Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót Dímonar verður haldið 2. nóvember

Aldursflokkamót Dímonar, sem er aldursflokkamót í mótaröð BTÍ, verður haldið laugardaginn 2. nóvember  2019 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli og hefst kl.11:00.

Dagskrá mótsins:

  • 11:00 Einliðaleikur hnokkar f. 2009 og yngri
  • 11:00 Einliðaleikur tátur f. 2009 og yngri
  • 11:15 Einliðaleikur piltar f. 2007 -2008
  • 11:15 Einliðaleikur telpur f . 2007 -2008
  • 11:45 Einliðaleikur sveinar f. 2005-2006
  • 11:45 Einliðaleikur meyjar f. 2005-2006
  • 11:45 Einliðaleikur drengja f. 2002-2004
  • 11:45 Einliðaleikur stúlkna f. 2002-2004

Skráningargjald er kr. 1000,- á þátttakanda.                                    

Kennitölur þurfa að fylgja skráningum.

Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 30. október  kl. 21:00 og skal skráningum skilað til [email protected]

Leikið
verður með hvítum  *** STIGA optimum kúlum á STIGA borðum.

Leiknar
verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir
það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Raðað verður eftir
styrkleikalista BTÍ.

Yfirdómari verður Ólafur Elí Magnússon.                                                               

Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Keppni
hefst kl. 11:00 að staðartíma á Hvolsvelli.

Verðlaun
eru veitt fyrir fjögur efstu sæti í öllum flokkum. Í flokki 2009 og yngri fá
allir þátttakendur verðlaunapening. Verðlaunaafhending verður strax að loknu
móti. Aðeins er hægt að leika í einum aldursflokki.

Mótstjórn:

  • Magnús Ágústsson
  • Ragnhildur Á Guðmundsdóttir
  • Reynir Björgvinsson

Aðrar fréttir