Æfingabúðir fyrir stráka á Hvolsvelli 27.-28. janúar
Æfingabúðir í borðtennis fyrir stráka verða haldnar á Hvolsvelli helgina 27.-28. janúar. Strákum úr öllum félögum býðst að taka þátt og er vonast eftir sem fjölbreyttustum æfingahópi. Æfingabúðirnar eru einungis ætlaðar strákum, 15 ára og yngri, sem hafa æft að minnsta kosti í 1 ár.
Ferðin verður lærdómsrík og skemmtileg verður lagt upp úr því að leikmenn æfi og kynnist leikmönnum frá öðrum félögum og skemmti sér með eigin æfingafélögum. Þá verður farið í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli,pizza borðuð og margt annað skemmtilegt.
Þjálfarar á svæðinu verða Breki Þórðarson (þjálfari í KR), Skúli Gunnarsson (þjálfari í KR) og Tómas Ingi Shelton (þjálfari í BH).
Gist verður í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, beint á móti íþróttahúsinu og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka.
Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.500 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef strákarnir vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því.
Farið verður með strætó frá Mjódd á Hvolsvöll. Farið kostar 8 miða á Hvolsvöll og 8 miða til baka og hægt er að kaupa miðana í Mjódd frá kl. 10:00 daginn sem við förum. Strætómiðarnir eru ekki innifaldir í verðinu fyrir æfingabúðirnar. 20 miða spjald fyrir 6-11 ára kostar 1.300 kr. og sami fjöldi fyrir 12-17 ára kostar 3.000 kr.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Laugardagur:
11:00 Mæting í strætómiðstöðina í Mjódd
11:29 Strætó nr. 51 fer af stað
13:07 Strætó kemur á Hvolsvöll, stutt hádegishressing
13:30-15:00 1. æfing
15:00-17:00 Sund og hressing
17:00-18:30 2. æfing
19:00-20:00 Pizzuveisla (hlaðborð)
20:00-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir
22:30 Svefntími
Sunnudagur:
09:30 Morgunmatur
10:00-11:30 3. æfing
11:30-12:00 Hádegismatur
12:00-14:00 Lokamót
15:08 Brottför frá Hvolsvelli með strætó nr. 52
16:57 Strætó kemur í Mjódd
Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Tómasi á netfangið [email protected]
Annars ekki hika við að hafa samband við Tómas þjálfara ef það eru einhverjar spurningar.
Mynd á forsíðu frá Dímon frá Íslandsmóti unglinga 2017 á Hvolsvelli.
ÁMU