Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót BH nk. laugardaginn 9. febrúar 2019

Aldursflokkamót Borðtennisdeildar BH mun fara fram laugardaginn 9. febrúar nk. í stóra salnum í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Strandgötu 53, Hafnarfirði

Dagskrá og fyrirkomulag

11:00 Einliðaleikur hnokka f. 2008 og síðar

12:00 Einliðaleikur táta f. 2008 og síðar

13:00 Einliðaleikur pilta f. 2006-2007

13:00 Einliðaleikur telpna f. 2006-2007

14:00 Einliðaleikur sveina f. 2004-2005

14:00 Einliðaleikur meyja f. 2004-2005

15:00 Einliðaleikur drengja f. 2001-2003

15:00 Einliðaleikur stúlkna f. 2001-2003

 

Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 8. febrúar nk. kl. 17:00

 

Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld: 1.000 krónur á mann..Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH: : Kt: 620709-01800544-26-16207  Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].

Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected] og setja inn kennitölu leikmanns, sem greitt er fyrir.

Mótsstjórn skipa  Tómas Ingi Shelton og Jóhannes Bjarki Urbancic

Skráningar og spurningar berist til [email protected]

Auglýsingu um mótið er að finna hér.

 

Aðrar fréttir