Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót borðtennisdeildar Víkings 9. desember

Aldursflokkamót borðtennisdeildar Víkings verður haldið sunnudaginn 9. desember 2018.  Keppt verður í riðlum. Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti.

Leikið verður með 3ja stjörnu plastkúlum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000.

Yfirdómari:  Árni Siemsen

Mótstjóri:  Pétur Ó. Stephensen

 

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

kl. 11:00  Einliðaleikur hnokka og táta f. 2008 og síðar

kl. 11:00  Einliðaleikur pilta og telpna f. 2006 – 2007

kl. 12:00  Einliðaleikur sveina og meyja f. 2004 – 2005

kl. 12:00  Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 2001 – 2003

 

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 6. desember klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/ [email protected].

Bréf um mótið: Unglingamót Víkings 9 des 2018

 

ÁMU

Aðrar fréttir