Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót Dímonar

Aldursflokkamót Dímonar, sem er aldursflokkamót í mótaröð BTÍ verður haldið, sunnudaginn 15. október  2017 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli og hefst kl.11:00.

Dagskrá mótsins:

  1. 11:00 Einliðaleikur hnokkar f. 2007 og yngri
  2. 11:00 Einliðaleikur tátur f. 2007 og yngri
  3. 11:15 Einliðaleikur piltar f. 2005 -2006
  4. 11:15 Einliðaleikur telpur f . 2005 -2006
  5. 11:45 Einliðaleikur sveinar f. 2003-2004
  6. 11:45 Einliðaleikur meyjar f. 2003-2004
  7. 11:45 Einliðaleikur drengja f. 2000-2002
  8. 11:45 Einliðaleikur stúlkna f. 2000 -2002

 

Skráningargjald er kr. 800,- á þátttakanda.                                     

Kennitölur þurfa að fylgja skráningum.

Síðasti skráningardagur er föstudaginn 13. október  kl. 21:00 og skal skráningum skilað til [email protected]

Leikið verður með hvítum  *** STIGA optimum kúlum á STIGA borðum.

Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.

Yfirdómari verður Ólafur Elí Magnússon.                                                                             

Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Keppni hefst kl. 11: 00 að staðartíma á Hvolsvelli.

Verðlaun eru veitt fyrir fjögur efstu sæti í öllum flokkum. Verðlaunaafhending verður strax að loknu móti. Aðeins er hægt að leika í einum aldursflokki.

Mótstjórn:

  • Ásta Laufey Sigurðardóttir
  • Guðmann Óskar Magnússon
  • Ragnhildur Á Guðmundsdóttir
  • Reynir Björgvinsson

Aðrar fréttir