Grand Prix mótum vetrarins sér keppnisrétt á lokamótinu. Keppt er þannig að efsti leikmaðurinn leikur á móti leikmanni nr. 8, nr. 2 leikur á móti nr. 7, o.s.frv.
Leikmenn sem hafa áunnið sér keppnisrétt á lokamótinu:
Karlar:
1. Magnús K. Magnússon, Víkingur, 18 stig
2.-5. Guðmundur E. Stephensen, Víkingur, 8 stig
2.-5. Jakob Jörgensen, Akur, 8 stig
2.-5. Magnús Finnur Magnússon, Víkingur, 8 stig
2.-5. Davíð Jónsson, KR, 8 stig
6. Sigurður Jónsson, Víkingur, 7 stig
7. Daði Freyr Guðmundsson, Víkingur, 6 stig
8. Ingólfur Ingólfsson, KR, 4 stig
Konur:
1. Magnea Ólafs, Víkingur, 18 stig
2. Eva Jósteinsdóttir, Víkingur, 8 stig
3. Eyrún Elíasdóttir, Víkingur, 7 stig
4.-6. Hrefna Finnsdóttir, HK, 4 stig
4.-6. Lilja Rós Jóhannesdóttir, Víkingur, 4 stig
4.-6. Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon, 4 stig
7. Marielle Rosiento, Víkingur, 2 stig
8. Vakant
Eingöngu 7 konur hafa tekið þátt í kvennaflokki í Grand Prix mótum vetrarins og þess vegna eru ekki 8 konur á listanum.
ÁMU (uppfært 14.4.)
|
|
|
|
11. apríl 2010
KR-A sigraði Víking-B í undanúrslitum og mætir Víkingi-A í úrslitum í 1. deild karla
 |
|
Davíð Jónsson vann alla einliðaleiki sína á móti Víkingi-B (Mynd: Ásta M. Urbancic)
|
 |
Þriðji og síðasti leikur KR-A og Víkings-B í undanúrslitum í úrslitakeppni 1. deildar karla fór fram á heimavelli Víkings í TBR-húsinu í dag. KR-ingar sigruðu örugglega 4-0 og mæta A-liði Víkings í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla. Enn eitt árið eigast því A-lið KR og A-lið Víkings við um titilinn í 1. deild karla.
Einstakir leikir fóru þannig:
Tryggvi Áki Pétursson - Kári Mímisson 2-3
Kristján Jónasson - Davíð Jónsson 0-3
Magnús Finnur Magnússon - Ingólfur Ingólfsson 1-3
Magnús Finnur/Tryggvi Áki - Davíð/Ingólfur 1-3
Nánar verður tilkynnt síðar hvenær úrslitaleikirnir fara fram.
ÁMU
|
|
|
|
11. apríl 2010
Warta tapaði öðru sinni fyrir Söderhamn í úrslitakeppni sænsku deildarinnar
Warta, lið Guðmundar Stephensen, tapaði öðru sinni fyrir Söderhamn í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í borðtennis í gær. Leiknum lauk með 3-0 sigri Söderhamn. Liðið því komið í úrslit en Warta er úr leik. Söderhamn mætir sigurvegurunum úr viðureign Eslöv og Spårvägen í úrslitum.
Guðmundur lék einn einliðaleik í gær og tapaði 2-3 (7-11, 6-11, 11-7, 11-7, 7-11) fyrir Jon Persson.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
10. apríl 2010
Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2010 birtur á vef BTÍ
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2010 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. mars var birtur hafa eftirtalin mót verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 395 leikir (þar af margir tvíliðaleikir, sem ekki telja á styrkleikalistanum):
Íslandsmót fullorðinna 6.-7. mars 2010
Íslandsmót unglinga 20.-21. mars 2010
Grand Prix mót Akurs 27. mars 2010
Síðustu umferðir í 1. deild karla 2010 og fyrstu þrír leikir í úrslitakeppninni
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalistann vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.4.2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
09. apríl 2010
Þriðji leikur KR-A og Víkings-B verður á sunnudaginn 11. apríl kl. 17
 |
Annar leikur KR-A og Víkings-B í úrslitakeppni 1. deildar karla fór fram í KR-heimilinu í dag. KR-ingar fóru með sigur af hólmi 4-2 og halda því enn í vonina um að verja Íslandsmeistaratitilinn. B-lið Víkings vann fyrsta leikinn 4-1 og því fer þriðji og síðasti leikurinn fram á sunnudaginn á heimavelli Víkings í TBR-húsinu kl. 17.00. Sigurliðið mætir A-liði Víkings í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.
Leikurinn í KR-heimilinu í kvöld var spennandi og vel leikinn.
Einstakir leikir fóru þannig:
Kári Mímisson - Tryggvi Áki Pétursson 3-1
Ingólfur Ingólfsson - Magnús Finnur Magnússon 2-3
Davíð Jónsson - Kristján Jónasson 3-1
Davíð/Ingólfur - Magnús Finnur/Tryggvi Áki 3-2
Kári Mímisson - Magnús Finnur Magnússon 2-3
Davíð Jónsson - Tryggvi Áki Pétursson 3-0
Fyrsta leiknum, sem fram fór 24. mars sl. í TBR-heimilinu lauk með sigri Víkings-B 4-1. Einstakir leikir fóru þannig:
Magnús Finnur Magnússon - Davíð Jónsson 0-3
Tryggvi Áki Pétursson - Ingólfur Ingólfsson 3-1
Kristján Jónasson - Kári Mímisson 3-2
Magnús Finnur/Tryggvi Áki - Davíð/Ingólfur 3-1
Magnús Finnur Magnússon - Ingólfur Ingólfsson 3-1
Kæru KR-inga var vísað frá dómstóli ÍSÍ þar sem hún hafði borist of löngu eftir að fyrsti leikurinn fór fram. Úrslitin í fyrsta leiknum voru því látin standa.
ÁMU (uppfært 10.4.)
|
|
|
|
09. apríl 2010
Annar leikur Warta í úrslitakeppninni í sænsku deildinni er á morgun
Annr leikur Warta og Söderhamn í úrslitakeppninni í sænsku deildinni í borðtennis er á morgun, laugardaginn 10. apríl. Leikurinn fer fram á heimavelli Warta.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á tv4sport og líka á vefnum á www.bwin.com. Leikurinn hefst kl. 12:30 að staðartíma sem er kl. 10:30 að íslenskum tíma.
Vefurinn www.bwin.com er veðmálavefur og þarf að borga fyrir aðgang að leiknum.
ÁMU
|
|
|
|
09. apríl 2010
Landsliðsæfingar laugardaginn 10. og sunnudaginn 11.apríl
Næstu tvær landsliðsæfingar karla verða laugardaginn 10.apríl kl. 13:00 í TBR-húsinu og sunnudaginn 11.apríl kl. 13:00 í TBR-húsinu. Ef það verður oddaleikur í leik KR og Víkings B þá frestast æfingin á sunnudaginn.
Upphitun hefst stundvíslega kl. 13:00 , mæta þarf með útihlaupaskó og fatnað miðað við veður.
Forföll á æfingar eiga að tilkynnast í síma 617-4531.
Kveðja,
Ólafur Þór Rafnsson
Landsliðsþjálfari BTÍ
|
|
|
|
09. apríl 2010
Stigamót Víkings fellur niður 10.apríl
Fyrirhugað Stigamót í borðtennis sem fara átti fram í TBR-Íþróttahúsinu 10. apríl
Hefur verið frestað til 1. maí.
Mótanefnd
|
|
|
|
 |
 |
08. apríl 2010
Punktamót ÍFR verður haldið laugardaginn 17. apríl
Punktamót Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík fer fram í Íþróttahúsi ÍFR, Hátúni 14, laugardaginn 17. apríl nk.
Leikið verður í 2. flokki karla og kvenna og er mótið opið öllum borðtennismönnum, fötluðum sem ófötluðum, sem hafa keppnisrétt í 2. flokki.
Keppni hefst kl 10.00 í 2. flokki karla og klukkan 14.00 í 2. flokki kvenna.
Leikið verður í riðlakeppni þar sem 2 efstu komast áfram í útsláttarkeppni.
Verðlaun verða veitt fyrir 4 efstu sætin.
Þátttökugjald er krónur 500.-
Mótanefnd: Kristján Jónasson s: 862-9155
Sigurður Sverrisson s: 897-1715
Jóhann Rúnar Kristjánsson s: 893-8947
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 15. apríl kl 20.00 og því verða skráningar að berast eigi síðar en kl. 18.00 fimmtudaginn 15. apríl.
Tekið er á móti skráningum á netföngin helgi@sp.is og johann@vsfk.is og hjá mótanefnd. Kennitala verður að fylgja skráningum svo þær teljist gildar.
Nánari upplýsingar má fá í meðfylgjandi skjali:
IFR_bordtennis
ÁMU
|
|
|
|
07. apríl 2010
Warta tapaði fyrsta leiknum í úrslitakeppninni í sænsku deildinni
Warta, lið Guðmundar Stephensen, tapaði fyrsta leik sínum í úrslitakeppni sænsku deildarinnar í borðtennis, þegar liðið tapaði 1-3 fyrir Söderhamn. Guðmundur lék einn leik og tapaði 1-3 fyrir Jon Persson (11-7, 7-11, 13-15, 6-11).
Næsti leikur liðanna fer fram 10. apríl á heimavelli Warta.
ÁMU
|
|
|
|
07. apríl 2010
Úrslitakeppni 1.deildar karla 2010 - KR - Víkingur B. 9.apríl
KR og Víkingur B eigast við í öðrum leik undanúrslitanna um Íslandsmeistaratitilinn í borðtennis í KR húsinu föstudaginn 9. apríl og hefst viðureignin kl. 18:00.
Fyrstu viðureigninni lauk með sigri Víkings 4:1 en tvo sigra þarf til að komast áfram.
Ef grípa þarf til oddaleiks, þá fer hann fram næstkomandi sunnudag 11. apríl í íþróttahúsi TBR við Gnoðarvog. .
Leikmenn KR
Kári Mímisson
Pétur Marteinn Tómasson
Ingólfur Sveinn Ingólfsson
Davíð Jónsson
Kjartan Briem
Leikmenn Víkings B:
Kristján Aðalbjörn Jónasson
Magnús Finnur Magnússon
Davíð Teitsson
Matthías Stephensen
Tryggvi Áki Pétursson
BTÍ hvetur borðtennisfólk og áhugamenn að mæta og styðja sín lið í þessum spennandi viðureignum.
Mótanefnd
|
|
|
|
06. apríl 2010
Styrkleikalisti 1. apríl birtur næstu daga en ágreiningur er um úrslit í leik Víkings-B og KR-A
Gögn úr tveimur leikjum úr 1. deild karla, sem vantaði, hafa nú borist til umsjónarmanns styrkleikalista. Því er hægt að uppfæra listann næstu daga.
Það tefur uppfærslu styrkleikalistans að ágreiningur er um úrslit úr fyrsta leik B-liðs Víkings og A-liðs KR í úrslitakeppni 1. deildar karla, sem fram fór 24. mars sl. Leiknum lauk með sigri Víkings 4-1. Með Víkingi lék Tryggvi Áki Pétursson. Hann hafði ekki leikið þrjá leiki með liðinu í deildinni en í reglugerð um úrslitakeppni kemur fram að til þess að mega leika í úrslitakeppninni þurfi að hafa leikið a.m.k. þrjá leiki með viðkomandi liði fram að úrslitakeppni. Mótanefnd BTÍ hefur úrskurðað að úrslitin í leiknum skuli standa en KR-ingar hafa mótmælt þeirri ákvörðun. Mun ÍSÍ skera úr deilumálinu á næstunni.
Skv. leikjaáætlun mótanefndar á annar leikur Víkings-B og KR-A í úrslitakeppninni að fara fram 9. apríl.
ÁMU
|
|
|
|
06. apríl 2010
Víkingur-A sigraði HK í öðrum leiknum í úrslitakeppni 1. deildar karla
A-lið Víkings sigraði HK 4-0 í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildar karla. Leikurinn fór fram á heimavelli HK í Snælandsskóla þann 25. mars.
Víkingar eru því komnir í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla. Þar mæta þeir sigurvegurunum úr leikjum KR-A og Víkings-B.
Einstakir leikir fóru þannig í viðureign HK og Víkings-A:
Vignir Kristmundsson - Sigurður Jónsson 0-3
Mihaita Barbascu - Magnús K. Magnússon 0-3
Bjarni Þ. Bjarnason - Daði Freyr Guðmundsson 0-3
Mihaita/Vignir - Magnús/Sigurður 1-3
ÁMU
|
|
|
|
04. apríl 2010
Birting styrkleikalista fyrir 1. apríl 2010 frestað um óákveðinn tíma
Birting styrkleikalista fyrir 1. apríl 2010 frestast um óákveðinn tíma þar sem umsjónarmaður styrkleikalistans hefur ekki fengið úrslit úr leik HK og Víkings-B í 10. umferð 1. deildar karla frá 17. mars. Einnig vantar úrslit úr leik HK og Víkings-A í úrslitakeppni 1. deildar karla, sem fara átti fram 25. mars, sem og úrslit úr 3. leik liðanna 29. mars, hafi sá leikur verið leikinn.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
04. apríl 2010
Blessað barnalán borðtennismanna
Á rúmlega vikutíma í mars fæddust fjögur börn borðtennismanna, sem ritstjóra er kunnugt um.
Þann 16. mars fæddist dóttir Ingólfs S. Ingólfssonar, borðtennismanns úr KR og Hjördísar, unnustu hans. Ingólfur á fyrir dótturina Iðunni.
Þann 18. mars fæddist svo sonur Sölva Rúnars Péturssonar, borðtennismanns úr Víkingi, og Evu unnustu hans. Þetta er fyrsta barn Sölva.
Þann 23. mars fæddist síðan dóttir Kjartans Briem og Erlu konu hans. Þau eiga fyrir synina Stephan og Benedikt.
Hinn 25. mars fæddist svo þriðja stúlkan í þessum borðtennisbarnahópi þegar Jón Ingi Árnason og Una unnusta hans eignuðust dóttur.
Loks má geta þess að Hjálmtýr Hafsteinsson, margfaldur Íslandsmeistari á 8. og 9. áratug síðustu aldar og kona hans Stephanie, eignuðust dótturina Jenný þann 9. febrúar. Þau eiga fyrir soninn Davíð.
Öllum foreldrunum er óskað innilega til hamingju með börnin, og vonandi líður ekki á löngu áður en þau verða farin að spila borðtennis.
ÁMU (uppfært 6.4.)
|
|
|
|
04. apríl 2010
Punktamót Víkings 4. apríl fellur niður
Punkta/stigamót Víkings. sem er á mótaskrá 4. apríl, fellur niður.
ÁMU
|
|
|
|
29. mars 2010
Landsliðsæfingar miðvikudag og laugardag
Næstu tvær landsliðsæfingar karla verða miðvikudaginn 31.mars kl. 20:00 í TBR-húsinu og laugardaginn 3.apríl kl. 09:30 í TBR-húsinu.
Upphitun hefst stundvíslega kl. 9.30, mæta þarf með útihlaupaskó og fatnað miðað við veður.
Forföll á æfingar eiga að tilkynnast í síma 617-4531.
Ólafur Rafnsson, landsliðsþjálfari
|
|
|
|
 |
 |
27. mars 2010
Jakob Jörgensen sigraði á Grand Prix móti Akurs
 |
|
Jakob Jörgensen sigraði á Akureyri
|
 |
Fyrsta Grand Prix mótið í borðtennis á Akureyri fór fram í dag. Keppt var í Síðuskóla og hafði Akur umsjón með mótinu. Til leiks var skráður 31 keppandi og voru þeirra á meðal margir af bestu borðtennismönnum landsins.
Keppni féll þó niður í kvennaflokki en eina konan á mótinu, Sunna Jónsdóttir úr Akri, keppti í karlaflokki og komst í 16 manna úrslit.
Í opnum flokki karla mættust Jakob Jörgensen úr Akri og Davíð Jónsson úr KR í úrslitum. Jakob sigraði nokkuð örugglega 4-1 (11-8, 11-5, 11-5, 8-11, 14-12).
Í undanúrslitum lagði Jakob Tryggva Áka Pétursson úr Víkingi 4-0, en Tryggvi Áki hefur tekið upp spaðann að nýju eftir nokkurt hlé.
Davíð vann Magnús Finn Magnússon úr Víkingi 4-2 í undanúrslitum og í 8 manna úrslitum lagði Davíð stigahæsta leikmann mótsins, Magnús K. Magnússon úr Víkingi 4-1.
Á mótinu var einnig leikið í B-keppni fyrir þá sem féllu úr leik í 1. umferð. Í B-keppninni röðuðu heimamenn úr Akri sér í öll verðlaunasætin. Garðar Gunnarsson sigraði Magnús B. Kristinsson 3-1 (11-9, 12-10, 6-11, 11-9) í úrslitaleiknum. Bronsverðlaun hlutu Bjarki Búason og Hreiðar Hreiðarsson.
ÁMU
|
|
|
|
27. mars 2010
Warta sigraði Falkenberg öðru sinni í úrslitakeppni sænsku deildarinnar
 |
|
Guðmundur sigraði í sínum leik á móti Falkenberg
|
 |
Warta, lið Guðmundar Stephensen, sigraði Falkenberg öðru sinni í úrslitakeppni sænsku deildarinnar í borðtennis. Warta er þar með komið í undanúrslit deildarinnar.
Warta leikur í undanúrslitum gegn Söderhamn. Fyrsti leikurinn fer fram 6. apríl.
Leikur Warta og Falkenberg í dag fór fram á heimavelli Falkenberg og lauk með 3-1 sigri Warta. Guðmundur lék við Magnus Månsson og sigraði 3-2 (11-4, 11-6, 7-11, 7-11, 6-11).
ÁMU (uppfært 28.5.)
|
|
|
|
27. mars 2010
Jóhann Rúnar þrefaldur meistari á Íslandsmóti fatlaðra í borðtennis
 |
|
Jóhann og Viðar sigruðu í sitjandi flokki (Mynd: ÍSF)
|
 |
Íslandsmót fatlaðra í borðtennis fór fram helgina 20.-21. mars í TBR húsinu. Jóhann Rúnar Kristjánsson úr Nesi sigraði í þreum flokkum, í tvíliðaleik, opnum flokki og í sitjandi flokki.
Jóhann lék með Viðari Árnasyni úr ÍFR í tvíliðaleik og mættust þeir einnig í úrslitum í sitjandi flokki.
Sunna Jónsdóttir úr Akri sigraði í kvennaflokki, Tómas Björnsson úr ÍFR í standandi flokki karla og Guðmundur Hafsteinsson úr ÍFR í flokki þroskaheftra karla.
Kolbeinn Pétursson úr Akri hafði nóg að gera þessa helgi þar sem hann keppti bæði á Íslandsmóti fatlaðra og Íslandsmóti unglinga og og nældi sér í verðlaun á báðum mótum.
ÁMU
|
|
|
|
25. mars 2010
Warta sigraði Falkenberg í fyrsta leiknum í úrslitakeppni sænsku deildarinnar
Warta, lið Guðmundar Stephensen, sigraði Falkenberg 3-1 í fyrsta leiknum í úrslitakeppni sænsku deildarinnar í borðtennis á þriðjudaginn. Guðmundur lék einn leik, gegn Lucas Rydén, og sigraði 3-1 (11-8, 7-11, 11-6, 11-7).
Næsti leikur liðanna í úrslitakeppninni fer fram laugardaginn 27. mars á heimavelli Falkenberg.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á tv4 sport í Svíþjóð. Einnig er hægt að horfa á leikinn á netinu á slóðinni www.bwin.com. Það er veðmálasíða og þarf að greiða fyrir aðgang að leiknum. Leikurinn hefst kl. 12.30 á sænskum tíma sem er kl. 11.30 á Íslandi.
ÁMU
|
|
|
|
24. mars 2010
Myndskeið frá Íslandsmótinu og flokkakeppninni í borðtennis komin á YouTube
Finnur Hrafn Jónsson hefur sett rúmlega 50 myndskeið frá Íslandsmótinu 2010 inn á YouTube. Einfaldast er að finna þau með því að nota islmot10 sem leitarorð.
Einnig eru kominn inn 14 myndskeið frá flokkakeppninni í febrúar sem hægt er að finna með leitarorðinu flk102d.
ÁMU
|
|
|
|
24. mars 2010
Jóhann Rúnar Kristjánsson tekur þátt í heimsmeistaramóti fatlaðra
Jóhann Rúnar Kristjánsson er 15. maður inn á heimsmeistaramótið í borðtennis fatlaðra, sem fram fer í Suður-Kóreu í lok október á þessu ári. Jóhann er því öruggur inn á mótið. Framundan eru því æfingabúðir og stíft þjálfunarprógramm.
ÁMU
|
|
|
|
24. mars 2010
Víkingur-A sigraði HK í fyrsta undanúrslitaleiknum í úrslitakeppni 1. deildar karla
A-lið Víkings sigraði HK 4-1 í fyrsta undanúrslitaleiknum í úrslitakeppni 1. deildar karla, sem fram fór á heimavelli Víkings í TBR húsinu þriðjudaginn 23. mars.
Magnús K. Magnússon sigraði Mihaita Barbascu og Vigni Kristmundsson, og Sigurður Jónsson vann Bjarna Þ. Bjarnason, auk þess sem Víkingur vann tvíliðaleikinn. Vignir vann eina leik HK þegar hann sigraði Daða Frey Guðmundsson.
Liðin mætast næst á heimavelli HK í Snælandsskóla fimmtudaginn 25. mars.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
22. mars 2010
Úrslitakeppni 1. deildar karla 2010
Úrslitakeppni 1.deildar karla hefst á morgun þriðjudaginn 23.mars.
Eru fjögur efstu lið 1.deildar karla sem eigast við.
Víkingur A – HK og Víkingur B – KR. Sigurvegarar í þessum leikjum mætast svo í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Er þetta í fyrsta skiptið í sögu borðtennis á Íslandi þar sem keppt verður í úrslitakeppni og þá tveir titlar í boði. Deildarmeistari og Íslandsmeistari.
Dagskrá úrslitakeppninnar:
Víkingur A - HK í TBR Íþróttahúsinu. Þriðjudaginn 23. mars klukkan 19:30
HK - Víkingur A í Snælandsskóla, Kópavogi Fimmtudaginn 25. Mars klukkan 19:30
Oddaleikur ef með þarf í TBR-Íþróttahúsinu. Mánudaginn 29. mars klukkan 19:30
Víkingur B - KR í TBR Íþróttahúsinu. Miðvikudagur 24. mars klukkan 19:30
KR - Víkingur B í KR húsinu. Föstudagur 9. apríl klukkan 18:00
Oddaleikur ef með þarf í TBR-Íþróttahúsinu. Sunnudagur 11. apríl.
Úrslitaleikurinn verður auglýstur síðar.
BTÍ hvetur borðtennisfólk og áhugamenn að mæta og styðja sín lið í þessum spennandi viðureignum.
Mótanefnd
|
|
|
|
 |
 |
22. mars 2010
Eyrún Elíasdóttir og Magnea Ólafs þrefaldir meistarar í aldursflokkum ungmenna 16-21 árs
 |
|
Eyrún og Magnea sigruðu þrefalt á Íslandsmóti unglinga (Mynd: Ólafur Ólafs)
|
 |
Keppni á Íslandsmóti unglinga var haldið áfram á sunnudeginum og þá var leikið í aldursflokkum 16-18 ára og 19-21 árs.
Kári Mímisson úr KR sigraði í einliðaleik í flokki drengja 16-18 ára. Hann vann Sindra Þór Sigurðsson úr Víkingi örugglega í úrslitum 3-0 (11-5, 11-7, 11-7). Sindri hafði lagt næststigahæsta leikmanninn í flokknum, Jóhannes Bjarka Tómasson úr KR 3-0 í undanúrslitum.
Jóhannes náði fram hefndum þegar hann lék með Markúsi Brekke Þorfinnssyni úr Víkingi í tvíliðaleik, en þeir sigruðu Sindra og Daníel Bergmann Ásmundsson úr Víkingi 3-1 (11-9, 11-8, 9-11, 11-8) í úrslitum í drengjaflokki. Markús, sem býr í Noregi, kom til landsins til að taka þátt í mótinu. Daníel og Sindri höfðu áður sigrað stigahæsta parið, Kára Mímisson og Tómas Inga Shelton úr KR í undanúrslitum.
Í flokki stúlkna 16-18 ára sigraði Eyrún Elíasdóttir úr Víkingi, en hún lagði Hörpu Sif Þorsteinsdóttur úr Dímon örugglega 3-0 (11-6, 11-6, 11-9) í úrslitum.
Þau Eyrún og Sindri hömpuðu síðan Íslandsmeistaratitlinum í tvenndarkeppni 16-18 ára unglinga, eftir 3-1 (11-6, 11-2, 5-11, 11-1) sigur á Kára Mímissyni úr KR og Elínu Björku Sigurjónsdóttur úr Dímon.
Í einliðaleik ungmenna drengja 19-21 árs mættust í úrslitum Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Davíð Teitsson úr Víkingi, og meistarinn í flokki 16-18 ára, Davíð Jónsson úr KR. Davíð Jónsson lék mjög vel og sigraði örugglega 3-0 (11-6, 11-6, 11-8) og tapaði ekki lotu á mótinu.
Þeir nafnar mættust aftur í úrslitum í tvíliðaleik og aftur hafði Davíð Jónsson betur. Hann lék með Gunnari Snorra Ragnarssyni úr KR og unnu þeir Davíð Teitsson og Pétur Martein Tómasson úr KR 3-2 (11-9, 2-11, 5-11, 11-9, 11-4) í úrslitunum.
Í úrslitum í einliðaleik ungmenna stúlkna 19-21 árs mættust Magnea Ólafs úr Víkingi og Fanney Björku Ólafsdóttir úr Dímon. Magnea sigraði örugglega 3-0 (11-2, 11-9, 11-7) og sigraði í þessum flokki þriðja árið í röð.
Þær mættust síðan aftur í úrslitum í tvíliðaleik og þá sigruðu Magnea og Eyrún Elíasdóttir úr Víkingi Dímonarkonurnar Fanneyju og Hörpu Sif Þorsteinsdóttur 3-0 (11-4, 11-8, 11-8). Þar vann Eyrún sinn þriðja meistaratitil á mótinu og Magnea vann tvíliðaleikinn þriðja árið í röð.
Í tvenndarleik 19-21 árs ungmenna vann síðan Magnea sinn þriðja titil þegar hún og Davíð Teitsson lögðu Fanneyju Björk Ólafsdóttur úr Dímon og Pétur Martein Tómasson úr KR 3-0 (11-7, 11-7, 11-8). Þau Magnea og Davíð sigruðu einnig í fyrra og vörðu því titil sinn.
Úrslit úr einstökum flokkum:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
22. mars 2010
Pétur Gunnarsson þrefaldur meistari í flokkum unglinga 15 ára og yngri
 |
|
Bergrún, Skúli, Sigrún og Pétur unnu öll þrenn verðlaun á unglingameistaramótinu (Mynd: Ásta M. Urbancic)
|
 |
Íslandsmeistaramót unglinga í borðtennis var haldið í Íþróttahúsi Kennaraháskólans helgina 20.-21. mars. Tæplega 100 keppendur voru skráðir til leiks frá Akri, Dímon, HK, KR og Víkingi. Keppni í aldursflokkum 15 ára og yngri fór fram laugardaginn 20. mars en í flokkum 16-21 árs var keppt sunnudaginn 21. mars.
Eyrún Elíasdóttir úr Víkingi, Magnea Ólafs úr Víkingi og Pétur Gunnarsson úr KR urðu þrefaldir meistarar. Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon, Davíð Jónsson úr KR og Sigrún Ebba Tómasdóttir úr KR urðu tvöfaldir meistarar.
KR-ingar unnu flesta titla eða 8 talsins, Víkingar fengu 6,5 titla, HK 3 og Dímon 1,5 titla. KR-ingar fengu einnig flest verðlaun félaga á mótinu en leikmenn frá öllum félögunum fimm, sem tóku þátt, fóru heim með verðlaun.
Fjögur systkini úr KR fengu verðlaun á mótinu, þau Guðjón Páll Tómasson, Sigrún Ebba Tómasdóttir, Jóhannes Bjarki Tómasson og Pétur Marteinn Tómasson.
Í einliðaleik hnokka 11 ára og yngri var jafn og spennandi úrslitaleikur á milli KR-inganna Ólafs Cesarssonar og Guðjóns Páls Tómassonar, sem báðir eiga ár eftir í þessum flokki. Leiknum lauk með sigri Ólafs 3-2 (11-7, 11-9, 7-11, 13-15, 11-8). KR-ingar áttu 6 af 8 leikmönnum í 8 manna úrslitum og er því framtíðin björt í Vesturbænum.
Í einliðaleik táta 11 ára og yngri var Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir úr HK eini keppandinn og varð því Íslandsmeistari. Hún keppti með telpunum í 12-13 ára flokk en tapaði fyrir þeim. Í telpnaflokki sigraði Hólmfríður Snorradóttir úr HK í fyrsta skipti, en hún varð þar með Íslandsmeistari í einliðaleik þriðja árið í röð. Önnur varð Stefanía Katrín Einarsdóttir úr KR og sigraði Hólmfríður 3-1 (5-11, 11-2, 11-7, 11-9) í úrslitaleiknum.
Í flokki pilta 12-13 ára var hart barist í úrslitum en þar mættust Íslandsmeistarinn í hnokkaflokki, Pétur Andrésson úr HK og Logi Ágústsson úr Víkingi, sem var stigahæsti leikmaðurinn. Pétur hafði sigur 3-1 (11-9, 11-9, 10-12, 11-9) í fjórum jöfnum lotum.
Í tvíliðaleik pilta 13 ára og yngri mættust þeir Pétur og Logi aftur í úrslitum. Pétur lék með Adrían Héðinssyni Gonzalez en þeir sigruðu í þessum flokki í fyrra. Logi og Jóhann Hrafn Sigurjónsson létu það ekki á sig fá og höfðu sigur í hörkuleik, 13-11 í oddalotu (11-2, 12-14, 11-8, 2-11, 13-11).
Í meyjaflokki 14-15 ára mættust þær Sigrún Ebba Tómasdóttir úr KR, ríkjandi meistari og Íslandsmeistarinn í telpnaflokki, Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon. Bergrún hafði sigur 3-1 (11-6, 11-9, 10-12, 11-6). Bergrún verður 14 ára á árinu en þrátt fyrir ungan aldur er þetta fimmti titill Bergrúnar í einliðaleik unglinga.
Þær Bergrún og Sigrún léku svo saman í tvíliðaleik meyja og sigruðu þær Hólmfríði Snorradóttur og Hrefnu Nömfu Finnsdóttur úr HK 3-0 (11-9, 12-10, 11-6) í úrslitum og vörðu titilinn sem þær unnu í fyrra.
Íslandsmeistarinn í flokki sveina 14-15 ára, Pétur Gunnarsson úr KR, varði líka titil sinn í einliðaleik frá því fyrra. Hann sigraði Andra Þór Jónsson úr Víkingi örugglega í úrslitum 3-0 (11-2, 11-6, 11-1) og fór í gegnum mótið án þess að tapa lotu. Andri hafði sigrað næst stigahæsta manninn, Skúla Gunnarsson úr KR og bróður Péturs, í undanúrslitum.
Bræðurnir Pétur og Skúli Gunnarssynir unnu tvíliðaleik sveina 14-15 ára af öryggi og sigruðu Víkingana Andra Þór Jónsson og Daníel A. Bergersen 3-0 (11-6, 11-7, 11-7) í úrslitaleiknum. Þeir töpuðu ekki lotu á mótinu. Daníel býr í Noregi og kom til landsins gagngert til að taka þátt í mótinu.
Pétur Gunnarsson vann síðan þriðju gullverðlaun sín þegar hann sigraði í tvenndarkeppni 15 ára og yngri ásamt Sigrúnu Ebbu Tómasdóttur. Þau lögðu Skúla, bróður Péturs, og Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur 3-1 (8-11, 11-2, 11-3, 11-9) í úrslitum. Pétur og Sigrún vörðu því titilinn sem þau unnu í fyrra, en þá lögðu þau líka Skúla og Bergrúnu í úrslitum.
Úrslit úr einstökum flokkum:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
19. mars 2010
Tímaáætlun fyrir Íslandsmót unglinga 20.-21. mars
 |
Hér er birt tímaáætlun fyrir Íslandsmót unglinga, sem fram fer í Íþróttahúsi Kennaraháskóla Íslands um helgina.
Dagskrá laugardagsins 20. mars:
kl. 10.00 Tvenndarleikur 15 ára og yngri - fædd 1995 og síðar
kl. 10.00 Einliðaleikur hnokka -11 ára - fæddir 1999 og síðar
kl. 11.00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára - fæddir 1997-1998
kl. 11.00 Einliðaleikur táta og telpna 13 ára og yngri - fæddar 1997 og síðar
kl. 11.00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára - fæddar 1995-1996
kl. 12.00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára - fæddir 1995-1996
kl. 14.00 Tvíliðaleikur pilta 13 ára og yngri - fæddir 1997 og síðar
kl. 14.30 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára - fæddir 1995-1996
kl. 15.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára - fæddar 1995-1996
kl. 15.30 Verðlaunaafhending fyrir alla flokka 15 ára og yngri
Dagskrá sunnudagsins 21. mars:
kl. 11.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára - fædd 1992-1994
kl. 11.00 Tvenndarkeppni 19-21 árs - fædd 1989-1991
kl. 11.30 Einliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs - fæddra 1989-1991
kl. 11.30 Tvíliðaleikur ungmenna drengja 19-21 árs - fæddra 1989-1991
kl. 12.00 Tvíliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs - fæddra 1989-1991
kl. 12.00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára - fæddra 1992-1994
kl. 12.30 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára - fæddra 1992-1994
kl. 14.00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára - fæddra 1992-1994
kl. 15.00 Verðlaunaafhending fyrir alla flokka 16-21 árs
Leikið verður í riðlum í einliðaleik og með einföldum útslætti í tvíliðaleik og tvenndarkeppni, nema þar sem pör í tvíliðaleik og tvenndarkeppni eru færri en fjögur.
Keppni fellur niður í tvíliðaleik telpna 13 ára og yngri og meyja 16-18 ára.
ÁMU
|
|
|
|
19. mars 2010
Víkingur-A er deildarmeistari í 1. deild karla
Síðasta umferð í 1. deild karla fór fram í vikunni. Í dag fór fram síðasti leikurinn þegar Víkingur-A sigraði Íslandsmeistara KR-A 4-2, og tryggðu Víkingar sér þar með deildarmeistaratitilinn í 1. deild karla.
Á miðvikudaginn vann Víkingur-B lið HK 4-1 en úrslit úr leik Víkings-C og Víkings-D frá miðvikudeginum hafa ekki borist.
B-lið Víkíngs hafnar því í 2. sæti deildarinnar og fær því heimaleikjarétt í úslitakeppninni á móti KR-A.
Víkingur-A mætir HK í úrslitakeppninni hefur líka unnið sér inn heimaleikjarétt.
ÁMU
|
|
|
|
17. mars 2010
Leikur Víkings-A og KR verður frestað fram á föstudag
Leikur Víkings-A og KR verður frestað fram á föstudaginn 19.mars kl.16.
Leikurinn verður í TBR húsinu Gnoðavogi á heimavelli Víkings.
Um er að ræða seinasta leik 1.deildar karla og enn er óljóst hver verður Deildarmeistari árið 2010.
Þetta verður þvílík spenna og góð afþreying fyrir borðtennisáhugamenn.
Allir að mæta á völlinn og styðja sín lið.
Mótanefnd
|
|
|
|
16. mars 2010
Landsliðshópur hefur verið valinn fyrir HM í borðtennis
BTÍ hefur ákveðið að senda karlalandslið á HM 2010.
Ólafur Rafnsson landsliðsþjálfari hefur valið landsliðshóp karla til æfinga fyrir Heimsmeistaramótið í liðakeppni sem haldið verður í Moskvu, Rússlandi 23. - 30. maí.
Hópinn skipa:
Guðmundur Eggert Stephensen Víkingi
Richard Magnason Víkingi
Magnús K. Magnússon Víkingi
Magnús Finnur Magnússon Víkingi
Daði Freyr Guðmundsson Víkingi
Sigurður Jónsson Víkingi
Matthías Stephensen Víkingi
Tryggvi Áki Pétursson Víkingi
Davíð Jónsson KR
Kári Mímisson KR
Kjartan Briem KR
Ingólfur Sveinn Ingólfsson KR
Fyrstu tvær landsliðsæfingarnar verða laugardaginn 20. mars og sunnudaginn 21. mars kl. 9.30 í TBR-húsinu.
Upphitun hefst stundvíslega kl. 9.30, mæta þarf með útihlaupaskó og fatnað miðað við veður.
Forföll á æfingar eiga að tilkynnast í síma 617-4531.
BTÍ
|
|
|
|
 |
 |
16. mars 2010
10. og síðasta umferðin í 1. deild karla fer fram 17. og 18. mars
 |
10. og síðasta umferðin í 1. deild karla verður leikin miðvikudaginn 17. og fimmtudaginn 18. mars.
Að lokinni umferðinni verður ljóst hvaða lið verður deildarmeistari og hvernig liðin mætast innbyrðis í úrslitakeppni fjögurra efstu liða deildarinnar.
Þá mætast tvö neðstu liðin í deildinni, Víkingur-C og Víkingur-D. Víkingur-D er þegar fallinn í 2. deild þar sem 4-0 sigur dugar þeim ekki til að fá hagstæðara hlutfall unninna og tapaðra leikja en Víkingur-C hefur. Akur-A tekur sæti Víkings-D á næsta keppnistímabili.
Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 17. mars
Víkingur-C - Víkingur-D kl. 19
HK - Víkingur-B kl. 19
Fimmtudagur 18. mars
Víkingur-A - KR-A kl. 19
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
Að lokinni 10. og síðustu umferðinni í deildinni taka fjögur efstu liðin (Víkingur-A, Víkingur-B, KR-A og HK) þátt í fyrstu úrslitakeppninni í 1. deild karla. Liðið sem hafnar í 4. sæti (HK) leikur við deildarmeistarana og lið nr. 2 og 3 mætast. Það lið kemst í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki. Liðin í 1. og 2. sæti í deildinni fá heimaleik í 1. og 3. leiknum.
ÁMU
|
|
|
|
11. mars 2010
Fundargerð frá aukaþingi BTÍ 31. janúar 2009
Í meðfylgjandi skjali er fundargerð frá aukaþingi Borðtennissambands Íslands, sem haldið var 31. janúar 2009. Þingið snerist um reglugerðarbreytingar.
Jafnframt mun stjórn BTÍ fljótlega uppfæra þær reglugerðir, sem finna má undir flipanum Lög og reglugerðir.
Fundargerðin:
Aukathing_BTI_2009_Fundargerd
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
11. mars 2010
Íslandsmót unglinga fer fram 20.-21. mars
Íslandsmót unglinga í borðtennis 2010 fer fram í Íþróttahúsi Kennaraháskólans við Stakkahlíð helgina 20.- 21. mars 2010.
Keppni hefst keppni kl. 10 á laugardag en kl. 11 á sunnudag. Allir flokkar 15 ára og yngri verða leiknir á laugardeginum, og allir flokkar 16-21 árs verða leiknir á sunnudeginum.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum drengja og stúlkna:
Einliðaleikur:
-11 ára - fædd 1999 og síðar
12-13 ára - fædd 1997-1998
14-15 ára - fædd 1995-1996
16-18 ára - fædd 1992-1994
19-21 árs - fædd 1989-1991
Tvíliðaleikur:
-13 ára - fædd 1997 og síðar
14-15 ára - fædd 1995-1996
16-18 ára - fædd 1992-1994
19-21 árs - fædd 1989-1991
Tvenndarleikur:
-15 ára - fædd 1995 og síðar
16-18 ára - fædd 1992-1994
19-21 árs - fædd 1989-1991
Dagskrá laugardags: Byrjað verður á tvenndarleik 15 ára og yngri og einliðaleik hjá hnokkum 11 ára og yngri.
Klukkan 11 er áætlað að hefja keppni í einliðaleik í öllum öðrum flokkum 15 ára og yngri.
Seinna um daginn verður keppt í tvíliðaleik.
Dagskrá sunnudags:
Tvenndarkeppni 16-18 ára
Tvíliðaleikur drengja og stúlkna 16-18 ára
Einliðaleikur drengja og stúlkna 16-18 ára
Tvenndarkeppni 19-21 árs
Tvíliðaleikur drengja og stúlkna 19-21 árs
Einliðaleikur drengja og stúlkna 19-21 árs
Leikið verður í riðlum í einliðaleik og með einföldum útslætti í tvíliðaleik og tvenndarkeppni.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 18. mars kl. 20 og skal skráningum skilað í tölvupósti til Kjartans Briem á netfangið kjartan@vodafone.is eða á Kristján Viðar Haraldsson viddi@greifarnir.is.
Einnig má hringja í gsm. 6699800 (Kjartan) eða 8200007 (Viddi). Kennitala leikmanns verður að fylgja skráningu, sbr. keppnisreglur BTÍ.
Skáningargjald er kr. 600 í einstaklingskeppnina og kr. 700 fyrir parið í tvíliðaleik.
Dregið verður í mótið í herbergi BTÍ föstudaginn 19. mars kl. 11:30. Nánari tímasetning einstakra flokka mun liggja fyrir að loknum drætti og verður birt á vef BTÍ, www.bordtennis.is.
Nánari upplýsingar:
Islandsmot_unglinga_BTI_2010
ÁMU
|
|
|
|
09. mars 2010
Grand Prix mót Akurs verður haldið 27. mars
Akur heldur fyrsta Grand Prix mótið sem fram hefur farið á Akureyri laugardaginn 27. mars. Mótið fer fram í Íþróttahúsi Síðuskóla. Leikið verður í opnum flokki karla og kvenna. Einnig verður leikið í B-flokki fyrir þá sem tapa í 1. umferð.
Leikinn verður einfaldur útsláttur, fjórar lotur unnar.
Dagskrá:
kl. 10.00 Opinn flokkur karla
kl. 12.00 Opinn flokkur kvenna
Mótsgjald er 1000 kr.
Þátttökutilkynningum skal skilað í síðasta lagi 22.mars kl. 18.
Skráningum skal skilað til Elvars Thorarensen á netfangið eth@brimhf.is, eða til Helga Þórs Gunnarssonar, á netfangið helgi@sp.is.
Skráningum þarf að fylgja kennitala til að skráning teljist gild!
Nánari upplýsingar:
Grand_Prix_mot_Akurs2010
ÁMU
|
|
|
|
09. mars 2010
Jan-Ove Waldner sænskur meistari í 9. sinn
Helgina 6.-7. mars fóru fram meistaramót í borðtennis í öðrum Evrópulöndum, eins og á Íslandi.
Í Svíþjóð varð Jan-Ove Waldner sænskur meistari í einliðaleik í 9. sinn. Hann er 44 ára og það eru 27 ár síðan hann varð meistari í fyrsta skipti. Waldner, sem margir telja besta borðtennismann sögunnar, sigraði Pär Gerell 4-0 í úrslitum, en flestir töldu Gerell vera sigurstranglegan á mótinu.
Annar jafnaldri Waldners, Jörgen Person, tapaði í undanúrslitum fyrir Gerell.
Þeir Person og Waldner léku með sænska landsliðinu hér á landi á Norðurlandamótinu í borðtennis árið 1983, og voru þá ungir og efnilegir leikmenn.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
07. mars 2010
Guðmundur og Lilja eru Íslandsmeistarar í meistaraflokki 2010
 |
|
Guðmundur og Lilja sigruðu í einliðaleik í meistaraflokki (Mynd: Ásta M. Urbancic)
|
 |
Keppni á Íslandsmóti fullorðinna í borðtennis 2010 lauk í TBR-húsinu í dag. Leikið var til úrslita í 8 flokkum en keppni í tvenndarkeppni lauk í gær. Víkingar urðu sigursælir á mótinu og sigruðu í öllum 5 meistaraflokkunum. Dímon sigraði í tveimur flokkum og KR og Nes í einum flokki. Víkingur fékk einnig flest verðlaun, 18 talsins, KR 8,5, Dímon 6,5, Nes ein og HK ein.
Guðmundur Stephensen úr Víkingi hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni á Íslandsmótunum í borðtennis, þegar hann sigraði þrefalt enn eitt árið. Hann sigraði í einliðaleik í meistaraflokki 17. árið í röð og í 15. skipti bæði í tvíliðaleik og tvenndarkeppni.
Endurkoma þeirra Evu Jósteinsdóttur og Lilju Rósar Jóhannesdóttur úr Víkingi setti svip sinn á mótið og hirtu þær alla titlana í meistaraflokki kvenna. Þær unnu hvor um sig tvenn gullverðlaun um helgina til viðbótar við meistaratitilinn í 1. deild kvenna í febrúar.
Guðmundur Stephensen sigraði í einliðleik í meistaraflokki karla án þess að tapa lotu á mótinu. Hann vann Magnús Finn Magnússon úr Víkingi 4-0 í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitnum sigraði Magnús K. Magnússon úr Víkingi félaga sinn Sigurð Jónsson 4-1. Þeir Guðmundur og Magnús Kristinn mættust í úrslitum annað árið í röð og sigraði Guðmundur Magnús 4-0 (11-5, 11-7, 11-7, 11-9).
Í einliðaleik í meistaraflokki kvenna vann Íslandsmeistarinn Guðrún G. Björnsdóttir úr KR hina efnilegu Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur úr Dímon 4-0 í undanúrúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum var hörkukeppni á milli Víkinganna Evu Jósteinsdóttur og Lilju Rósar Jóhannesdóttur, sem lauk með 4-2 sigri Lilju, eftir að Eva hafði unnið fyrstu tvær loturnar. Í úrslitunum byrjaði Guðrún betur og var yfir alla fyrstu lotuna en Lilja náði að komast yfir í fyrsta skipti 10-9 og vann 11-9. Eftir það hafði Lilja undirtökin í leiknum og vann næstu þrjár lotur 11-8, 11-6 og 12-10 og þar með leikinn. Þetta var níundi Íslandsmeistaratitill Lilju í einliðlaleik en hún vann síðast 2008 og lagði þá einnig Guðrúnu í úrslitum.
Guðmundur Stephensen og Magnús K. Magnússon léku saman í tvíliðaleik karla, þar sem unnu öruggan 3-0 (11-1, 11-5, 11-8) sigur í úrslitaleiknum á móti Ingólfi S. Ingólfssyni úr KR og Magnúsi Finni Magnússyni úr Víkingi. Þetta var þriðja árið í röð sem Guðmundur og Magnús sigra í tvíliðaleik. Hinir ungu KR-ingar Davíð Jónsson og Kári Mímisson urðu að lúta í lægra haldi fyrir Guðmundi og Magnúsi í undanúrslitum en hin bronsverðlaunin hlutu Víkingarnir Daði Freyr Guðmundsson og Sigurður Jónsson.
Í tvíliðaleik kvenna átti Guðrún G Björnsdóttir titil að verja. Hún lék nú með Ragnhildi Sigurðardóttur úr Víkingi en þær sigruðu í þessum flokki árið 2008. Þær lögðu Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur úr Dímon og Magneu Ólafs úr Víkingi 3-1 í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum sigruðu Eva Jósteinsdóttir og Lilja Rós Jóhannesdóttir HK stúlkurnar Hólmfríði Snorradóttur og Hrefnu Finnsdóttur 3-0. Í úrslitunum unnu Eva og Lilja nokkuð öruggan 3-0 (11-9, 11-8, 11-5) sigur á þeim Guðrúnu og Ragnhildi. Þetta var áttundi titill þeirra í tvíliðaleik en þær unnu áður árin 1994-2000. Auk þess hefur Eva unnið einu sinni og Lilja þrisvar með öðrum spilurum.
Í 1. flokki karla sigraði Jóhann Rúnar Kristjánsson úr Nesi Hlöðver Steina Hlöðversson úr KR 3-1 (11-5, 11-3, 9-11, 11-?). Þetta var annað árið í röð sem þessir leikmenn mætast í úrslitum og aftur sigraði Jóhann. Hann varði þar með titilinn frá 2009. Árangur Jóhanns er sérstaklega athyglisverður þar sem hann er bundinn við hjólastól.
Í 1. flokki kvenna vann hin 13 ára gamla Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon sigur á Magneu Ólafs úr Víkingi, fyrrum meistara í flokknum árin 2003-2006. Leikurinn var jafn og spennandi og hafði Bergrún sigur í oddalotu 3-2 (11-9, 8-11, 11-13, 11-8, 11-7). Bergrún heldur því sigurgöngu sinni á Íslandsmótum áfram en hún sigraði í 2. flokki kvenna í fyrra.
Í 2. flokki karla sigraði Tómas Ingi Shelton úr KR annað árið í röð. Hann sigraði elsta keppanda mótsins, Emil Pálsson úr Víkingi 3-1 (9-11, 11-6, 11-8, 11-9) í úrslitunum. Emil verður áttræður í sumar en margir yngri leikmenn máttu lúta í lægra haldi fyrir honum að þessu sinni.
Í 2. flokki kvenna hirtu Dímonarkonur öll verðlaunin. Hrafnhildur Sigurðardóttir sigraði Ástu Laufeyju Sigurðardóttur í úrslitum 3-1 (11-8, 11-8, 4-11, 11-7).
Úrslit úr einstökum flokkum:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
06. mars 2010
Guðmundur og Eva sigruðu í tvenndarkeppni á Íslandsmótinu 2010
 |
|
Eva og Guðmundur sigruðu í tvenndarkeppni
|
 |
Fyrri keppnisdagur á Íslandsmótinu í borðtennis 2010 fór fram í dag í TBR-húsinu við Gnoðarvog. Keppt var til úrslita í tvenndarkeppni en í hinum flokkunum ráðast úrslitin á morgun og hefst keppni kl. 11.30. Úrslitaleikir í meistaraflokki hefjast kl. 14 og verðlaunaafhending er áætluð kl. 14.30. Dagskrá mótsins má sjá í frétt frá 27. febrúar.
Guðmundur Stephensen og Eva Jósteinsdóttir úr Víkingi urðu Íslandsmeistarar í tvenndarkeppni eftir sigur á Sigurði Jónssyni og Lilju Rós Jóhannesdóttur úr Víkingi 3-0 (11-7, 11-3,11-6) í úrslitum. Þetta var jafnframt 15. titill Guðmundar í tvenndarkeppni en í 6. sinn sem Guðmundur og Eva vinna þennan titil. Þau sigruðu árin 1995-1996 og 1998-2000. Í 3.-4. sæti höfnuðu Kjartan Briem úr KR og Ragnhildur Sigurðardóttir úr Víkingi og Magnús K. Magnússon og Magnea Ólafs úr Víkingi.
Á morgun er leikið til úrslita í öðrum flokkum.
Í meistaraflokki karla mætir Íslandsmeistarinn Guðmundur Stephensen úr Víkingi sigurvegaranum úr leik Ingólfs Ingólfssonar úr KR og Magnúsar Finns Magnússonar úr Víkingi. Í hinum undanúrslitunum leikur Sigurður Jónsson úr Víkingi við sigurvegarann úr leik Víkinganna Daða Freys Guðmundssonar og Magnúsar K. Magnússonar. Ritstjóri hefur ekki úrslit úr þessum leikjum í 8 manna úrslitum.
Í meistaraflokki kvenna mætast í undanúrslitum annars vegar núverandi Íslandsmeistari Guðrún G. Björnsdóttir úr KR og Íslandsmeistarinn í 2. flokki kvenna Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon. Í hinum leiknum keppa Víkingskonurnar Eva Jósteinsdóttir, sem varð síðast Íslandsmeistari 1997 og Lilja Rós Jóhannesdóttir, sem varð síðast meistari 2008.
Í tvíliðaleik karla mætast í undanúrslitum Íslandsmeistarnir Guðmundur Stephensen og Magnús K. Magnússon úr Víkingi og KR-ingarnir Davíð Jónsson og Kári Mímisson. Í hinum undanúrslitunum leika Daði Freyr Guðmundsson og Sigurður Jónsson úr Víkingi á móti Ingólfi Ingólfssyni úr KR og Magnúsi Finni Magnússyni úr Víkingi.
Í tvíliðaleik kvenna leika Eva Jósteinsdóttir og Lilja Rós Jóhannesdóttir úr Víkingi við Hólmfríði Snorradóttur og Hrefnu Finnsdóttur úr HK. Þær Eva og Lilja unnu titilinn saman árin 1994-2000. Í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon og Magnea Ólafs úr Víkingi og Guðrún G. Björnsdóttir úr KR og Ragnhildur Sigurðardóttir úr Víkingi. Þær Guðrún og Ragnhildur sigruðu í tvíliðaleiknum árið 2008.
Að auki fara fram úrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og kvenna.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
05. mars 2010
Íslandsmótið í borðtennis fer fram um helgina
 |
|
Íslandsmeistarar í einliðaleik í meistaraflokki 2009
|
 |
Um 100 keppendur eru skráðir til leiks á Íslandsmóti fullorðinna í borðtennis, sem fram fer í TBR-húsinu um helgina. Keppendurnir koma frá 9 félögum: Akri, Dímon, Erninum, Fjölni, HK, ÍFR, KR, Nes og Víkingi.
Keppni hefst með tvenndarkeppni kl. 11 laugardaginn 6. mars og lýkur með verðlaunaafhendingu, sem áætluð er kl. 14.30 sunnudaginn 7. mars.
Nánari dagskrá er að finna í fréttum frá 24. og 27. febrúar.
Í karlaflokki mun athyglin beinast að Guðmundi Stephensen, sem freistar þess að vinna titilinn í meistaraflokki karla 17. árið í röð. Allir sterkustu leikmenn landsins munu freista þess að sigra Guðmund nema hvað Kjartan Briem mun ekki keppa í einliðaleik. Guðmundur hefur sigrað í tvíliðaleik á hverju ári frá 1995 nema árið 2007 eða í 14 skipti alls, og í tvenndarkeppni á hverju ári frá 1995 nema árið 1997, einnig í 14 skipti.
Í kvennaflokki má búast við spennandi keppni, þar sem Guðrún G. Björnsdóttir, Íslandsmeistarinn frá 2009 mun m.a. etja kappi við þær Evu Jósteinsdóttur og Lilju Rós Jóhannesdóttur, sem báðar hafa unnið titilinn í einliðaleik í meistaraflokki oftar en einu sinni.
Ritstjóra er aðeins kunnugt um einn Íslandsmeistara frá 2009 sem ekki mun mæta til leiks, en það er Fríður Rún Sigurðardóttir úr KR, sem sigraði í tvíliðaleik og 1. flokki kvenna. Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon, sem sigraði í 2. flokki kvenna í fyrra hefur nú unnið sér sæti í 1. flokki og getur því ekki varið titilinn.
ÁMU (uppfært 6.3.2010)
|
|
|
|
04. mars 2010
Úrslit úr 9. umferð í 1. deild karla
Ritstjóra hafa borist úrslit úr 9. umferð í 1. deild karla, sem fram fóru í gær, 3. mars og í kvöld, 4. mars. Úrslitin voru þessi:
Víkingur-A - Víkingur-D 4-0
Víkingur-C - Víkingur-B 0-4
KR-A - HK 4-0
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
03. mars 2010
Warta komst í úrslitakeppnina í sænsku deildinni eftir sigur á Halmstad
 |
Síðasta umferðin í sænsku úrvalsdeildinni fór fram í kvöld. Hörð barátta var um síðustu sætin í úrslitakeppninni og því fóru allir leikirnir fram samtímis.
Warta, lið Guðmundar Stephensen, tryggði sér sæti í 6 liða úrslitakeppni með 3-2 sigri á Halmstad. Guðmundur vann sinn einliðaleik á móti Wang Yin Zhou 2-1 (11-8, 12-14, 11-5). Hann og Robert Nilsson töpuðu síðan tvíliðaleiknum 1-2 (7-11, 11-8, 4-11) á móti Fredrik Håkansson og Wang Yin Zhou. Það kom þó ekki að sök þar sem sigurinn var þegar í höfn.
Warta hafnaði í 6. sæti í deildinni með 41 stig eftir 18 umferðir, stigi meira en Rekord, sem varð í 7. sæti. Meistarar Eslöv urðu langefstir með 65 stig.
Warta mætir Falkenberg í úrslitakeppninni. Liðin mætast fyrst á heimavelli Warta þann 23. mars, en síðan á heimavelli Falkenberg 27. mars. Komi til þriðja leiksins verður hann á heimavelli Falkenberg 30. mars.
Guðmundur hefur leikið 8 einliðaleiki fyrir Warta í vetur, unnið 5 en tapað 3. Hann hefur næsthæsta vinningshlutfall leikmanna Warta, en efstur er Chang Jiang Hong sem hefur unnið 24 leiki og tapað 10.
ÁMU
|
|
|
|
02. mars 2010
9. umferð í 1. deild karla fer fram 3. og 4. mars
9. og næstsíðasta umferðin í 1. deild karla verður leikin miðvikudaginn 3. og fimmtudaginn 4. mars.
Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 3. mars
Víkingur-A - Víkingur-D kl. 19
Víkingur-C - Víkingur-B kl. 19
Fimmtudagur 4. mars
KR - HK kl. 19
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
Að lokinni 10. og síðustu umferðinni í deildinni taka fjögur efstu liðin (Víkingur-A, Víkingur-B, KR-A og HK) þátt í fyrstu úrslitakeppninni í 1. deild karla.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
27. febrúar 2010
Styrkleikalisti 1. mars 2010 birtur á vef BTÍ
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2010 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. febrúar var birtur hafa eftirtalin mót verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 267 leikir:
Flokkakeppni unglinga 13.-14. febrúar 2010
2. deild karla 14. febrúar 2010
1. deild kvenna 13.-19. febrúar 2010
Grand Prix mót Borðtennisdeildar Víkings og Rafkaups 20. febrúar 2010
Leikir úr 7. og 8. umferð í 1. deild karla
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalistann vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.3.2010
ÁMU
|
|
|
|
27. febrúar 2010
Dagskrá Íslandsmótsins sunnudaginn 7. mars
Íslandsmót fullorðinna í borðtennis fer fram í TBR-húsinu helgina 6.–7. mars 2010.
Hér fyrir neðan er dagskrá mótsins en dagskrá beggja daga er að finna í viðhengi.
Dagskrá sunnudaginn 7. mars:
Kl. 11:30 Úrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og kvenna
Kl. 12:00 Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna
Kl. 12:30 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna
Kl. 13:15 Undanúrslit í meistaraflokki karla og kvenna
Kl. 14:00 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla kvenna
Kl. 14:30 Verðlaunaafhending
Nánari upplýsingar:
Islandsmotid_2010_plakat.pdf
ÁMU
|
|
|
|
26. febrúar 2010
Punktamót Víkings 27. febrúar fellur niður
Punktamót Víkings, sem er á mótaskrá 27. febrúar, fellur niður.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
24. febrúar 2010
Íslandsmótið í borðtennis verður haldið 6.-7. mars 2010
Athugið að tímasetningar og verð fyrir þátttöku í mótinu hafa breyst frá því að fréttin var fyrst birt 24. febrúar! Einnig er dagsetning dráttar önnur en fyrst var auglýst!
Íslandsmót fullorðinna í borðtennis fer fram í TBR-húsinu helgina 6.–7. mars 2010.
Keppni hefst með tvenndarkeppni á laugardeginum kl. 11 og verður leikið til úrslita kl. 12.30.
Í öðrum meistaraflokkum verður leikið fram að undanúrslitum á laugardeginum en fram að úrslitum í 1. og 2. flokki.
Dagskrá laugardaginn 6. mars:
Tvenndarkeppni hefst kl. 11:00 – úrslitaleikur kl. 12:30
Tvíliðaleikur karla hefst kl. 12:00, leikið fram að undanúrslitum
Tvíliðaleikur kvenna hefst kl. 13:00, leikið fram að undanúrslitum
Meistaraflokkur kvenna hefst kl. 14:00, leikið fram að undanúrslitum
Meistaraflokkur karla hefst kl. 14:00, leikið fram að undanúrslitum
1. flokkur karla hefst kl. 15:00, leikið fram að úrslitaleik
1. flokkur kvenna hefst kl. 15:00, leikið fram að úrslitaleik
2. flokkur karla hefst kl. 16:00, leikið fram að úrslitaleik
2. flokkur kvenna hefst kl. 16:00, leikið fram að úrslitaleik
Skráningargjald er kr. 800 í einstaklingskeppnina og kr. 1.000 fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni.
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 3. mars kl 18.00 og skal skráning hafa borist skriflega til BTÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal eða á netfangið pos@itn.is fyrir þann tíma.
Dregið verður í mótið í herbergi BTÍ miðvikudaginn 3. mars kl. 21.00.
Nánari upplýsingar:
Islandsmotid_2010_nytt.pdf
ÁMU (uppfært 27.2.2010)
|
|
|
|
 |
 |
20. febrúar 2010
Guðmundur og Eva sigruðu á Grand Prix móti Víkings og Rafkaups
 |
|
Eva og Guðmundur sigruðu á Rafkaupsmótinu (Mynd: Borðtennisdeild Víkings)
|
 |
Þriðja Grand Prix mót vetrarins, Grand Prix mót Víkings og Rafkaups, fór fram í TBR-húsinu í dag. Þátttaka var góð en auk opins flokks karla og kvenna var keppt í B-keppni fyrir þá karla sem féllu úr leik í 1. umferð.
Guðmundur Stephensen úr Víkingi sigraði örugglega í karlaflokki en þetta er fyrsta mótið sem Guðmundur tekur þátt í hér á landi í vetur. Guðmundur fór í gegnum mótið án þess að tapa lotu. Í úrslitaleiknum atti hann kappi við hinn 18 ára Davíð Jónsson úr KR og sigraði 4-0 (11-3, 11-2, 11-8, 11-3). Davíð kom á óvart á mótinu og sigraði bæði Víkingana Magnús K. Magnússon, næst stigahæsta manninn og Magnús Finn Magnússon, sem var raðað númer fjögur. Magnús Finnur hlaut brons, sem og Sigurður Jónsson úr Víkingi.
Í kvennaflokki hefur endurkoma Víkingskvennanna Evu Jósteinsdóttur og Lilju Rósar Jóhannesdóttur vakið athygli. Lilja keppti á Íslandsmótinu 2008 en Eva hefur ekki keppt hér á landi síðan árið 1999, enda búsett erlendis.
Þær Eva og Lilja mættust í úrslitum á mótinu í dag og sýndu að þær hafa engu gleymt frá fyrri tíð. Í dag hafði Eva betur og sigraði Lilju 4-1 (4-11, 11-5, 11-4, 11-5, 11-8). Magnea Ólafs úr Víkingi og Hrefna Namfa Finnsdóttur úr HK urðu í 3.-4. sæti.
Lilja Rós Jóhannesdóttir sigraði síðan í B-keppninni en hún lagði Sigurð Herlufsen úr Víkingi í úrslitum. Gunnar Snorri Ragnarsson úr KR og Pétur Stephensen úr Víkingi fengu brons.
ÁMU (uppfært 21.2.2010)
|
|
|
|
 |
 |
20. febrúar 2010
Víkingur sigraði Dímon öðru sinni í úrslitakeppni 1. deildar kvenna og er Íslandsmeistari
 |
|
Íslandsmeistarar Víkings í 1. deild kvenna (Mynd: Borðtennisdeild Víkings)
|
 |
Víkingur vann Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna þegar Víkingskonurnar Eva Jósteinsdóttir og Lilja Rós Jóhannesdóttir sigruðu Dímonarkonurnar Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur og Hrafnhildi Sigurðardóttur í 2. leiknum í úrslitakeppni kvenna í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli í gærkvöldi. Þær endurheimtu því titilinn sem Víkingur vann síðast árið 2007.
Sigur Víkings var öruggur og unnu Víkingskonur 3-0. Eva Jósteinsdóttir úr Víkingi sigraði Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur úr Dímon 3-0 (11-5, 11-2, 11-2). Þá sigraði Lilja Rós Jóhannesdóttir úr Víkingi Dímonarkonuna Hrafnhildi Sigurðardóttur 3-0 (11-4, 11-4, 11-2). Víkingskonurnar unnu tvíliðaleikinn einnig 3-0 (11-2, 11-2, 11-3).
Að sögn viðstaddra mætti fjölda áhorfenda til að horfa á úrslitaleikinn á Hvolsvelli og var skemmtileg umgjörð um leikinn af hálfu heimaliðsins.
ÁMU (uppfært 26.2.)
|
|
|
|
18. febrúar 2010
Úrslit úr 8. umferð í 1. deild karla
Úrslit úr 8. umferð í 1. deild karla, sem leikin var miðvikudaginn 17. febrúar, voru þessi:
Víkingur-C – Víkingur-A 0-4
Víkingur-B - KR 4-1
Víkingur-D - HK 0-4
Einnig hafa borist úrslit úr síðasta leiknum í 7. umferð:
Víkingur-B - Víkingur-D 4-0.
Íslandsmeistarar KR töpuðu öðrum leik sínum í deildinni þegar þeir töpuðu fyrir Víkingi-B. Barátta þriggja efstu liðanna í deildinni er því jöfn og spennandi.
Staðan í deildinni eftir 8. umferðir er sú að Víkingur-A er í efsta sæti með 14 stig. Víkingur-B og KR eru í 2.-3. sæti með 12 stig og HK er í 4. sæti með 8 stig. Þessi fjögur lið munu taka þátt í fyrstu úrslitakeppninni í 1. deild karla.
Annað hvort Víkingur-C eða Víkingur-D munu falla í 2. deild karla, en Akur tekur sæti þeirra í 1. deild á næsta ári.
ÁMU
|
|
|
|
17. febrúar 2010
Grand Prix mót Rafkaups laugardaginn 20. febrúar
Grand Prix mót Rafkaups hf fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 20. febrúar 2010 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings. Keppt verður í Opnum flokkum karla og kvenna. Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar. Leikið verður einnig í B - keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í Opnum flokki karla og kvenna.
Þátttökugjald í mótið er kr. 600-
Dómarar: Pétur Ó. Stephensen og Ólafur Ólafs.
Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Magnús F. Magnússon,
Ólafur Ólafs og Matthías Stephensen.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 20. febrúar:
kl. 14:00 Opinn flokkur karla
kl. 14:30 Opinn flokkur kvenna
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 18. febrúar 2010
klukkan 18:00, en dregið verður í mótið
í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/pos@itn.is,
Matthías Stephensen s-8692962, Magnús F. Maganússon s-8690340
Nánari upplýsingar:
Grand_prix_Rafkaups_2010
Uppfært 18.2.2010
|
|
|
|
16. febrúar 2010
8. umferð í 1. deild karla verður leikin 17. febrúar
8. umferð í 1. deild karla verður leikin miðvikudaginn 17. febrúar.
Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 17. febrúar
Víkingur-C – Víkingur-A kl. 18
Víkingur-B - KR kl. 19
Víkingur-D - HK kl. 19
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
Staðan í deildinni eftir 7. umferðir er sú að KR-A og Víkingur-A hafa 12 stig eftir 7 leiki. Víkingur-B er í 3. sæti með 8 stig eftir 6 leiki. HK er síðan í 4. sæti með 6 stig eftir 7 leiki. Það stefnir í að þessi fjögur lið muni taka þátt í fyrstu úrslitakeppninni í 1. deild karla.
ÁMU
|
|
|
|
16. febrúar 2010
Warta sigraði Frej Växsjö í næstsíðasta leik sínum í sænsku deildinni
Warta, lið Guðmundar Stephensen, sigraði Frej Växsjö í sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis á mánudagskvöldið. Leiknum lauk með öruggum sigri Warta 4-1. Warta færðist því skrefi nær í baráttunni um sjötta sætið í deildinni, sem tryggir sæti í úrslitakeppni deildarinnar.
Guðmundur sigraði Magnus Wahlgren 2-1 (6-11, 11-7, 11-8) í einliðaleik. Hann sigraði síðan tvíliðaleik í með Robert Nilson gegn Andreas Törnkvist og Joachim Bachstätter. Leiknum lauk með 2-0 (13-11, 11-5) sigri Wartamanna.
Síðasta umferðin í deildinni fer fram þann 3. mars og leikur Warta þá við Halmstad á útivelli.
ÁMU
|
|
|
|
14. febrúar 2010
Víkingur sigraði Dímon í fyrsta leiknum í úrslitakeppni 1. deildar kvenna
Fyrsti leikurinn í úrslitakeppni 1. deildar kvenna fór fram í TBR-húsinu í dag. Leikurinn var heimaleikur Víkings, sem varð í efsta sæti í deildarkeppni kvenna í gær.
Leiknum lauk með öruggum sigri Víkingskvenna, sem lögðu Dímon 3-0. Eva Jósteinsdóttir vann Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur 3-0 og Lilja Rós Jóhannesdóttir vann Hrafnhildi Sigurðardóttur sömuleiðis 3-0. Víkingskonurnar enduðu svo á 3-0 sigri í tvíliðaleik, og standa vel að vígi í úrslitakeppninni.
Áformað er að annar leikurinn, sem jafnframt er heimaleikur Dímonar, fari fram á Hvolsvelli á föstudaginn. Með sigri tryggja Víkingskonur sér Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna, en vinni Dímonarkonur verður úrslitaleikur á heimavelli Víkings.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
14. febrúar 2010
Akurssigur í 2. deild karla og titlar til KR og Dímonar/Víkings í 19-21 árs flokki
 |
|
Liðin sem léku til úrslita í 2. deild karla (Mynd: Ásta M. Urbancic)
|
 |
A-lið Akurs sigraði í 2. deild karla, sem fram fór í TBR-húsinu í dag og leikur því í fyrsta skipti í 1. deild á næsta keppnistímabili. Einnig var keppt í elstu flokkunum í flokkakeppni unglinga, þ.e. í flokki 19-21 árs ungmenna. KR varð Íslandsmeistari í drengjaflokki og Dímon/Víkingur í stúlknaflokki.
Í 2. deild karla voru 10 lið mætt til leiks frá Akri, Erninum, HSK, KR og Víkingi. Mátti bæði sjá gamla kunningja sem sumir hverjir höfðu tekið upp spaðann að nýju, sem og yngri leikmenn.
Leikið var í tveimur riðlum og síðan leikið í kross upp úr riðlunum. Í undanúrslitum mættust annars vegar KR-B og Víkingur-E. Sigraði KR-B 3-1 í jöfnum leik. Í hinum undanúrslitunum mættust Akur-A og KR-C. Þar sigraði Akur-A örugglega 3-0.
Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi til enda og lauk með 3-2 sigri Akursmanna (Helga Þórs Gunnarssonar, Jakobs Jörgensen og Markusar Meckl), eftir að KR-B (Einar Geirsson, Gunnar Snorri Ragnarsson og Hlöðver Steini Hlöðversson) hafði náð 2-0 forystu. Munaði þar mestu um Jakob, sem vann alla leiki sína í dag.
Það verður væntanlega lyftistöng fyrir borðtennis á Akureyri að fá leiki í 1. deild karla til bæjarins.
Í flokki ungmenna stúlkna 19-21 árs voru tvö lið skráð til leiks. Sameinað lið frá Dímon (Bergrún Linda Björgvinsdóttir) og Víkingi (Magnea Ólafs) vann lið Dímonar (Birta Rós Antonsdóttir og Fanney Ólafsdóttir) 3-0 í úrslitaleik. Bergrún er aðeins 13 ára og Birta lék líka upp fyrir sig í aldri. Þetta var jafnframt þriðji sigur Magneu í röð í þessum flokki.
Aðeins var eitt lið skráð til leiks í flokki ungmenna drengja 19-21 árs, lið KR. Þeir Davíð Jónsson og Gunnar Snorri Ragnarsson fengu því Íslandsmeistaratitilinn án þess að leika um hann. Davíð vann titilinn einnig í fyrra.
Ítarleg úrslit:
ÁMU (uppfært 15.2.)
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
13. febrúar 2010
KR vann þrjá Íslandsmeistaratitla og HK einn í unglingaflokkum í flokkakeppninni í dag
 |
|
A-lið KR og A-lið Víkings, sem léku til úrslita í sveinaflokki (Mynd: Ásta M. Urbancic)
|
 |
Fyrri dagur Íslandsmeistaramótsins í flokkakeppni fór fram í TBR-húsinu í dag. Keppt var til úrslita í liðakeppni unglinga 15 ára og yngri og 16-18 ára. Einnig var keppt í 1. deild kvenna fram að úrslitakeppni.
KR fékk þrjá Íslandsmeistaratitla og HK einn í unglingaflokkum. Í 1. deild kvenna munu Víkingur-A og Dímon mætast í fyrstu úrslitakeppni 1. deildar kvenna.
Keppni verður haldið áfram með keppni í 2. deild karla kl. 12. Þá verður leikið í flokkum ungmenna 19-21 árs kl. 13.
Langfjölmennasti flokkurinn að vanda var flokkur sveina 15 ára og yngri. Þar voru 17 lið skráð til leiks en 12 þeirra mættu. Þetta var eini flokkurinn þar sem lið mættu en fóru heim án verðlauna.
A-lið KR sigraði örugglega í sveinaflokki og vörðu bræðurnir Pétur og Skúli Gunnarssynir titilinn sem þeir unnu í fyrra. Þetta er sjötta árið í röð sem KR sigrar í þessum flokki. Þeir sigruðu 3-0 í öllum sínum leikjum og lögðu A-lið Víkings, skipað Andra Þór Jónsssyni og Loga Ágústssyni í úrslitaleik. A- og B-lið HK hrepptu bronsverðlaunin.
Í flokki meyja 15 ára og yngri var aðeins lið HK skráð til leiks. Þær Hólmfríður Snorradóttir, Hrefna Namfa Finnsdóttir og Kristín Gyða Guðmundsdóttir fengu því Íslandsmeistaratitilinn án keppni. Þetta er jafnframt fyrsti Íslandsmeistaratitill HK í liðakeppni unglinga í borðtennis. Þær léku við stúlkurnar í flokki 16-18 ára og sigruðu lið Víkings 3-0 en töpuðu 1-3 fyrir KR.
Í flokki drengja 16-18 ára varði KR Íslandsmeistaratitilinn sem liðið hefur unnið undanfarin tvö ár. Liðið skipuðu Jóhannes Bjarki Tómasson, Kári Mímisson, Tómas Ingi Shelton og var þetta þriðja árið í röð sem Kári hampar þessum titli. Í öðru sæti var A-lið Víkings, skipað Daníel Bergmann Ásmundssyni og Sindra Þór Sigurðssyni, og lauk úrslitaleiknum með 3-0 sigri KR. Bronsið fór til B-liðs Víkings.
Í flokki stúlkna 16-18 ára sigraði KR þriðja árið í röð. Þær Eva Morgan Maurin og Sigrún Ebba Tómasdóttir (sem er 14 ára) sigruðu Eyrúnu Elíasdóttur og Helenu Xiang Jóhannsdóttur úr Víkingi 3-0 í úrslitaleik.
Í 1. deild kvenna verður úrslitakeppni í fyrsta skipti, skv. Breytingum á reglugerð sem gerðar voru á aukaþingi BTÍ í janúar 2009. Nú var því keppt um það hvaða tvö lið kæmust í úrslitakeppnina. Lið Víkings, skipað gömlu kempunum Evu Jósteinsdóttur og Lilja Rós Jóhannesdóttur sigraði örugglega bæði lið Dímonar og KR 3-0. Víkingur fer því inn í úrslitakeppnina með heimaleik í 1. leik og í 3. leik ef til hans kemur. Leikur Dímonar og KR var jafn og lauk með 3-1 sigri Dímonar. Þær Bergrún Linda Björgvinsdóttir og Hrafnhildur Sigurðardóttir mæta því Víkingum í úrslitakeppninni. Lið KR, sem átti titil að verja eftir sigur í fyrra og hitteðafyrra mátti láta sér nægja bronsið í þetta sinn, enda liðið ekki skipað sömu leikmönnum og hafa unnið titlana síðustu ár.
Ítarleg úrslit:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
13. febrúar 2010
Fleiri úrslit úr 7. umferð í 1. deild karla
HK tapaði fyrir Víkingi-A 1-4 í 7. umferð í 1. deild karla. Leikurinn fór fram á heimavelli HK þann 3. febrúar.
ÁMU
|
|
|
|
10. febrúar 2010
Warta tapaði fyrir Rekord í sænsku deildinni
Warta, lið Guðmundar Stephensen, tapaði þriðja leiknum í röð í sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis á mánudagskvöldið, þegar liðið tapaði 2-3 fyrir BTK Rekord. Rekord, Halmstad, Österlens og Warta berjast um sæti í úrslitakeppninni en aðeins eitt þeirra mun komast í úrslitakeppnina, nema að mikið verði um óvænt úrslit. Rekord og Warta hafa 34 stig eftir 16 leiki en Halmstad hefur 33 stig eftir 15 leiki og Österlens 32 stig eftir 15 leiki.
Guðmundur lék einn einliðaleik og sigraði Kristian Karlsson 2-0 (11-6, 11-7). Hann lék síðan tvíliðaleik með Robert Nilson í 5. og síðasta leiknum, og töpuðu þeir 0-2 (10-12, 5-11) gegn Kristian Karlsson og Cristoffer Petersen. Þar með tapaðist leikurinn.
Næsti leikur Warta er gegn Frej Växsjö sem er í neðsta sæti deildarinnar með 29 stig eftir 16 leiki. Leikurinn fer fram þann 15. febrúar og er mikilvægt fyrir Warta að fá tvö stig í þessum leik.
ÁMU
|
|
|
|
08. febrúar 2010
Breyttur tími á 2. deild karla 14. febrúar
Upphaf keppni í 2. deild karla sunnudaginn 14. febrúar verður kl. 12 en ekki kl. 11 eins og áður var auglýst.
ÁMU
|
|
|
|
07. febrúar 2010
Timo Boll og Li Jiao sigruðu í topp 12
 |
|
Timo Boll og Li Jiao (mynd: ETTU)
|
 |
Þjóðverjinn Timo Boll og Hollendingurinn Li Jiao sigruðu í topp 12 keppni besta borðtennisfólks Evrópu, sem fram fór í Düsseldorf í Þýskalandi um helgina.
Boll lagði Vladimir Samsonov frá Hvíta-Rússlandi 4-2 í úrslitum og vann þar með titilinn í 5. skipti. Samsonov hefur þar með tapað fjórum sinnum í úrslitum fyrir Boll á þessu móti, en hefur þrátt fyrir það hampað titlinum fjórum sinnum.
Li Jiao vann þetta mót í þriðja sinn. Hún mætti Li Qian frá Póllandi í úrslitum eins og í fyrra og sigraði 13-11 í oddalotu í æsispennandi leik.
Í lok janúar fór fram topp 10 keppni bestu unglinga í Evrópu. Sigurvegari í drengjaflokki annað árið í röð var Patrick Franziska frá Þýskalandi.
Í stúlknaflokki vann Sabine Winter, einnig frá Þýskalandi. Það er greinilegt að framtíðin er björt í þýska borðtennisheiminum.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
06. febrúar 2010
Íslandsmótið í flokkakeppni BTÍ fer fram 13. og 14. febrúar
Íslandsmót BTÍ í flokkakeppni 2010 í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu við Gnoðarvog helgina 13.-14. febrúar 2010.
Keppt verður í 1. deild kvenna, 2. deild karla og unglingaflokkum:
Drengja og stúlkna 19-21 árs (árgangur 1989-1991)
Drengja og stúlkna 16-18 ára (árgangur 1992-1994)
Sveina og meyja 15 ára og yngri (fæddir frá og með 1. janúar 1995)
Hverju félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það óskar eftir. Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv.
Í 2. deild karla er leikið eftir 3ja manna corbillion kerfi, í öðrum eftir 2ja manna:
Þriggja manna A:X, B:Y, C:Z, B:X, A:Z, C:Y Tveggja manna A:X, B:Y, tvíliðaleikur, A:Y, B:X
Dagskrá mótsins:
Laugardagur 13. febrúar:
kl. 13:00 flokkakeppni sveina 15 ára og yngri
kl. 13:30 flokkakeppni meyja 15 ára og yngri
kl. 15:00 flokkakeppni drengja 16-18 ára
kl. 15:00 flokkakeppni stúlkna 16-18 ára
kl. 16:00 1. deild kvenna
Sunnudagur 14. febrúar:
kl. 12:00 2. deild karla
kl. 13:00 flokkakeppni stúlkna 19-21 árs
kl. 13:00 flokkakeppni drengja 19-21 árs
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 11. febrúar til kl. 18:00.
Dregið verður í TBR-Íþróttahúsinu fimmtudaginn 11. febrúar kl. 19:30.
Skráningar berist á netfangið pos@itn.is eða síma 8940040.
Nánari upplýsingar:
Islandsmot_BTI_flokkakeppni_2010_uppfaert
ÁMU (uppfært 8.2. 2010)
|
|
|
|
06. febrúar 2010
Borðtennissamband Íslands hefur ráðið nýjan landsliðsþjálfara
Ólafur Þór Rafnsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari A-landsliðs karla og kvenna frá 1. febrúar sl.
Ólafur var leikmaður Víkings 1988-1998 og keppti á þeim tíma innanlands og erlendis. Hann var m.a. í A-landsliði Íslands 1994 á Evrópumeistaramótinu í Birmingham á Englandi.
Þjálfaraferill Ólafs hófst á 16. aldursári þegar hann tók að sér þjálfun unglinga hjá borðtennisdeild Víkings. Hann var einnig aðstoðarþjálfari meistaraflokks og vann með þjálfurum á borð við Hu Dao Ben, Peter Nilsson og Thorsten Hævdholm. Árin 2000-2002 var Ólafur aðalþjálfari Víkings ásamt því að vera unglingalandsliðsþjáfari og A-landsliðsþjálfari kvenna hjá BTÍ.
Við bjóðum Ólaf velkominn til starfa.
Stjórn BTÍ
|
|
|
|
04. febrúar 2010
Úrslit úr 7. umferð í 1. deild karla
Úrslit hafa borist úr einum leik í 7. umferð í 1. deild karla:
KR - Víkingur-C 4-0
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
02. febrúar 2010
Styrkleikalisti 1. febrúar birtur á vef Borðtennissambands Íslands
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2010 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. janúar var birtur hafa eftirtalin mót verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 247 leikir:
Punktamót Borðtennisdeildar Víkings og Adidas 9. janúar 2010
Grand Prix mót Borðtennisdeildar KR og Saeco 16. janúar 2010
Punktamót Borðtennisdeildar Víkings og Pepsi 24. janúar 2010
Leikir úr 5. og 6. umferð í 1. deild karla og einn frestaður leikur úr 3. umferð
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalistann vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.2.2010
ÁMU
|
|
|
|
02. febrúar 2010
7. umferð í 1. deild karla fer fram 3. og 4. febrúar
7. umferð í 1. deild karla fram fer miðvikudaginn 3. og fimmtudaginn 4. febrúar.
Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 3. febrúar
Víkingur-B – Víkingur-D kl. 18
HK – Víkingur-A kl. 19
Fimmtudagur 4. febrúar
KR - Víkingur-C kl. 19
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
ÁMU
|
|
|
|
02. febrúar 2010
Warta tapaði 0-5 fyrir Eslöv í sænsku deildinni
Warta, lið Guðmundar Stephensen, tapaði stórt fyrir meisturum Eslöv í sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis í gær. Leiknum lauk með 5-0 sigri Eslöv.
Guðmundur lék einn einliðaleik og tapaði 0-2 (10-12, 12-14) í jöfnum leik fyrir fyrrum félaga sínum Kaspar Stenberg. Hann lék síðan tvíliðaleik með Robert Nilson og töpuðu þeir fyrir Kaspar Stenberg og Johan Axelqvist 0-2 (9-11, 8-11).
Warta er nú í 7.-8. sæti í deildinni eftir 15 umferðir með 32 stig, jafnmörg og Österlens BTK. Næsti leikur Warta er gegn Rekord, sem er í 9. sæti með 31. stig. Leikurinn verður þann 8. febrúar.
ÁMU
|
|
|
|
30. janúar 2010
Warta tapaði fyrir Falkenberg í sænsku deildinni
Warta, lið Guðmundar Stephensen, tapaði leik sínum í sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis á fimmtudagskvöldið. Leiknum lauk með 2-3 tapi Warta. Guðmundur lék einn einliðaleik og tapaði 0-2 (7-11, 6-11) á móti Lucas Rydén. Hann lék síðan tvíliðaleik með Robert Nilson og unnu þeir þá Lucas Rydén og Magnus Månsson 2-0 (11-8, 11-6). Það dugði þó ekki til þar sem Falkenberg vann þrjá af fjórum einliðaleikjum í deildarleiknum.
Warta er nú í 6.-7. sæti í deildinni eftir 14 umferðir með 32 stig, jafnmörg og Halmstad. Liðið mætir meisturum og fyrrum liðsfélögum Guðmundar í Eslöv mánudaginn 1. febrúar.
ÁMU
|
|
|
|
28. janúar 2010
Leikur Guðmundar Stephensen með Warta á morgun sýndur á vefnum
Næsti leikur Warta, liðs Guðmundar Stephensen, í sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis fer fram föstudaginn 29. janúar. Warta leikur við Falkenberg, og verður leikurinn sýndur beint á vefnum. Slóðin er www.bwin.com
Leikurinn hefst kl. 19 að sænskum tíma sem er kl. 18 að íslenskum tíma.
Warta er nú í 7. sæti deildarinnar með 30 stig eftir 13 leiki. Liðið hefur leikið einum leik minna en Halmstad, sem er í 6. sæti með 32 stig. Sex efstu liðin taka þátt í úrslitakeppni um sænska meistaratitilinn.
ÁMU
|
|
|
|
25. janúar 2010
Enn fleiri úrslit úr 1. deild karla
Innbyrðis leik Víkings-D og Víkings-C í 5. umferð 1. deildar karla lauk með öruggum sigri C-liðsins, sem vann 4-0.
D-lið Víkings var því í neðsta sæti eftir fyrri hluta deildarinnar með ekkert stig og hafði tapað öllum leikjum sínum 0-4. C-lið Víkings var í 5. sæti með 2 stig.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
24. janúar 2010
Úrslit úr Pepsi móti Víkings
 |
|
Verðlaunahafar í 2.flokki karla. Pétur, Bjarni og Sindri fengu allir tvenn verðlaun í dag. (Mynd: Finnur Hrafn Jónsson)
|
 |
Nokkuð var um óvænt úrslit á Pepsi stigamóti Víkings, sem haldið var í TBR-húsinu í dag. Keppt var í 1. og 2. flokki karla og kvenna, sem og í eldri flokki karla.
Í 1. flokki karla kom hinn 15 ára gamli Pétur Gunnarsson úr KR á óvart og sló út stigahæsta leikmanninn, Sigurbjörn Sigfússon úr Víkingi, í 8 manna úrslitum. Pétur leikur ennþá í 2. flokki. Pétur komst í úrslit en mátti lúta í lægra haldi fyrir Gunnari Snorra Ragnarssyni úr KR. Gunnar lagði Pétur 3-0 (11-6, 11-7, 11-4) í úrslitum. Í 3.-4. sæti höfnuðu Ólafur Eggertsson úr Víkingi, og Sindri Þór Sigurðsson úr Víkingi, sem einnig er leikmaður í 2. flokki.
Í 1. flokki kvenna sigraði Magnea Ólafs úr Víkingi Hrefnu N. Finnsdóttur úr HK 3-0 (11-8, 11-0, 11-7). Eyrún Elíasdóttir úr Víkingi varð þriðja en þær tvær síðastnefndu leika í 2. flokki.
Í 2. flokki kvenna sigraði síðan Hrefna Namfa Finnsdóttir Eyrúnu Elíasdóttur 3-0 (12-10, 11-4, 11-6) í úrslitaleik.
Annar flokkur karla var langfjölmennasti flokkurinn og mættu 34 keppendur til leiks. Pétur Gunnarsson úr KR sigraði Bjarna Gunnarsson úr KR 3-2 (11-3, 9-11, 8-11, 11-5, 11-3) í úrslitaleik. Bronsverðlaunin hlutu Daníel Bergmann Ásmundsson og Sindri Þór Sigurðsson, báðir úr Víkingi.
Í eldri flokki karla sigraði Pétur Stephensen úr Víkingi en hann hefur verið sigursæll í eldri flokki í vetur. Pétur sigraði Árna Siemsen úr Erninum 3-0 (11-7, 1-3, 11-3) í úrslitum. Bjarni Gunnarsson úr KR og Emil Pálsson úr Víkingi höfnuðu í 3.-4. sæti.
ÁMU
|
|
|
|
23. janúar 2010
Fleiri úrslit úr 6. umferð í 1. deild karla
Innbyrðis leik Víkings-A og Víkings-B í 6. umferð 1. deildar karla lauk með sigri B-liðsins, 4-3. B-lið Víkings hefur því hleypt meiri spennu í toppbaráttu deildarinnar, þar sem tvö lið hafa nú tapað einum leik og eitt lið tapað tveimur leikjum.
Fjögur efstu liðin að loknum 10 umferðum taka þátt í úrslitakeppni, sem fer fram í fyrsta skipti í 1. deild karla í vor.
ÁMU
|
|
|
|
20. janúar 2010
Úrslit úr 6. umferð í 1. deild karla
Ritstjóra vefs BTÍ hafa borist úrslit úr eftirtöldum leikjum í 6. umferð í 1. deild karla, sem fram fór í kvöld:
HK - Víkingur-C 4-0
Víkingur-D - KR 0-4
ÁMU (uppfært 21.1. 2010)
|
|
|
|
19. janúar 2010
Seinni hluti 1. deildar karla hefst á morgun, 20. janúar
Seinni hluti 1. deildar karla hefst með 6. umferð, sem fram fer miðvikudaginn 20. janúar.
Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 20. janúar kl. 19
Víkingur-A – Víkingur-B
Víkingur-D – KR
HK – Víkingur-C
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
Í kvöld var leikinn leikur úr 3. umferð á milli KR og B-liðs Víkings, sem hafði verið frestað. KR sigraði 4-3 í jöfnum leik.
Eftir fyrri hluta deildarinnar er A-lið Víkings efst með 10 stig, A-lið KR hefur 8 stig og B-lið Víkings 6 stig. HK hefur 4 stig og C- og D-lið Víkings hafa ekkert stig hlotið. Þó vantar úrslit úr leik Víkings-C og Víkings-D úr 5. umferð.
ÁMU
|
|
|
|
19. janúar 2010
Pepsi stigamót Víkings verður sunnudaginn 24. janúar
Pepsi stigamótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu sunnudaginn 24. janúar 2010.
Keppt verður í 1. og 2. flokki karla og kvenna og eldri flokki karla.
Dagskrá mótsins:
kl. 10:30 Eldri flokkur karla
kl. 12:00 1. flokkur karla
kl. 12:00 1. flokkur kvenna
kl. 13:00 2. flokkur karla
kl. 13:00 2. flokkur kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti.
Keppt verður með gulum kúlum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 500.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 21. janúar kl. 18:00.
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 21. janúar kl. 19:00 Í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar:
Pétur s-5536862/8940040/pos@itn.is
Magnús F. Magnússon s-8690340
Matthías Stephensen s-5536862/8692962
Nánari upplýsingar:
Pepsi_stigamotid_2010
ÁMU
|
|
|
|
19. janúar 2010
Frestaður leikur KR og Víkings B fer fram í kvöld
Leikur KR og Víkings B fer fram í KR heimilinu kl: 19
Þetta er frestaður leikur frá því fyrir jól.
Hvetjum fólk til að mæta og styðja sín lið.
Mótanefnd
|
|
|
|
 |
 |
17. janúar 2010
Sextíu leikmenn fluttir af lista virkra yfir á lista óvirkra leikmanna
 |
Styrkleikalistinn fyrir 1. janúar 2010 hefur verið uppfærður þannig að þeir 60 leikmenn, sem tóku þátt í mótum árið 2006 en hafa ekki keppt síðan voru fluttir af lista virkra yfir á lista óvirkra leikmanna. Listi yfir þessa leikmenn er að finna í viðhengi.
Samkvæmt reglugerð um styrkleikalista BTÍ, sem var samþykkt á aukaþingi BTÍ 31. janúar 2009 á að telja sem virka leikmenn keppnistímabilið 2009-2010 þá sem hafa tekið þátt í mótum frá 1. janúar 2007. Aðrir leikmenn, sem hafa verið á styrkleikalista frá árinu 2003 eru á lista yfir óvirka leikmenn.
Lög Borðtennissambands Íslands, sem samþykkt voru á ársþingi í nóvember 2008 segja að fjöldi leikmanna á styrkleikalista í fjögur ár frá áramótum verði notaður til að ákvarða fjölda þingfulltrúa á ársþingi. Fjöldi þingfulltrúa á ársþingi vorið 2010 miðast því við fjölda á styrkleikalista árin 2006-2009. Því þarf að bæta þessum 60 leikmönnum við fjölda þeirra sem nú eru á lista virkra leikmanna til að fá út fjölda á styrkleikalista árin 2006-2009 sem notaður verður til úthlutunar þingfulltrúa.
Leikmann_virkir_verda_ovirkir_1.1.2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
16. janúar 2010
Magnús Kristinn og Magnea sigruðu á Grand Prix móti KR og Saeco
 |
|
Verðlaunahafar í opnum flokki karla og Iðunn Ingólfsdóttir (mynd: Hlöðver Þorsteinsson)
|
 |
Grand Prix mót Borðtennisdeildar KR og Saeco fór fram í KR-heimilinu við Frostaskjól í dag. Keppt var í opnum flokki karla og kvenna sem og í B-keppni karla.
Í opnum flokki karla mættust Magnús K. Magnússon úr Víkingi og Ingólfur S. Ingólfsson úr KR í úrslitaleiknum. Magnús Kristinn var hungraðri í sigurinn en Ingólfur og tókst í þrígang að vinna lotu þar sem Ingólfur var 10-8 yfir. Lauk leiknum með 4-1 sigri Magnúsar (7-11, 12-10, 12-10, 14-12, 11-9). Bronsverðlaunin hlutu Daði Freyr Guðmundsson og Magnús Finnur Magnússon, báðir úr Víkingi.
Í opnum flokki kvenna sigraði Magnea Ólafs Eyrúnu Elíasdóttur úr Víkingi 4-0 (11-7, 11-2, 11-5, 11-9) í úrslitaleik. Hrefna Namfa Finnsdóttir úr HK varð þriðja.
Í B flokki karla kepptu þeir sem höfðu tapað í 1. umferð í opnum flokki karla. Sigurvegari varð Davíð Jónsson úr KR, sem lagði félaga sinn úr KR Gunnar Snorra Ragnarsson 3-0 (11-6, 11-7, 11-8) í úrslitum. Bronsið fengu Daníel Bergmann Ásmundsson og Ólafur Eggertsson, báðir úr Víkingi.
ÁMU
|
|
|
|
16. janúar 2010
Warta sigraði Österlens Btk. í sænsku deildinni
Guðmundur Stephensen lék með Warta á móti Österlens Btk. í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Guðmundur tapaði einliðaleiknum sínum á móti Peter Nilson 0-2 (2-11, 8-11). Hann keppti síðan í tvíliðaleik með Robert Nilson og unnu þeir Peter Nilson og Martin Nilson 2-0 (11-9, 11-8). Var það fimmti og síðasti leikurinn sem réði úrslitum um að Warta sigraði 3-2 í viðureigninni.
Að viðureigninni lokinni er Warta enn í 6. sæti í deildinni með 30 stig eftir 13 leiki. Sex efstu liðin taka þátt í úrslitakeppni deildarinnar og því til mikils að vinna ef sjötta sætinu er haldið. Rekord kemur næst með 29 stig og Halmstad með 28 stig. Warta leikur næst við Falkenberg þann 29. janúar.
Meistarar Eslöv eru langefstir í deildinni með 44 stig.
ÁMU
|
|
|
|
13. janúar 2010
Aftur sigrar hjá Guðmundi með Warta
Guðmundur Stephensen sigraði í báðum leikjum sínum þegar hann lék með Warta á móti Mariedals IK í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Fyrst sigraði Guðmundur Mattias Översjö 2-1 í jöfnum leik (14-12, 10-12, 11-8). Hann lék síðan í tvíliðaleik með Robert Nilson og unnu þeir Mattias Översjö og Hampus Söderlund 2-0 (11-9, 11-7). Var það fimmti og síðasti leikurinn sem réði úrslitum um að Warta sigraði 3-2 í viðureigninni.
Að viðureigninni lokinni er Warta í 6. sæti í deildinni með 27 stig eftir 12 leiki. Næsti leikur liðsins er föstudaginn 15. janúar við Österlens BTK, sem er í 10. og neðsta sæti deildarinnar með 24. stig.
ÁMU
|
|
|
|
12. janúar 2010
Breytingar á mótaskrá
Mótanefnd BTÍ hefur gert breytingar á mótaskrá fyrir keppnistímabilið 2009-2010. Mót í febrúar og apríl flytjast til.
Flokkakepnninni seinkar um viku og einnig flytjast Grand Prix mót Víkings í febrúar til sem og punktamót Víkings í apríl. Íslandsmóti öldunga í apríl seinkar um viku.
Mótaskráin fylgir hér með í viðhengi og hana er líka að finna í glugganum til vinstri.
Motaskra_uppfaerd_jan_2009-2010
ÁMU
|
|
|
|
12. janúar 2010
Grand Prix mót KR og Saeco verður haldið 16. janúar
Borðtennisdeild KR heldur Grand Prix mót KR og Saeco laugardaginn 16. janúar. Mótið fer fram í KR-heimilinu og verður keppt í opnum flokki karla og kvenna. Keppni hefst stundvíslega kl. 13.30.
Tímaáætlun:
13:30 Opinn flokkur karla
14:00 Opinn flokkur kvenna
16:00 Áætlaður tími úrslitaleikja
Leikinn verður einfaldur útsláttur, 4-7 lotur.
Þátttökugjöld eru 1000 krónur.
Síðasti skráningardagur er föstudaginn 15.janúar klukkan 18:00, en dregið verður klukkan 18:00 í æfingaaðstöðu borðtennisdeildar KR í KR-heimilinu sama kvöld.
Skráningar og nánari upplýsingar:
Kristján Viðar Haraldsson, netfang: viddi@greifarnir.is
Hlöðver Þorsteinsson, netfang hibbi@mitt.is
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi bréfi:
Btd_KR_GrandPrix_2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
11. janúar 2010
Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2010 birtur
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2010 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. desember var birtur hafa eftirtalin mót verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 92 leikir:
Punktamót Borðtennisdeildar HK 5. desember 2009
Punktamót Borðtennisdeildar Víkings 20. desember 2009
Leikir í 4. umferð í 1. deild karla 2009
Á næstu dögum verður birtur endurskoðaður listi fyrir 1. janúar 2010 þar sem þeir leikmenn, sem ekki hafa leikið síðan árið 2006 verða fluttir yfir á lista yfir óvirka leikmenn.
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalistann vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.1.2010
ÁMU
|
|
|
|
09. janúar 2010
Borðtennissamband Íslands óskar eftir landsliðsþjálfara
Stjórn Borðtennissambands Íslands auglýsir eftir landsliðsþjálfara. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar. Auglýsing fylgir í viðhengi.
Auglýsing: Auglysing_ landslidsthjalfari_2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
09. janúar 2010
Magnea og Magnús sigruðu í meistaraflokki á fyrsta punktamóti ársins
 |
|
Magnús Kristinn og Magnea sigruðu í meistaraflokki (Mynd: Pétur Stephensen)
|
 |
Fyrsta punktamót ársins 2010, Adidas stigamót Borðtennisdeildar Víkings, fór fram í TBR-húsinu í dag. Keppt var í meistaraflokki karla og kvenna, 1. flokki karla og eldri flokki karla, en keppni í 1. flokki kvenna var felld niður.
Í meistaraflokki karla sigraði Magnús K. Magnússon úr Víkingi nafna sinn Magnús Finn 3-0 (11-8, 11-7, 11-8) í úrslitaleiknum. Magnús Kristinn fór þó ekki ósigraður í gegnum mótið því hann tapaði fyrir Daða Frey Guðmundssyni úr Víkingi 14-16 í oddalotu í riðlinum. Daði Freyr og Bjarni Þ. Bjarnason úr HK hlutu bronsverðlaunin.
Í meistaraflokki kvenna sigraði Magnea Ólafs Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur úr Dímon 3-1 (11-4, 7-11, 11-7, 11-9) í úrslitaleik.
Í 1 flokki karla urðu óvænt úrslit þar sem Ólafur Eggertsson úr Víkingi, sem ekki hefur keppt í borðtennis í fjölmörg ár kom, sá og sigraði. Ólafur vann Sigurbjörn Sigfússon úr Víkingi 3-2 (4-11, 11-9, 11-8, 6-11, 11-3) í úrslitaleiknum, en Sigurbjörn sneri einmitt aftur til keppni eftir langt hlé snemma á síðasta ári. Í 3.-4 sæti höfnuðu Helgi Þór Gunnarsson úr Akri og Pétur Stephensen, Víkingi.
Í eldri flokki karla var endurtekið efni frá úrslitaleiknum á síðasta móti þar sem Pétur Stephensen vann Emil Pálsson úr Víkingi 3-2 (11-5, 11-8, 5-11, 9-11, 8-11) í úrslitum. Þriðji varð Sigurður Herlufsen úr Víkingi og Bjarni Gunnarsson úr KR varð fjórði.
Úrslit úr einstökum flokkum:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
07. janúar 2010
Víkingur-A lagði KR í leik toppliðanna í 1. deild karla
5. umferð í 1. deild karla var leikin 6. og 7. janúar. KR og Víkingur-A mættust í KR-heimilinu í kvöld. Víkingur-A sigraði örugglega 4-1 og eru Víkingar því efstir eftir fyrri hluta deildarinnar.
Einnig léku Víkingur-B og HK og sigraði Víkingur-B 4-0.
Úrslit úr leik Víkings-D og Víkings-C verða sett inn þegar þau hafa borist.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
06. janúar 2010
Guðmundur og Magnea borðtennisfólk ársins 2009
 |
|
Guðmundur og Magnea árið 2007
|
 |
Í gærkvöldi var tilkynnt val á borðtennisfólki ársins 2009, um leið og kjöri íþróttamanns ársins 2009 var lýst. Borðtennismaður ársins var valinn Guðmundur Eggert Stephensen Víkingi/Yport og borðtenniskona ársins Magnea J. Ólafs, Víkingi.
Samkvæmt reglugerð hafa leikmenn í meistaraflokki karla og kvenna, stjórn og varastjórn BTÍ og landsliðsþjálfari kosningarétt, alls um 40 manns.
Samkvæmt upplýsingum frá stjórn BTÍ féllu atkvæði þannig í kjörinu:
Karlar:
Guðmundur Stephensen, Víkingi/Yport 18 atkvæði
Magnús Kristinn Magnússon, Víkingi 2 atkvæði
Gunnar Snorri Ragnarsson, KR 1 atkvæði
Kári Mímisson, KR 1 atkvæði
Richard Magnason, Víkingi, 1 atkvæði
Konur:
Magnea Ólafs, Víkingi 11 atkvæði
Guðrún Björnsdóttir, KR 9 atkvæði
Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon 1 atkvæði
Fríður Rún Sigurðardóttir, KR 1 atkvæði
Borðtennisfólki ársins er hér með óskað til hamingju með kjörið.
Guðmundur fékk einnig 3 atkvæði í kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins og hafnaði í 22.-23. sæti.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
05. janúar 2010
Adidas stigamótið Laugardaginn 9. janúar
ADIDAS stigamótið í borðtennis fer fram í
TBR-Íþróttahúsinu (stóra salnum) Laugardaginn 9. janúar 2010.
Keppt verður í punktakeppni, og eldri flokki karla.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki.
Dagskrá mótsins:
kl. 10:30 Eldri flokkur karla
kl. 12:00 1. flokkur karla
kl. 12:00 1. flokkur kvenna
kl. 13:00 Meistaraflokkur karla
kl. 13:00 Meistaraflokkur kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Keppt verður með Stiga 3 stjörnu gulum kúlum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 500-
Dómarar:
Ólafur Ólafs
Pétur Ó. Stephensen
Mótsstjórn skipa:
Pétur Ó. Stephensen Matthías Stephensen
Magnús F. Magnússon
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 7. janúar kl. 19:00 Í TBR-Íþróttahúsinu
Skráningar:
Pétur s-5536862/8940040/pos@itn.is
Magnús F. Magnússon s-8690340
Matthías Stephensen s-5536862/8692962
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 7. janúar kl. 18:00.
|
|
|
|
05. janúar 2010
5. umferð í 1. deild karla verður leikin 6. og 7. janúar
5. umferð í 1. deild karla verður leikin miðvikudaginn 6. og fimmtudaginn 7. janúar. Þetta eru síðustu leikirnir í fyrri hluta deildarinnar en þó á eftir að leika einn frestaðan leik úr 3. umferð á milli KR og B-liðs Víkings. KR og Víkingur-A eru taplaus eins og staðan er núna en þessi lið mætast 7. janúar.
Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 6. janúar
Víkingur-B – HK kl. 19:00
Víkingur-D – Víkingur-C kl. 19:00
Fimmtudagur 7. janúar
KR - Víkingur-A kl. 19:00
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
ÁMU
|
|
|
|
03. janúar 2010
Guðmundur byrjar vel með Warta
Guðmundur Stephensen lék sinn fyrsta leik með Borðtennisklúbbnum Warta í sænsku deildinni í gær er liðið mætti Spårvägen á heimavelli. Guðmundur byrjaði vel og sigraði í báðum leikjum sínum. Guðmundur lék sem þriðji maður og sigraði Mikael Zöögling 2-0 (11-8, 11-7). Hann lék síðan í tvíliðaleik með Robert Nilson og unnu þeir Mikael Zöögling og Mikael Appelgren 2-0 (11-8, 14-12). Var það fimmti og síðasti leikurinn sem réði úrslitum um að Warta sigraði 3-2 í viðureigninni.
Að viðureigninni lokinni er Warta í 6. sæti í deildinni með 24 stig eftir 11 leiki.
Í sænsku deildinni er nú keppt með öðru fyrirkomulagi en þegar Guðmundur lék með Eslöv fyrir hálfu öðru ári síðan. Nú þarf aðeins að vinna tvær lotur til að vinna leik og í leik liðanna eru leiknir fimm leikir. Þrír menn a.m.k. eru í liði og eru leiknir fjórir einliðaleikir þar sem fyrsti maður í hvoru liði leikur tvo leiki. Leiknum lýkur með tvíliðaleik.
ÁMU
|
|
|
|
02. janúar 2010
Birtingu styrkleikalista fyrir 1. janúar 2010 frestað um óákveðinn tíma
Birting styrkleikalista fyrir 1. janúar 2010 frestast um óákveðinn tíma þar sem umsjónarmaður styrkleikalistans hefur ekki fengið mótsgögn úr jólapunktamóti Víkings, sem haldið var 20. desember 2009.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
28. desember 2009
Dagsetningar helstu alþjóðlegu mótanna árið 2010
 |
Hér að neðan fara helstu dagsetningar alþjóðlegra móta á árinu 2010 sem Íslendingar hafa gjarnan sótt:
Heimsmeistaramót í liðakeppni í Moskvu í Rússlandi 23. - 30. maí
Evrópumeistaramót unglinga í Istanbúl í Tyrklandi 16. - 25. júlí
Evrópumeistaramót fullorðinna í Ostrava í Tékklandi 11. - 19. september
Evrópumeistaramót fullorðinna í tvenndarkeppni 19.-21. nóvember
Einnig má nefna Heimsmeistaramót öldunga 7.-12. júní í Hohhot í Kína og heimsmeistaramót unglinga í Bratislava í Slóvakíu 4.-11. desember.
Þá verður Norður-Evrópumót öldunga haldið í Cesis í Lettlandi 15.-18. apríl 2010.
Á árinu 2010 verður í fyrsta skipti keppt á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore í ágúst og verður forkeppni fyrir leikana á árinu.
Þá má nefna að Topp 12 keppni bestu borðtennismanna Evrópu fer fram í Düsseldorf í Þýskalandi 6.-7. febrúar.
ETTU hefur áður birt nokkrar dagsetningar stórra móta árið 2011:
Heimsmeistaramót í einstaklingskeppni í Rotterdam í Hollandi 8. - 11. maí 2011
Smáþjóðaleikarnir í Liechtenstein (skv. heimasíðu og í samstarfi við ÍSÍ) 30. maí - 4. júní 2011
Evrópumeistaramót unglinga í Kazan í Rússlandi 15. - 24. júlí 2011
Evrópumeistaramót fullorðinna í Varsjá í Póllandi 8. - 16. október 2011
ÁMU (uppfært 12.1.2010)
|
|
|
|
20. desember 2009
Magnús Kristinn og Magnea sigruðu á jólamóti Víkings
 |
|
Sigurbjörn Sigfússon hefur verið sigursæll í 1. flokki karla
|
 |
Í dag var keppt á jólapunktamóti Borðtennisdeildar Víkings í TBR-húsinu. Skv. frétt á vef mbl.is voru úrslit þessi:
Meistaraflokkur karla
1. Magnús K. Magnússon, Víkingi
2. Jakob Jörgensen, KR
3.-4. Daði Freyr Guðmundsson, Víkingi
3.-4. Sigurbjörn Sigfússon, Víkingi
1. flokkur kvenna
1. Magnea Ólafs, Víkingi
2. Eyrún Elíasdóttir, Víkingi
1. flokkur karla
1. Sigurbjörn Sigfússon, Víkingi
2. Pétur Stephensen, Víkingi
3.-4. Helgi Þór Gunnarsson, Akri
3.-4. Jóhann R. Kristjánsson, Nesi
Eldri flokkur karla
1. Pétur Stephensen, Víkingi
2. Emil Pálsson, Víkingi
3.-4. Árni Siemsen, Erninum
3.-4. Bjarni Gunnarsson, KR
ÁMU
|
|
|
|
16. desember 2009
Jólamót Víkings sunnudaginn 20. desember
Jóla - stigamótið í borðtennis fer fram í
TBR-Íþróttahúsinu (stóra salnum) Sunnudaginn 20. desember 2009.
Keppt verður í punktakeppni, og eldri flokki karla.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki.
| | Meira |
|
|
|
15. desember 2009
Guðmundur Stephensen á leið í sænsku deildina á ný
Guðmundur Stephensen, margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis, hefur gert samning við sænska borðtennisklúbbinn Varta í Gautaborg um að leika með liðinu frá janúar 2010 og til loka keppnistímabilsins. Morgunblaðið og Fréttablaðið greindu frá þessu föstudaginn 11. desember sl.
Guðmundur lék einn leik í sænsku deildinni í september þegar hann var varamaður hjá Eslöv, en þá tapaði Guðmundur leikjum sínum. Guðmundur hefur ekki leikið á mótum á Íslandi í haust heldur einbeitt sér að námi í sálfræði í Háskóla Íslands eftir Evrópumeistaramótið í Stuttgart í september.
Varta er nú í 7. sæti í deildinni með 19 stig en Eslöv, gamla lið Guðmundar, er í efsta sæti með 30 stig.
ÁMU
|
|
|
|
11. desember 2009
Úrslit eftir bókinni í innbyrðis leikjum Víkingsliðanna í 4. umferð í 1. deild karla
Í 4. umferð í 1. deild karla léku Víkingsliðin fjögur innbyrðis.
Úrslit voru þau að A-lið Víkings sigraði D-liðið 4-0 og B-liðið vann C-liðið sömuleiðis 4-0.
Þá er einn leikur óleikinn úr 1. deildinni sem átti að leika á þessu ári, en það er leikur KR og Víkings-B úr 3. umferð.
ÁMU
|
|
|
|
09. desember 2009
Punkta/stigamót Víkings fellur niður
Punkta/stigamót Víkings fellur niður næsta laugardag 12.desember.
Mótanefnd
|
|
|
|
05. desember 2009
Sindri og Hólmfríður sigruðu á punktamóti HK í borðtennis
 |
|
Verðlaunahafar í 2. flokki karla (Mynd: Finnur Hrafn Jónsson)
|
 |
Punktamót HK í borðtennis fór fram í íþróttahúsi Snælandsskóla í dag, en þar hefur Borðtennisdeild HK nú aðsetur. Keppt var í 2. flokki karla og kvenna.
Í 2. flokki karla sigraði Sindri Þór Sigurðsson úr Víkingi. Sindri sigraði Pétur Gunnarssons úr KR í úrslitaleiknum. Bronsverðlaunin fengu Gunnar Skúlason úr KR, faðir Péturs, og Daníel Bergmann Ásmundsson úr Víkingi.
Sindri hefur því sigrað á báðum 2. flokks mótunum sem hafa verið haldin í haust og hefur hækkað sig mikið á styrkleikalistanum í haust.
Í 2. flokki kvenna voru tveir keppendur, sem börðust hart í úrslitaleiknum. Hólmfríður Snorradóttir úr HK sigraði Kristínu Gyðu Guðmundsdóttur úr HK 3-2 (10-12, 7-11, 11-6, 11-5, 11-5).
ÁMU
|
|
|
|
05. desember 2009
Borðtennisdeild í Hafnarfirði
Ritstjóri hefur frétt af tilkomu borðtennisdeildar innan Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Er það fagnaðarefni að borðtennisdeild sé loksins tekin til starfa í þriðja stærsta bæ landsins. Deildin æfir í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
Æfingatímar:
Sunnudagar kl. 17.00-19.00
Þriðjudagar kl. 19.00-20.15
Fimmtudagar kl. 18.50-19.40
ÁMU
|
|
|
|
02. desember 2009
Úrslit úr 4. umferð í 1. deild karla
Í kvöld fór fram keppni í 4. umferð í 1. deild karla, sjá nánar í frétt frá 30. nóvember sl.
Úrslit hafa borist úr leik HK og KR, þar sem KR fór með sigur af hólmi 4-1.
Önnur úrslit verða sett inn þegar þau hafa borist.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
02. desember 2009
Styrkleikalisti 1. desember birtur
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. desember 2009 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. nóvember var birtur hafa eftirtalin mót verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 224 leikir:
Afmælismót Borðtennisdeildar KR 7.-8. nóvember 2009
Grand Prix mót Borðtennisdeildar Víkings og Coca Cola 28. nóvember 2009
Leikir í 2. og 3. umferð í 1. deild karla 2009
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalistann vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.12.2009
ÁMU
|
|
|
|
01. desember 2009
Jólamót HK fer fram laugardaginn 5. desember
Jólamót HK fer fram í íþróttahúsi Snælandsskóla laugardaginn 5. desember næstkomandi. Leikið verður í 2. flokki karla og kvenna.
Keppni hefst kl 11:00 og verður leikið í riðlakeppni.
Þátttökugjald í mótið er kr.500.
Tekið er á móti skráningum á bordtennis@hk.is og hjá mótanefnd.
Skráning skal fara fram fyrir kl. 16:00 föstudaginn 4. desember. Dregið verður í riðla föstudaginn 4. des. kl. 17:00 í íþróttahúsi Snælandsskóla.
Í mótanefnd sitja Bjarni Þ. Bjarnason (S:8631431), Magnús Bollason (S:8241843) og Helgi Þór Gunnarsson (S:6986259).
Sjá nánar:
Jolamot_HK_2009
ÁMU
|
|
|
|
30. nóvember 2009
4. umferð í 1. deild karla verður leikin 2. desember
4. umferð í 1. deild karla verður leikin miðvikudaginn 2. desember. Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Víkingur-D – Víkingur-A kl. 18:00
Víkingur-B – Víkingur-C kl. 19:00
HK – KR kl. 19:00
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
28. nóvember 2009
Magnús Kristinn og Magnea sigruðu á Grand Prix móti Víkings og Coca Cola
 |
|
Verðlaunahafar í kvennaflokki á Grand Prix mótinu (Mynd: Ólafur Ólafs)
|
 |
Fyrsta Grand Prix mót keppnistímabilsins fór fram í TBR húsinu í dag. Keppt var í opnum flokki karla og kvenna, sem og í B-keppni.
Í opnum flokki karla sigraði Magnús K. Magnússon úr Víkingi. Magnús lagði félaga sinn úr Víkingi Sigurð Jónsson 4-1 í úrslitaleik. Víkingarnir Daði Freyr Guðmundsson og Magnús Finnur Magnússon fengu bronsverðlaunin. Magnús sigraði Daða 4-2 í undanúrslitum og Sigurður lagði Magnús Finn 4-0 í hinum undanúrslitaleiknum.
Í kvennaflokki voru fjórir keppendur skráðir til leiks. Magnea Ólafs úr Víkingi sigraði Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur úr Dímon 4-1 (11-9, 11-5, 11-9, 7-11, 11-6) í úrslitaleiknum. Magnea sigraði Eyrúnu Elíasdóttur úr Víkingi 4-0 í fyrri undanúrslitaleiknum og Bergrún vann Marielle Rosento úr Víkingi 4-0 í seinni undanúrslitunum.
Leikið var sameiginlega í B-keppni fyrir þá keppendur sem töpuðu í fyrstu umferð. Sindri Þór Sigurðsson úr Víkingi vann Daníel Bergmann Ásmundsson úr Víkingi 4-3 í úrslitaleiknum. Skúli Gunnarsson úr KR og Ari Páll Olsen úr Víkingu fengu brons.
ÁMU
|
|
|
|
28. nóvember 2009
Úrslit úr afmælismóti Borðtennisdeildar KR komin á vefinn
Úrslit úr afmælismóti Borðtennisdeildar KR komin á vefinn. Úrslit úr leikjum þeirra erlendu leikmanna, sem ekki voru á styrkleikalistanum, eru ekki lesin inn í styrkleikalistann. Þar er um að ræða einn bandarískan leikmann og fjóra færeyska. Aðrir erlendir leikmenn á mótinu voru þegar á styrkleikalistanum.
ÁMU
|
|
|
|
27. nóvember 2009
Víkingur-A sigraði Víking-C í 1. deild karla
A-lið Víkings sigraði Víking-C 4-0 í leik liðanna í 3. umferð deildarinnar en leikið var 18. nóvember.
Leik KR og Víkings-B var frestað öðru sinni þann 25. nóvember.
ÁMU
|
|
|
|
24. nóvember 2009
Grand Prix mót Víkings og Coca-Cola verður haldið laugardaginn 28. nóvember
Fyrsta Grand Prix mót vetrarins í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 28. nóvember 2008. Mótið er haldið af Borðtennisdeild Víkings og Coca Cola.
Keppt verður í opnum flokki karla og kvenna. Leikinn verður einfaldur útsláttur, 4 lotur unnar.
Einnig verður keppt í B-keppni fyrir þá sem tapa í 1. umferð.
Tímaáætlun:
kl. 13:00 Opinn flokkur karla
kl. 13:30 Opinn flokkur kvenna
Þátttökugjald í mótið er kr. 600.
Skráningar: Pétur s-5536862/8940040/pos@itn.is, Matthías Stephensen s-8692962.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 26. nóvember kl. 18:00.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi fylgiskjali:
Grand_Prix_mot_Vikings_28_nov_2009
ÁMU
|
|
|
|
24. nóvember 2009
Breytt mótaskrá í 1. deild karla 2009-2010
Mótanefnd BTÍ hefur birt endurskoðaða dagskrá fyrir keppni í 1. deild karla keppnistímabilið 2009-2010. Breytingin felst aðallega í því að flestir leikir fara fram á miðvikudögum nema hvað heimaleikir KR eru leiknir á fimmtudögum.
Dagskráin fylgir hér með í viðhengi og hana er einnig að finna í boxinu hér til vinstri undir Nýtt á borðtennis.is.
1_deild_karla_2009-2010_ny
ÁMU
|
|
|
|
22. nóvember 2009
Víkingur-B sigraði Víking-D í 1. deild karla
B-lið Víkings sigraði Víking-D 4-0 í leik liðanna í 2. umferð deildarinnar, samkvæmt leikskýrslu sem ritstjóra hefur borist.
ÁMU
|
|
|
|
20. nóvember 2009
HK sigraði Víking-D í 1. deild karla
Samkvæmt frétt á heimasíðu Borðtennisdeildar HK sigraði HK Víking-D 4-0 í leik liðanna í 3. umferð deildarinnar, sem leikinn var miðvikudaginn 18. nóvember.
ÁMU
|
|
|
|
19. nóvember 2009
Frestun leiks KR og Víkings B
Leik KR og Víkings B verður frestað til miðvikudagsins 25.nóvember.
Mótanefnd
|
|
|
|
18. nóvember 2009
Breyttar dagsetningar fyrir leiki í 1. deild karla
Mótanefnd BTÍ hefur lagt til að dagsetningum hluta leikja í 1. deild karla verði breytt. Þannig munu heimaleikir HK fara fram á miðvikudögum en ekki fimmtudögum. HK og Víkingur munu því leika í dag en ekki á morgun, eins og fram kemur í frétt frá í gær.
Uppfærð skrá yfir alla leiki verður sett á vefinn þegar öll félög hafa samþykkt hana.
ÁMU
|
|
|
|
17. nóvember 2009
3. umferð í 1. deild karla fer fram 18. og 19. nóvember
Keppni í 1. deild karla verður haldið áfram í vikunni. Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 18. nóvember Víkingur-A - Víkingur-C kl. 19.00
Fimmtudagur 19. nóvember KR - Víkingur-B kl. 19.00
Fimmtudagur 19. nóvember HK - Víkingur-D kl. 19.00
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
ÁMU (uppfært 18.11.)
|
|
|
|
14. nóvember 2009
Víkingur-A sigraði HK í 1. deild karla
Ritstjóra hafa borist úrslit úr leik Víkings-A og HK í 1. deild karla, sem fram fór 12. nóvember.
12. nóvember Víkingur-A - HK 4-0
ÁMU
|
|
|
|
12. nóvember 2009
Úrslit úr leikjum í 1. og 2. umferð 1. deildar karla
Keppni í 1. deild karla hefur verið haldið áfram í vikunni. Ritstjóra vefs BTÍ hafa borist úrslit úr tveimur leikjum:
10. nóvember Víkingur-B - Víkingur-A (frestaður leikur úr 1. umferð) 2-4
11. nóvember Víkingur-C - KR 1-4
Úrslit vantar úr leikjum Víkings-A og HK og Víkings-D og Víkings-B, sem fram áttu að fara 11. nóvember. Þau verða sett á vefinn þegar þau hafa borist.
Úrslit úr einstökum leikjum má sjá með því að fara inn á úrslitasíðuna, þ.e. velja Úrslit á flipanum hér að ofan. Síðan er valin 1. deild undir Úrslit vinstra megin á úrslitasíðunni. Þá birtist taflan yfir stöðu liðanna og leikirnir fyrir neðan hana. Með því að smella á úrslit leiks á milli tveggja liða má sjá hvernig einstakir leikir fóru, þegar búið er að lesa úrslitin inn í gagnagrunn um styrkleikalista.
ÁMU
|
|
|
|
12. nóvember 2009
Evrópa sigraði Asíu í úrslitaviðureign
Evrópa sigraði Asíu 6-5 í úrslitaviðureign í keppni álfanna í Istanbúl í gær. Eftir fyrri daginn hafði Asía forystu 3-2 en Evrópa jafnaði seinni daginn. Það kom í hlut Vladimirs Samsonov frá Hvíta-Rússlandi að leika úrslitaleikinn við Li Ching og sigraði hann 3-1.
Í liði Evrópu voru Evrópumeistarinn Michael Maze frá Danmörku, fyrrum Evrópumeistarar Timo Boll frá Þýskalandi og Vladimir Samsonov frá Hvíta-Rússlandi, fyrrum heimsmeistari Werner Schlager frá Austurríki og Kalinikos Kreanga frá Grikklandi.
Í liði Asíu voru heimsmeistarinn Wang Hao frá Kína, Li Ching frá Hong Kong, Chuang Chih Yuan frá Taiwan, Joo Se Hyuk frá Kóreu og Gao Ning frá Singapúr.
ÁMU
|
|
|
|
11. nóvember 2009
Fréttir í nóvember horfnar af vef BTÍ
Til lesenda vefs BTÍ.
Fréttir nóvembermánaðar hurfu af vef BTÍ í gærkvöldi af ókunnum ástæðum. Verið er að leita ástæðunnar og vonandi verða fréttirnar komnar fljótt aftur.
Uppfærsla á styrkleikalistanum 1. nóvember datt einnig út en hefur verið sett inn aftur.
ÁMU
|
|
|
|
10. nóvember 2009
2. umferð í 1. deild karla fer fram miðvikudaginn 11. nóvember
Samkvæmt tilkynningu frá mótanefnd verður 2. umferð í 1. deild karla, sem átti að fara fram 4. nóvember, leikin á morgun, 11. nóvember.
Sjá nánar um leiki í frétt frá 4. nóvember.
ÁMU
|
|
|
|
10. nóvember 2009
Bestu leikmenn Asíu og Evrópu eigast við í keppni í Istanbúl
Bestu leikmenn Asíu og Evrópu eigast við í álfukeppni í Istanbúl í Tyrklandi 10.-11. nóvember. Meðal leikmanna Evrópu eru Evrópumeistarinn Michael Maze frá Danmörku og fyrrum Evrópumeistarar Timo Boll frá Þýskalandi og Vladimir Samsonov frá Hvíta-Rússlandi. Heimsmeistarinn Wang Hao er meðal keppenda Asíu.
Sýnt er frá keppninni á Eurosport.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
08. nóvember 2009
Thor Truelson og Guðrún G. Björnsdóttir sigruðu á afmælismóti Borðtennisdeildar KR
 |
|
Verðlaunahafar í meistaraflokki karla (Mynd: Hlöðver Þorsteinsson)
|
 |
Góð þáttaka var á alþjóðlegu afmælismóti Borðtennisdeildar KR, sem fram fór í KR-heimilinu í dag. Að loknu móti fór fram afmælismótttaka, þar sem deildin fagnaði 40 ára afmæli sínu.
Nokkuð var um óvænt úrslit á mótinu en í meistaraflokki karla börðust þó þrír stigahæstu leikmennirnir um sigurinn við Thor Truelson frá Bandaríkjunum, sem kom sérstaklega til landsins til að taka þátt í mótinu. Magnús K. Magnússon úr Víkingi sigraði Kjartan Briem úr KR 3-0 til að komast í úrslit á meðan Thor Truelson vann Ingólf Ingólfsson úr KR 3-1. Thor og Magnús áttust við í skemmtilegum úrslitaleik þar sem Magnús sótti en Thor varðist fimlega. Thor hafði sigur í oddalotu 4-3 eftir að Magnús hafði unnið tvær fyrstu loturnar (5-11, 6-11, 11-3, 11-0, 11-9, 10-12, 11-4).
Í meistaraflokki kvenna var enginn erlendur leikmaður og þar sigraði Íslandsmeistarinn Guðrún G. Björnsdóttir úr KR örugglega og vann alla leiki sína 3-0. Í öðru sæti varð Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon, Magnea Ólafs úr Víkingi varð þriðja og Sunna Jónsdóttir frá Akri varð fjórða.
Í 1. flokki karla sigraði Sigurbjörn Sigfússon úr Víkingi Akursmanninn og Þjóðverjann Markús Meckl 3-1 í úrslitum.
Í 1. flokki vann stigahæsti leikmaðurinn, Magnea Ólafs úr Víkingi en önnur varð Sunna Jónsdóttir úr Akri.
Í 2. flokki karla voru 30 leikmenn skráðir til leiks. Sindri Þór Sigurðsson úr Víkingi sigraði en hann var ekki meðal 8 stigahæstu leikmannanna á mótinu. Í úrslitum vann Sindri Íslandsmeistarann úr 2. flokki, Tómas Inga Shelton úr KR 3-1 (9-11, 11-9, 13-11, 11-3).
Sigurvegari í 2. flokki kvenna var G. Magnea Clausen úr KR, sem lagði færeysku unglingalandsliðsstúlkuna Liv Öster 3-0 í úrslitaleiknum (11-1, 11-6, 11-8).
Einnig var keppt í tvíliðaleik á mótinu. Í karlaflokki sigruðu Ingólfur Ingólfsson og Kjartan Briem úr KR þá Thor Truelson frá Bandaríkjunum og Jakob Jörgensen frá Danmörku, en Jakob keppir fyrir KR. Úrslitaleikurinn var spennandi og lauk með 3-1 (11-7, 5-11, 11-9, 12-10) sigri Ingólfs og Kjartans. Víkingarnir Daði Freyr Guðmundsson og Magnús Finnur Magnússon, og Magnús K. Magnússon og Sigurður Jónsson hrepptu bronsverðlaunin.
Í tvíliðaleik kvenna sigruðu KR-stúlkurnar Guðrún G. Björnsdóttir og Sigrún Ebba Tómasdóttir. Þær unnu alla sína leiki 3-0. G. Magnea Clausen úr KR og Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr Dímon höfnuðu í 2. sæti, færeysku unglingalandsliðsstúlkurnar Liv Öster og Vár Holm urðu þriðju og HK-stúlkurnar Hrefna Namfa Finnsdóttir og Kristín Gyða Guðmundsdóttir fjórðu.
Nánari úrslit:
ÁMU (uppfært 9.11.)
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
07. nóvember 2009
Úrslit úr liðakeppni á afmælismóti Borðtennisdeildar KR
 |
|
Verðlaunahafar í liðakeppni kvenna (mynd: Hlöðver Þorsteinsson)
|
 |
Í dag var keppt í liðakeppni á 40 ára afmælismóti Borðtennisdeildar KR. Keppt var í þremur flokkum, karlaflokki, kvennaflokki og flokki drengja 18 ára og yngri. Leikið var í tveggja manna liðum og leiknir tveir einliðaleikir. Ef staðan var jöfn eftir þessa leiki var leikinn tvíliðaleikur til úrslita.
Í karlaflokki sigruðu Víkingarnir Magnús K. Magnússon og Sigurður Jónsson og unnu alla sína leiki 2-0. Þeir unnu KR-ingana Davíð Jónsson og Pétur Martein Tómasson 2-0 í úrslitaleik en KR-ingarnir ungu höfðu sigrað tvö sterkari pör til að komast í úrslitin. Bronsverðlaunin hlutu þeir Ingólfur Ingólfsson úr KR og Jón Ingi Árnason úr HK og Víkingarnir Daði Freyr Guðmundsson og Magnús Finnur Magnússon.
Í kvennaflokki hefndu færeysku stúlkurnar Liv Öster og Vár Holm fyrir ósigurinn í unglingalandsleiknum um morguninn og sigruðu í flokknum. Þrjú pör kepptu og unnu hvern sinn leikinn en færeysku stúlkurnar höfðu hagstæðasta vinningshlutfallið. Í öðru sæti urðu Guðrún G. Björnsdóttir KR og Hrefna Namfa Finnsdóttir HK og bronsið fengu Bergrún Linda Björgvinsdóttir Dímon og Magnea Clausen úr KR.
Í drengjaflokki unnu Jóhannes Bjarki Tómasson og Kári Mímisson úr KR alla sína leiki 2-0 og sigruðu í flokknum. Þeir unnu Daníel Bergmann og Sindra Þór Sigurðsson úr Víkingi í úrslitaleiknum. Í 3.-4. sæti höfnuðu bræðurnir Pétur og Skúli Gunnarssynir úr KR og færeysku unglingarnir Knútur Jóanesarson og Sveinur Nolsöe.
Keppni heldur áfram kl. 9 á morgun, sunnudag, með keppni í tvíliðaleik. Keppni í einliðaleik hefst kl. 10 og í meistaraflokki kl. 13.
ÁMU (uppfært 5.12.)
|
|
|
|
07. nóvember 2009
Íslenskur sigur í unglingalandsleikjum á móti Færeyjum
 |
|
Unglingalandsliðin með þjálfurum (mynd: Hlöðver Þorsteinsson)
|
 |
Íslensku unglingarnir unnu öruggan sigur á liði Færeyja í unglingalandsleikjum í KR-heimilinu í dag. Íslensku unglingarnir unnu alla leikina. Leikið var samkvæmt Corbillion fyrirkomulagi og var ákveðið að leika alla fimm leikina. Leikjunum lauk því 5-0 fyrir Ísland.
Keppt var í flokkum sveina og meyja 15 ára og yngri. Færeysku keppendurnir voru þó lítið eitt yngri en þeir íslensku, stúlkurnar fæddar árið 1996 en drengirnir árið 1997 en íslensku keppendurnir fæddir 1995 og 1996.
Úrslit:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
06. nóvember 2009
Unglingalandsliðið á móti Færeyjum tilkynnt
Kristján Viðar Haraldsson, unglingalandsliðsþjálfari hefur valið unglingalandsliðið, sem leikur við Færeyjar í KR-heimilinu 7. nóvember. Þessir leikmenn munu leika við færeysku unglingana Knút Jóanesarson, Svein Nolsøe, Vár Holm og Liv Öster:
Pétur Gunnarsson, KR
Skúli Gunnarsson, KR
Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR
Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon
ÁMU
|
|
|
|
05. nóvember 2009
Unglingalandsleikur við Færeyjar á laugardaginn 7. nóvember
 |
|
Bræðurnir Pétur og Skúli Gunnarssynir eru í unglingalandsliðshópnum
|
 |
Þann 7. nóvember verður unglingalandsleikur við Færeyjar í KR-heimilinu, og hefst leikurinn kl. 11.30. Leikið verður í flokkum sveina og meyja 15 ára og yngri. Færeysku leikmennirnir koma hingað í tenglsum við afmælismót Borðtennisdeildar KR.
Kristján Viðar Haraldsson, unglingalandsliðsþjálfari hefur valið landsliðshóp unglinga fyrir leikina. Eftirtaldir leikmenn skipa hópinn:
Pétur Gunnarsson, KR
Skúli Gunnarsson, KR
Bolli Magnússon, HK
Logi Ágústsson, Víkingur
Pétur Andrésson, HK
Omar Waldosson, Dímon
Sindri Þór Ingimarsson, HK
Adrían Héðinsson Gonzalez, HK
Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR
Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon
Hrefna Namfa Finnsdóttir, HK
Hólmfríður Snorradóttir, HK
Cristina Waldosdóttir, Dímon
Endanlegt lið verður tilkynnt föstudaginn 6. nóvember.
ÁMU
|
|
|
|
05. nóvember 2009
Tilkynning frá mótanefnd
F.h. mótanefndar biðst ég velvirðingar á þeim mistökum sem áttu sér stað þegar unnið var að frestun leikja í 2. umferð. 1. deildar karla, en í ljós kom að HK vissi ekki af frestinum og mætti til leiks. Mótanefnd stóð í þeirri meiningu að Víkingur hefði haft samráð við HK en svo var ekki. Mótanefnd mun leggja áherslu á að haft verði samband við liðin ef slíkra frestana verður óskað í framtíðinni. F.h. mótanefndar.
Daði Freyr Guðmundsson
|
|
|
|
04. nóvember 2009
2.umferð 1.deild karla seinkar um viku
2.umferð 1.deild karla seinkar um viku. Og fer fram á næsta miðvikudag.
Miðvikudagur 11.nóvember.
Víkingur-D - Víkingur-B kl.18:00 í TBR
Víkingur-A - HK kl.19:00 í TBR
Víkingur-C - KR kl.19:00 í TBR
Mótanefnd
|
|
|
|
04. nóvember 2009
Yfirlýsing frá stjórn BTÍ vegna niðurstöðu Dómstóls ÍSÍ vegna kæru Víkings á leikbanni
"Yfirlýsing frá stjórn BTÍ vegna niðurstöðu Dómstóls ÍSÍ vegna kæru Víkings á leikbanni Magnúsar K. Magnússonar.
Eftirfarandi dómsúrskurður hefur verið kveðinn upp af hálfu Dómstóls ÍSÍ af dómara málsins, Hilmari Gunnlaugssyni hrl.:
"Dómsorð:
Úrskurður Aganefndar BTÍ frá 13. október 2009 þar sem Magnús K. Magnússon, Víkingi, var úrskurðaður í fjögurra vikna keppnisbann vegna atviks í Adidasmóti Víkings, laugardaginn 10. október 2009, er felldur úr gildi."
Stjórn BTÍ mun ekki áfrýja þessari niðurstöðu og lítur svo á málinu sé endanlega lokið milli aðila og er Magnúsi K. því heimilt að spila á næstu mótum á vegum BTÍ.
Fh. stjórnar BTÍ,
Snorri Páll Einarsson
Formaður"
|
|
|
|
04. nóvember 2009
2. umferð í 1 deild karla fer fram í vikunni
Keppni í 1. deild karla verður haldið áfram í vikunni. Samkvæmt mótaáætlun mótanefndar eru þessir leikir á dagskrá:
Miðvikudagur 4. nóvember Víkingur-A - HK kl. 19.00 í TBR
Fimmtudagur 5. nóvember Víkingur-D - Víkingur-B kl. 18.00 í TBR
Fimmtudagur 5. nóvember Víkingur-C - KR kl. 20.00 í TBR
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
ÁMU
|
|
|
|
02. nóvember 2009
Breyting á tímaáætlun í meistaraflokki karla á afmælismóti Borðtennisdeildar KR
Vegna góðrar þátttöku á afmælismóti Borðtennisdeildar KR sunnudaginn 8. nóvember verður keppni í meistaraflokki karla flýtt um hálftíma. Keppendur eru því beðnir um að vera mættir til að hefja keppni kl. 13.00 í stað kl. 13.30.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
01. nóvember 2009
Styrkleikalisti 1. nóvember 2009 birtur á vef BTÍ
 |
Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2009 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að listinn fyrir 1. október var birtur hafa eftirtalin mót verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 124 leikir:
Punktamót Víkings og Adidas 10. október 2009
Punktamót Víkings og Nings 24. október 2009
2 leikir í 1. umferð í 1. deild karla 2009
Hægt er að skoða úrslit úr mótum sem fara inn í styrkleikalistann með því að velja Úrslit á vef BTÍ, og síðan viðkomandi keppnistímabil, mót og flokk. Ef eitthvað er rangt skráð vinsamlegast látið þá umsjónarmann listans vita, netfang astaurb@gmail.com.
Nánari upplýsingar um styrkleikalista og útreikning stiga má sjá í skjalinu: Um_styrkleikalista_BTI_2009
Sjá má hvernig forritið fyrir styrkleikalista vinnur með því að skoða sk. logskrá. Þar má skoða stigagjöf fyrir hvern leik fyrir sig og sjá hversu mörg stig leikmenn vinna og tapa fyrir hvern leik. Til að finna nafn einstakra leikmanna þarf að velja Control takkann og F samtímis og slá síðan nafn leikmannsins inn í gluggann sem þá birtist.
Sjá skjalið: Rating_1.11.2009
ÁMU
|
|
|
|
31. október 2009
HK sigraði Víking-C í 1. umferð í 1. deild karla
HK sigraði Víking-C 4-2 í fyrstu umferð í 1. deild karla miðvikudaginn 28. október. Nánari úrslit má sjá á úrslitasíðu vefsins á morgun, 1. nóvember, en þá verða þau sett inn.
Úrslit úr einstökum leikjum má sjá með því að fara inn á úrslitasíðuna, þ.e. velja Úrslit á flipanum hér að ofan. Síðan er valin 1. deild undir Úrslit vinstra megin á úrslitasíðunni. Þá birtist taflan yfir stöðu liðanna og leikirnir fyrir neðan hana. Með því að smella á úrslit leiks á milli tveggja liða má sjá hvernig einstakir leikir fóru, þegar búið er að lesa úrslitin inn í gagnagrunn um styrkleikalista.
ÁMU
|
|
|
|
28. október 2009
Frestun leiks Víkings A og Víkings B
Leikur Víkingur A – Víkingur B verður frestað þar til úrskurður kemur frá dómstólum ÍSÍ varðandi áfrýunarmáls vegna ákvörðunar stjórnar BTÍ að setja leikmann Víkings A í mánaðarbann. Og verður honum frestað þar til úrskurður kemur.
Mótanefnd
|
|
|
|
 |
 |
26. október 2009
Afmælismót Borðtennisdeildar KR verður haldið 7.-8. nóvember
 |
Borðtennisdeild KR heldur upp á 40 ára afmæli deildarinnar með alþjóðlegu afmælismóti helgina 7.-8. nóvember. Mótið fer fram í KR-heimilinu.
Laugardaginn 7. nóvember verður keppt í liðakeppni og hefst keppni kl. 14. Hvert lið samanstendur af tveimur leikmönnum. Til að vinna heilan liðsleik þarf að vinna tvo staka leiki. Spilaformið er fyrst tveir einliðaleikir og ef staðan er 1-1 er tvíliðaleikur úrslitaleikur. Spilað í riðlum og síðan með útslætti. Engin röðun verður í liðakeppnina önnur en sú að leitast verður við að lið frá sama félagi lendi ekki saman í riðli. Flokkur verður sameinaður næsta flokki fyrir ofan ef færri en 4 eru skráðir.
Flokkar: Junior (fæddir 1992 eða seinna), U21 (ef næg lið), karlar/konur.
Aðalmótið verður sunnudaginn 8. nóvember. Keppt í einliðaleik og tvíliðaleik.
Flokkar: meistaraflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur. Heimilt er að leika í tveimur einliðaleiksflokkum og tvíliðaleik.
Tímaáætlun:
09:00 Tvíliðaleikir karla og kvenna
10:00 1. flokkur karla og kvenna
11:30 2. flokkur karla og kvenna
13:30 meistaraflokkur karla og kvenna
16:30 áætlaður tími úrslitaleiks í meistaraflokkum
Í öllum einliðaleiksflokkum er keppt í riðlum og svo með útslætti. Flokkur verður sameinaður næsta flokki fyrir ofan ef færri en 4 eru skráðir. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik í öllum flokkum, nema í úrslitum í meistaraflokkum, þar verða 4 unnar lotur.
Í tvíliðaleik verður leikinn einfaldur útsláttur. Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum.
Allir leikmenn skulu leika í búningum síns félags/lands.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjöld: Liðakeppni 2000 krónur á lið, meistaraflokkar 1000 krónur á mann, aðrir flokkar 500 krónur á mann, tvíliðaleikir 500 krónur á par.
Skráningar berist í síðasta lagi 1. nóvember 2009. ATH! Ekki verður tekið við skráningum sem berast síðar. Skráningar sendist til Kjartans Briem, netfang kjartan@vodafone.is og hann veitir einnig frekari upplýsingar.
Dregið verður í félagsheimili KR (bikaraherbergi) mánudagskvöldið 2. nóvember klukkan 20:30.
Yfirdómarar: Gunnar Jóhannsson og Finnur Hrafn Jónsson.
Mótanefnd: Gunnar Jóhannsson, Ásta Urbancic, Kristján Viðar Haraldsson, Kjartan Briem og Ingólfur Sveinn Ingólfsson.
Borðtennisdeild KR vinnur hörðum höndum að því að fá erlenda leikmenn á mótið og er vonast eftir sem flestum íslenskum leikmönnum að auki.
Eftir mót, kl. 17, verður móttaka í félagsheimilinu í KR í tilefni af 40 ára afmælinu. Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi bréfi:
krmot09
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
24. október 2009
Úrslit úr punktamóti Víkings og Nings
 |
|
Sigurður Jónsson sigraði í meistaraflokki karla
|
 |
Punktamót Víkings og Nings fór fram í TBR húsinu laugardaginn 24. október. Keppt var í 1. flokki kvenna, 1. flokki og meistaraflokki karla, sem og í eldri flokki karla.
Í undanúrslitum í meistaraflokki karla léku annars vegar Sigurður Jónsson og Kristján Jónasson, og hins vegar Daði Freyr Guðmundsson og Magnús Finnur Magnússon. Allir koma þeir úr Víkingi. Sigurður sigraði Kristján og Daði vann Magnús. Sigurður sigraði síðan Daða 11-9 í oddalotu í úrslitaleiknum.
Tvær stúlkur mættu til leiks í 1. flokki kvenna. Magnea Ólafs úr Víkingi sigraði Eyrúnu Elíasdóttur úr Víkingi 3-0.
Í 1. flokki karla sigraði Sigurbjörn Sigfússon úr Víkingi. Hann vann Jóhann Rúnar Kristjánsson úr Nesi 3-1 (11-1, 7-11, 11-4, 11-6) í úrslitum. Bronsverðlaunin hlutu Pétur Stephensen og Sindri Sigurðsson, báðir úr Víkingi.
Í eldri flokki karla vann Pétur Stephensen úr Víkingi Emil Pálsson úr Víkingi 3-1 (11-9, 9-11, 11-5, 11-6) í úrslitaleiknum. Í 3.-4 senti höfnuðu Bjarni Gunnarsson úr KR og Sigurður Herlufsen úr Víkingi.
Úrslit:
Meistaraflokkur karla:
1. Sigurður Jónsson, Víkingi
2. Daði Freyr Guðmundsson, Víkingi
3.-4. Kristján Jónasson, Víkingi
3.-4. Magnús Finnur Magnússon, Víkingi
1. flokkur kvenna:
1. Magnea Ólafs, Víkingi
2. Eyrún Elíasdóttir, Víkingi
1. flokkur karla:
1. Sigurbjörn Sigfússon, Víkingi
2. Jóhann R. Kristjánsson, Nes
3.-4. Pétur Stephensen, Víkingi
3.-4. Sindri Sigurðsson, Víkingi
Eldri flokkur karla:
1. Pétur Stephensen, Víkingi
2. Emil Pálsson, Víkingi
3.-4. Bjarni Gunnarsson, KR
3.-4. Sigurður Herlufsen, Víkingi
ÁMU (uppfært 25.10.)
|
|
|
|
24. október 2009
Úrslit úr 1. umferð í 1. deild karla
Þann 22. október var leikinn fyrsti leikurinn í 1. deild karla í vetur. KR tók á móti D-liði Víkings í KR-heimilinu við Frostaskjól. Leiknum lauk með 4-0 sigri KR.
Hinum leikjunum tveimur, sem áttu að fara fram í 1. umferð var frestað til 28. október.
Í vetur er leikið eftir breyttu fyrirkomulagi í 1. deild karla, þar sem leikið er samkvæmt þriggja manna Corbillion kerfi. Þá eru leiknir þrír einliðaleikir, síðan tvíliðaleikur og svo aftur þrír einliðaleikir, ef þörf krefur. Það lið sigrar sem fyrst nær fjórum vinningum. Að loknum 10 umferðum í deildinni fer síðan fram úrslitakeppni.
Úrslit úr einstökum leikjum má sjá á úrslitasíðunni þegar þau hafa verið slegin inn í gagnagrunn styrkleikalistans.
ÁMU
|
|
|
|
21. október 2009
Nings stigamótið laugardaginn 24.okt
Nings stigamótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 24. október 2009.
Keppt verður í punktakeppni, meistara-, 1.flokki, karla og kvenna og eldri flokki karla.
Dagskrá mótsins Laugardagur 24. okt:
kl. 10:30 Eldri flokkur karla
kl. 11:30 1. flokkur karla
kl. 11:30 1. flokkur kvenna
kl. 13:30 Meistaraflokkur karla
kl. 13:30 Meistaraflokkur kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti.
Þátttökugjald í mótið er kr. 500-
Dómari: Bjarni Bjarnason
Mótsstjórn skipa:
Pétur Ó. Stephensen
Matthías Stephensen
Magnús F. Magnússon
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 22. október kl. 19:00 Í TBR-Íþróttahúsinu
Skráningar:
Pétur s-5536862/8940040/pos@itn.is
Magnús F. Magnússon s-8690340
Matthías Stephensen s-5536862/8692962
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 22. október kl. 18:00.
Mótanefnd
|
|
|
|
21. október 2009
Frestanir leikja í 1. deild karla
Borist hafa til mótanefndar beiðnir um frestanir á tveimur leikjum í 1.umferð 1.deildar karla.
Leikur Víkingur-B - Víkingur-A miðvikudaginn 21.okt frestast um eina viku eða til miðvikudagsins 28.okt.
Leikur Víkingur-C - HK fimmtudaginn 22.okt frestast einnig til miðvikudagsins 28.okt.
Báðir leikirnir byrja á sama tíma kl:19 í TBR og hvetur stjórn BTÍ alla borðtennisáhugamenn að mæta og horfa á þessa tvo skemmtilegu leiki.
Mótanefnd
|
|
|
|
19. október 2009
Keppni í 1. deild karla hefst 21. október
Keppni í 1. deild karla keppnistímabilið 2009-2010 hefst 21. október. Leikið verður á miðvikudögum og fimmtudögum í vetur. Í 1. umferð verða þessir leikir:
Miðvikudagur 21. okt. Víkingur-B - Víkingur-A kl. 19.00 í TBR
Fimmtudagur 22. okt. KR - Víkingur-D kl. 19.00 í KR
Fimmtudagur 22. okt. Víkingur-C - HK kl. 19.00 í TBR
Úrslitin verða sett á vef BTÍ eftir að þau hafa borist.
ÁMU
|
|
|
|
13. október 2009
Yfirlýsing frá Stjórn BTÍ
„Úrskurður Aganefndar BTÍ vegna agabrots á Adidasmóti Víkings.
Reykjavík þann 13. október 2009
Aganefnd BTÍ hefur úrskurðað Magnús K. Magnússon, Víkingi, í 4 vikna bann frá keppni vegna atviks í Adidasmóti Víkings, laugardaginn 10. október 2009 þar sem hann varð uppvís af óíþróttamannslegri framkomu gagnvart mótherja sínum í undanúrslitaleik mótsins.
Bannið tekur gildi frá og með næsta móti skv. Mótaskrá BTÍ og bannið gildir í flokkakeppni, í punktamótum og öðrum mótum sem haldin eru í nafni BTÍ.
Það er mat aganefndar BTÍ að umrætt atvik hefði átt að kalla á mun sterkari viðbrögð frá yfirdómara mótsins en raunin varð. Aganefnd BTÍ kallaði eftir skýrslu frá yfirdómara mótsins þar sem greint var frá atburðarrás þeirri sem átti sér stað.
Aganefnd BTÍ lítur svo á að málinu sé þar með lokið. „
|
|
|
|
 |
 |
10. október 2009
Úrslit úr punktamóti Víkings og Adidas 10. október
 |
|
Verðlaunahafar í 1. flokki karla (Mynd: Finnur Hrafn Jónsson)
|
 |
Fyrsta mót keppnistímabilsins var punktamót Víkings og Adidas, sem fram fór í TBR húsinu laugardaginn 10. október. Keppt var í 1. flokki og meistaraflokki karla, sem og í eldri flokki karla. Keppni féll niður í kvennaflokkum vegna þátttökuleysis.
Sá fáheyrði atburður gerðist á mótinu að til handalögmála kom á milli tveggja keppenda í meistaraflokki karla í undanúrslitum mótsins, þeirra Magnúsar Kristins Magnússonar og Magnúsar Finns Magnússonar úr Víkingi. Þurftu viðstaddir að ganga á milli og skilja leikmennina í sundur. Yfirdómari mótsins sá ekki ástæðu til að gefa leikmönnunum áminningu og héldu leikmennirnir áfram keppni nokkru síðar eftir að hafa tekist í hendur. Vann Magnús Kristinn leikinn 3-1.
Magnús Kristinn sigraði síðan Kára Mímisson KR í úrslitaleik 3-0 (11-8, 12-10, 11-6). Þetta er í fyrsta skipti sem Kári kemst í úrslit á móti í meistaraflokki. Einar Geirsson úr KR og Magnús Finnur Magnússon úr Víkingi höfnuðu í 3.-4. sæti.
Í 1. flokki karla sigraði Jóhannes Bjarki Tómasson úr KR, en þetta er í fyrsta skipti sem hann sigrar á móti í 1. flokki. Hann vann Sigurbjörn Sigfússon úr Víkingi 3-0 (11-6, 11-9, 11-8). Bronsverðlaunin hlutu Gunnar Snorri Ragnarsson úr KR og Vignir Kristmundsson úr HK.
Í eldri flokki karla vann Pétur Stephensen úr Víkingi Árna Siemsen úr Erninum 3-1 (11-5, 9-11, 11-5, 11-5). Í 3.-4 senti höfnuðu Bjarni Gunnarsson úr KR og Sigurður Herlufsen úr Víkingi.
Úrslit:
Meistaraflokkur karla:
1. Magnús Kristinn Magnússon, Víkingi
2. Kári Mímisson, KR
3.-4. Einar Geirsson, KR
3.-4. Magnús Finnur Magnússon, Víkingi
1. flokkur karla:
1. Jóhannes Bjarki Tómasson, KR
2. Sigurbjörn Sigfússon, Víkingi
3.-4. Gunnar Snorri Ragnarsson, KR
3.-4. Vignir Kristmundsson, HK
Eldri flokkur karla:
1. Pétur Stephensen, Víkingi
2. Árni Siemsen, Erninum
3.-4. Bjarni Gunnarsson, KR
3.-4. Sigurður Herlufsen, Víkingi
ÁMU (endurskrifað og sett inn aftur 17. og 18.10.)
|
|
|
|
07. október 2009
Mótaskrá fyrir 1. deild karla 2009-2010
Mótanefnd BTÍ hefur birt dagskrá keppni í 1. deild karla keppnistímabilið 2009-2010. Keppni hefst 21. október og verður leikið á miðvikudögum og fimmtudögum. Síðasta umferð í deildinni verður dagana 17.-18. mars. Þá tekur við úrslitakeppni, eins og samþykkt var á aukaþingi BTÍ þann 31. janúar sl.
Í vetur leika fjögur lið frá Víkingi í deildinni, HK og KR.
Dagskráin fylgir hér með í viðhengi.
1.deild_karla_2009-2010
ÁMU
|
|
|
|
05. október 2009
Adidas stigamót Víkings verður haldið 10. október
Adidas stigamótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu (stóra salnum) laugardaginn 10. október 2008.
Keppt verður í meistara- og 1. flokki karla og kvenna, sem og eldri flokki karla.
Tímaáætlun:
kl. 10:30 Eldri flokkur karla
kl. 11:30 1. flokkur karla
kl. 11:30 1. flokkur kvenna
kl. 13:30 Meistaraflokkur karla
kl. 13:30 Meistaraflokkur kvenna
Keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti.
Þátttökugjald í mótið er kr. 500.
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 Í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar: Pétur s-5536862/8940040/pos@itn.is, Magnús F. Magnússon s-8690340, Matthías Stephensen s-5536862/8692962.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 8. október kl. 18:00.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi fylgiskjali:
Adidas_motid_2009_okt
ÁMU (uppfært 7.10.)
|
|
|
|
30. september 2009
Styrkleikalisti fyrir 1. október hefur verið birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. október 2009 hefur verið birtur á vefsíðu Borðtennissambands Íslands. Listinn er óbreyttur frá listanum 1. júní, þar sem ekkert mót hefur verið haldið síðan 1. júní.
ÁMU
|
|
|
|
26. september 2009
Mótaskrá fyrir keppnistímabilið 2009-2010
Stjórn BTÍ hefur birt mótaskrá fyrir keppnistímabilið 2009-2010. Fyrsta mótið verður stigamót Víkings laugardaginn 10. október. Meðal annarra móta má nefna að Borðtennisdeild KR heldur alþjóðlegt afmælismót í byrjun nóvember.
Mót til áramóta:
10. október 2009 Stigamót Víkings
24. október 2009 Stigamót Víkings
25. október 2009 Stigamót Víkings
7. nóvember 2009 Alþjóðlegt afmælismót Borðtennisdeildar KR
8. nóvember 2009 Alþjóðlegt afmælismót Borðtennisdeildar KR
28. nóvember 2009 Grand-Prix mót Víkings
5. desember 2009 Stigamót HK
12. desember 2009 Stigamót Víkings
19. desember 2009 Stigamót Víkings
Mótaskráin fylgir hér með í viðhengi.
Motaskra_BTI_2009-2010
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
21. september 2009
Michael Maze og Wu Jiaduo Evrópumeistarar í einliðaleik
 |
|
Nýkrýndur Evrópumeistari, Michael Maze (mynd af heimasíðu ETTU)
|
 |
Evrópumeistarnir í einliðaleik karla og kvenna féllu bæði úr leik í undanúrslitum á Evrópumeistaramótinu í Stuttgart og voru nýir meistarar krýndir í báðum flokkum.
Daninn Michael Maze, sem var raðað sem 3. sterkasta manni mótsins, sigraði Evrópumeistara síðustu tveggja móta, Þjóðverjann Timo Boll 4-3 (11-6, 13-11, 11-5, 6-11, 8-11, 7-11, 11-5) í undanúrslitum. Hann endurtók því leikinn frá því í liðakeppninni. Í hinum undanúrslitunum lagði fyrrum heimsmeistari í einliðaleik, Austurríkismaðurinn Werner Schlager, Rússann Fedor Kuzmin 4-1 (11-4, 9-11, 11-7, 11-8, 18-16). Maze sigraði nokkuð örugglega í úrslitaleiknum, eða 4-1 (11-8, 11-8, 12-10, 6-11, 11-7) og vann þar með alla 16 leiki sína á mótinu.
Í einliðaleik kvenna kom unglingameistari Evrópu Margaryta Pesotska frá Úkraínu enn á óvart og sigraði Evrópumeistara kvenna, Litháann Rutu Paskauskiene 4-2 (13-11, 3-11, 11-9, 11-3, 14-16, 11-9) í undanúrslitum. Hún komst þó ekki lengra í þetta skiptið og mátti lúta í lægra haldi fyrir heimastúlkunni Wu Jiaduo í úrslitaleiknum. Wu, sem hafði sigrað Viktoríu Pavlovich frá Hvíta-Rússlandi í undanúrslitum 4-3 (8-11, 11-9, 8-11, 11-2, 11-8, 7-11, 11-6) hafði nokkra yfirburði í úrslitaleiknum og sigraði 4-0 (11-8, 11-5, 11-9, 11-5).
Sigurvegari í huggunarkeppni í einliðaleik karla var ítalinn Marco Rech Daldosso og þýski unglingurinn Petrissa Solja sigraði í kvennaflokki.
Evrópumeistarar í tvíliðaleik kvenna urðu rúmensku stúlkurnar Elizabeta Samara og Daniela Dodean. Þær sigruðu ítölsku stúlkurnar Nikoletu Stefanovu og Tan Wenling örugglega 4-0 (11-7, 11-7, 13-11, 11-4) í úrslitaleiknum.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
19. september 2009
Boll og Süss Evrópumeistarar í tvíliðaleik karla þriðja skiptið í röð
 |
|
Boll og Süss sigruðu í tvíliðaleik þriðja árið í röð (Mynd af heimasíðu ETTU)
|
 |
Þjóðverjarnir Timo Boll og Christian Süss urðu Evrópumeistarar í tvíliðaleik karla þriðja árið í röð, þegar þeir sigruðu Pólverjana Wang Zeng Yi og Lucjan Blaszczyck 4-2 (11-9, 4-11, 11-7, 10-12, 11-9, 11-6) í úrslitum. Boll og Süss sigruðu Bojan Tokic frá Slóveníu og Aleksandar Karakasevic frá Serbíu 4-1 í undanúrslitum en hin bronsverðlaunin hlutu Frakkarnir Damien Eloi og Emmanuel Lebesson.
Úrslitaleikurinn í tvíliðaleik kvenna fer fram á morgun. Þar mætast annars vegar ítalska parið Nikoleta Stefanova og Wan Tenling og hins vegar Elizabeta Samara og Daniela Dodean frá Rúmeníu. Bronsverðlaun hlutu Ruta Paskauskiene frá Litháen og Oksana Fadeeva frá Rússlandi og heimastúlkurnar Zhenqi Barthel og Kristin Silbereisen.
Í undanúrslitum í einliðaleik karla á morgun mætast Evrópumeistarinn frá Þýskalandi Timo Boll og Michael Maze frá Danmörku. Boll freistar þess að verða þrefaldur Evrópumeistari þriðja skiptið í röð, og hefur þegar unnið tvenn gullverðlaun á þessu móti. Í hinum undanúrslitunum leika Fedor Kuzmin frá Rússlandi og fyrrum heimsmeistari í einliðaleik Werner Schlager frá Austurríki. Schlager sigraði næst stigahæsta mann mótsins, Vladimir Samsonov frá Hvíta-Rússlandi 4-3 í 8 manna úrslitum.
Í einliðaleik kvenna mætast í undanúrslitum Evrópumeistari unglinga Margaryta Pesotska frá Úkraínu, sem sigraði fyrrum Evrópumeistara Liu Jia frá Austurríki 4-3. Hún mætir núverandi Evrópumeistara, Ruta Paskauskiene frá Litháen í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitunum mætast Wu Jiaduo frá Þýskalandi og Viktoria Pavlovich frá Úkraínu.
Ekki var keppt í tvenndarkeppni á þessu móti heldur var sérstakt tvenndarkeppnismót haldið vikunni áður í Subotica í Serbíu. Evrópumeistarar urðu Ruta Paskauskiene frá Litháen og Aleksandar Karakasevic frá Serbíu en þau höfðu unnið þennan titil þrisvar áður. Þau sigruðu Viktoriu Pavlovich og Evgueni Chtchetinine frá Hvíta-Rússlandi í úrslitum. Bronsið hlutu He Sirin og Bora Vang frá Tyrklandi og Elizabeta Samara og Andrei Filimon frá Rúmeníu.
Sýnt verður frá undanúrslitum í einliðaleik kvenna á Eurosport sunnudagsmorguninn 20. september og aftur verður sýnt frá mótinu kl. 15.45. Einnig má fylgjast með útsendingu á vef ETTU,
www.ettutv.com.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
18. september 2009
Íslensku karlarnir úr leik í B-keppninni í einliðaleik
 |
|
Daði Freyr og hinir íslensku karlarnir hafa lokið keppni á EM
|
 |
Íslensku karlarnir hafa lokið keppni í B-keppninni í einliðaleik og töpuðu þeir allir 0-3 í fyrsta leik sínum. Daði tapaði fyrir leikmanni frá Kosovo, Magnús fyrir leikmanni frá Sviss og Richard tapaði fyrir keppanda frá Azerbajdan í þremur jöfnum lotum.
Guðmundur tók ekki þátt í B-keppninni þar sem hann komst í 3. umferð í einliðaleik.
Úrslit hjá íslensku körlunum:
Daði Freyr Guðmundsson - Linor Citaku, Kosovo 0-3 (9-11, 8-11, 6-11)
Magnús K. Magnússon - Denis Joset, Sviss 0-3 (5-11, 3-11, 5-11)
Richard H. Magnason - Jafar Jararzade, Azerbajdan 0-3 (8-11, 11-13, 13-15)
Eftir daginn er komið að 8 manna úrslitum í einliðaleik karla og kvenna. Fjórir af 8 bestu körlunum og konunum eru með í 8 manna úrslitum. Hinn ungi Dimitrij Ovtcharov frá Þýskalandi (nr. 4), Kalinikos Kreanga frá Grikklandi (nr. 5), Zoran Primorac frá Króatíu og Weixing Chen frá Austurríki (nr. 8, meiddist) eru fallnir úr keppni í einliðaleik karla.
Í kvennaflokki er Evrópumeistarinn í liðakeppni, Li Jiao frá Hollandi, sem var raðað nr. 2 fallin úr leik, sem og Li Qian frá Póllandi (nr. 4).
ÁMU
|
|
|
|
17. september 2009
Guðmundur er úr leik í einliðaleik á EM
Keppni hélt áfram í dag í einliðaleik karla á EM í Stuttgart. Guðmundur Stephensen var eini Íslendingurinn, sem enn var með í einliðaleik eftir fyrstu umferðina. Í 2. umferð mætti Guðmundur Aleksandr Smirnov frá Eistlandi. Guðmundur er nr. 177 á heimslistanum í september en Smirnov nr. 425. Guðmundur vann öruggan 4-0 sigur (11-8, 13-11, 13-11, 11-2).
Síðdegis lék Guðmundur í 3. umferð við Tiago Apolonia frá Portúgal. Hann er í 78. sæti á heimslistanum. Portúgalinn sigraði Guðmund 4-1 (11-9, 11-6, 11-1, 10-12, 11-8). Guðmundur er þar með úr leik á mótinu.
Keppni á mótinu heldur áfram og lýkur með úrslitaleikjum sunnudaginn 20. september.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
16. september 2009
Einstaklingskeppnin hófst á EM í dag
 |
|
Guðmundur og Magnús töpuðu í oddalotu í tvíliðaleik í dag
|
 |
Keppni hófst í dag í einliðaleik og tvíliðaleik karla á EM í Stuttgart. Íslensku pörin kepptu í einliðaleik og tvíliðaleik, nema hvað Guðmundur sat hjá í einliðaleik. Guðmundur mætir Aleksandr Smirnov frá Eistlandi á morgun. Guðmundur er nr. 177 á heimslistanum í september en Smirnov nr. 425.
Hinir karlarnir þrír féllu allir úr leik í 1. umferð. Richard var næst því að komast áfram og tapaði 3-4 fyrir Vladimir Petkov frá Búlgaríu. Magnús lenti líka á móti Búlgara, Stanislav Golovanov, og tapaði 0-4. Daði mætti kunningja íslenska liðsins úr liðkeppninni þegar hann tapaði 0-4 fyrir Admir Duranspahic frá Bosníu-Herzegóvínu.
Íslensku pörin léku einnig í tvíliðaleik í dag. Guðmundur og Magnús töpuðu 2-3 fyrir pari frá Armeníu og Daði og Richard töpuðu 0-3 fyrir sænsk-ítölsku pari.
Eftir leiki dagsins hafa því aðrir leikmenn íslenska liðsins en Guðmundur lokið keppni.
Úrslit dagsins hjá íslenska liðinu:
Daði Freyr Guðmundsson - Admir Duranspahic, Bosníu-Herzegóvínu 0-4 (1-11, 3-11, 3-11, 3-11)
Magnús K. Magnússon - Stanislav Golovanov, Búlgaríu 0-4 (7-11, 6-11, 6-11, 6-11)
Richard H. Magnason - Vladimir Petkov, Búlgaríu 3-4 (11-4, 1-11, 11-3, 8-11, 11-9, 4-11, 6-11)
Guðmundur E. Stephensen/Magnús K. Magnússon - Mesrop Ghukasyan/Murad Asatryan, Armeníu 2-3 (3-11, 9-11, 11-7, 12-10, 6-11)
Daði Freyr Guðmundsson/Richard H. Magnason - Kristian Karlsson/Marco Rech Daldosso, Svíþjóð/Ítalíu 0-3 (4-11, 2-11, 6-11)
Í dag var leikið til úrslita í liðakeppni karla og kvenna. Í báðum flokkum vörðu Evrópumeistarnir titla sína. Þýskaland sigraði í þriðja skiptið í röð þegar þeir lögðu Danmörku 3-2. Michael Maze fór á kostum og vann báða sína leiki, en það dugði ekki til.
Í kvennaflokki varði Holland titilinn sem liðið vann á síðasta móti, og lagði Pólland 3-1 í úrslitum. Athygli vakti að í hvoru liði fyrir sig voru tveir kínverskir leikmenn. Þriðji leikmaður hollenska liðsins var hin rússnesk fædda fertuga Elena Timina.
Sýnd var samantekt frá úrslitaleikjunum á Eurosport og boðar stöðin fleiri sýningar frá mótinu næstu daga.
ÁMU
|
|
|
|
 |
 |
15. september 2009
Íslensku karlarnir í 41. sæti á EM
 |
|
Richard vann sinn leik á móti Kosovo
|
 |
Íslenska karlalandsliðið tapaði 0-3 fyrir Hollendingum í síðasta leik sínum í I-riðli á EM í Stuttgart. Guðmundur hvíldi í þetta sinn en Magnús og Richard unnu hvor sína lotu. Holland varð í efsta sæti riðilsins en Ísland hafnaði í 6. sæti af 7 liðum.
Síðdegis var leikið upp úr riðlunum um sæti 41-44. Ísland lék við Kosovo, sem varð í 5. sæti í J-riðli. Skemmst er frá því að segja að íslensku karlarnir unnu öruggan 3-0 sigur og töpuðu ekki lotu í leiknum. Guðmundur, Magnús og Richard léku þennan leik.
Liðið lék því um 41. sæti við Azerbajdan, sem vann Ísland 3-2 í riðlinum. Þegar þetta er ritað liggja úrslitin ekki fyrir.
Í kvöld leika einnig Malta og Kosovo um sæti 43 og 44 en Liechtenstein hafnaði í 45. og neðsta sæti.
Í úrslitum í karlaflokki leika Evrópumeistarar Þjóðverja við Dani, sem urðu Evrópumeistarar árið 2005. Þýskaland sigraði Rúmeníu örugglega 3-0 og Danmörk vann Austurríki.
Í kvennaflokki mætast Evrópumeistarar Hollendinga og Pólland í úrslitum en Tékkland og Króatía hljóta bronsið.
Hægt er að fylgjast með mótinu á vefnum og þar er einnig sýnt beint frá mótinu á vef ETTU, www.ettutv.com
Skv. upplýsingum á vefnum mbl.is sigraði Ísland Azerbajdan 3-1 í síðasta leiknum og hafnaði því í 41. sæti. Strákarnir hefndu þar með fyrir naumt tap í riðlinum.
Nánari úrslit:
ÁMU (uppfært 16.9.)
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
14. september 2009
Íslensku karlarnir töpuðu báðum leikjum dagsins naumlega á EM
 |
|
Guðmundur vann alla leiki sína í dag
|
 |
Íslenska karlalandsliðið lék tvo leiki á EM í Þýskalandi í dag og tapaði báðum leikjunum 2-3. Fyrst léku karlarnir við Lúxemborg og síðan við Azerbajdan og niðurstaðan varð sú sama í báðum leikjunum. Guðmundur Stephensen vann alla fjóra leiki sína í dag en hinir liðsmenn landsliðsins unnu ekki leik.
Á móti Lúxemborg vann Magnús eina lotu á móti Gilles Michely en Daði, sem lék sem þriðji maður tapaði 0-3.
Richard lék sem þriðji maður á móti Azerbajdan og vann eina lotu í sínum leik.
Á morgun lýkur Ísland keppni í riðlinum með leik við Hollendinga. Holland er eina liðið í riðlinum sem er taplaust. Lúxemborg er í öðru sæti og hefur unnið öll liðin nema Holland.
Komið er að undanúrslitum í efstu deild mótsins í karlaflokki. Þar mætast í karlaflokki annars vegar Evrópumeistarar Þjóðverja og Rúmenía, og hins vegar Danmörk og Austurríki.
Í kvennaflokki fara undanúrslitin fram 15. september. Þar hefur verið nokkuð um óvænt úrslit. Liðin sem leika í 8 liða úrslitum eru Holland og Hvíta-Rússland, Tékkland og Rúmenía, Króatía og Frakkland og Þýskaland og Pólland.
Fylgjast má með úrslitum á heimasíðu mótsins http://www.vitesseonline.it/Ch09Liebherr/
Nánari úrslit:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
 |
 |
13. september 2009
Sigur og tvö töp hjá íslensku körlunum á fyrsta degi EM
 |
|
Guðmundur, Magnús og Bjarni þjálfari (frá Smáþjóðaleikunum)
|
 |
Evrópumeistaramótið í borðtennis hófst í Stuttgart í Þýskalandi í dag. Keppni hófst með liðakeppni og léku íslensku karlarnir þrjá leiki. Fyrst kepptu þeir við Kýpur og töpuðu 0-3 og síðan við Liechtenstein, sem þeir sigruðu 3-0. Í síðasta leik dagsins töpuðu karlarnir 2-3 fyrir Bosníu-Herzegóvínu í jöfnum leik.
Í fyrsta leik liðsins mættu karlarnir Kýpur. Guðmundur tapaði 2-3 fyrir unglingnum Marios Yangou, eftir að hafa unnið tvær fyrstu loturnar. Guðmundur lagði Yangou í sumar á Smáþjóðaleikunum. Richard og Magnús töpuðu báðir sínum leikjum 0-3. Það hlýtur að hafa valdið liðinu vonbrigðum að ná ekki vinningi á móti Kýpurbúum.
Í öðrum leiknum mættu Íslendingarnir Liechtenstein og unnu öruggan sigur 3-0. Þeir Guðmundur, Magnús og Richard unnu allir sína leiki 3-0.
Í þriðja og síðasta leik dagsins mættu strákarnir liði Bosníu-Herzegóvínu. Guðmundur gerði vel og vann báða sína leiki 3-0. Daði tapaði báðum sínum leikjum 0-3. Richard, sem lék sem þriðji maður, tapaði sínum leik 9-11 í oddalotu, og skildi þar á milli sigurs og ósigurs.
Á morgun leika karlarnir við Lúxemborg og Azerbajdan og ljúka keppni í riðlinum að morgni 15. september með leik við Hollendinga.
Nánari úrslit:
ÁMU
| | Meira |
|
|
|
03. september 2009
Keppnistímabilið 2009-2010 að hefjast
Víðast hvar eru æfingar borðtennisdeilda að hefjast þessa dagana og sum félög hafa þegar birt upplýsingar um æfingatíma á vefsíðum sínum. Hér á síðunni má sjá slóðir á vefsíður félaga, sem stunda borðtennis, undir flipanum Félög til að leita upplýsinga um æfingatíma.
ÁMU
|
|
|
|
14. ágúst 2009
Landsliðið fyrir EM hefur verið tilkynnt
| | | | | |
| |