Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót Víkings 9. febrúar

Aldursflokkamót borðtennisdeildar Víkings verður
haldið sunnudaginn 9. febrúar 2020. 
Keppt er í riðlum.  Raðað verður í
töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu
sæti.

Leikið verður með 3ja stjörnu plast kúlum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000-

Yfirdómari:  Árni Siemsen

Mótstjóri:  Pétur Ó. Stephensen

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Sunnudagur  9. febrúar: kl. 10:00  Einliðaleikur hnokka og táta f. 2009 og síðar

  “       
         “                    
kl. 10:30 
Einliðaleikur pilta og telpna f. 2007-2008

  „                 „                    kl. 11:00
 Einliðaleikur sveina og stúlkna f. 2005
– 2006

  „                 „                    kl. 11:30  Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 2002-2004 

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 6. febrúar klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu. Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected].

Bréf um mótið:

Mótið var upphaflega á mótaskrá 8. febrúar 2020.

Aðrar fréttir