Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Æfingabúðir fyrir stráka á Hvolsvelli 23. og 24. febrúar nk.

Árlegar æfingabúðir í borðtennis fyrir stráka verða haldnar á Hvolsvelli helgina 23. og 24. febrúar nk.

Drengjum úr öllum félögum og af öllum getustigum býðst að taka þátt og er vonast eftir fjölbreyttum æfingahópi.

Dagskráin byggist aðallega á þremur æfingum og tvíliðaleiksmóti. Ferðin verður lærdómsrík og skemmtileg verður lagt upp úr því að leikmenn kynnist öðrum leikmönnum skemmti sér saman. Þá verður farið í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli, pizza borðuð og margt annað skemmtilegt. Um búðirnar sjá Skúli Gunnarson (þjálfari í KR) og Jóhann Emil Bjarnason (þjálfari í Víkingi).

Verði þáttaka mikil kunna fleiri þjálfarar að bætast við. Gist verður í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, beint á móti íþróttahúsinu og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka. Verð fyrir æfingabúðirnar eru 9.000 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef strákarnir vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því. Að þessu sinni er stefnan að keyra austur í stað þess að taka strætó, en þjálfarar munu keyra. Biðjum við þá foreldra sem hafa tök á að vera á bíl að láta þjálfara í aðildarfélagi vita af því.

Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:

Laugardagur: 

11:00 Lagt af stað

12:30 Komið á Hvolsvöll, stutt hádegishressing

13:00-14:30 1. æfing

14:30-16:30 Sund og hressing

16:30-18:00 2. æfing

18:30-19:30 Pizzuveisla (hlaðborð)

19:30-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir

22:30 Svefntími

Sunnudagur: 

08:00 Morgunmatur

08:30-10:00 3. æfing

10:00-10:30 Hádegismatur

10:30-12:30 Æfingamót

12:30 Lagt af stað heim

14:00-15:00 Komið til baka til Reykjavíkur

Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Skúla á netfangið [email protected] og er skráningarfrestur til 21. febrúar 2019. Ef búðirnar skyldu fyllast gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði.

Myndband af æfingabúðum stúlkna 2018 er að finna hér.

Aðrar fréttir