Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH-A, Víkingur-D og Víkingur-E sigruðu í 8. umferð í suðurriðli 2. deildar

Þrír leikir fóru fram í suðurriðli 2. deildar 9.-10. febrúar. Víkingur-D sigraði KR-C 4-0, Víkingur-E lagði BH-B 4-0 og BH-A vann KR-D 4-0. Með sigrinum tryggði BH-A sér sigur í suðurriðli deildarinnar.

Að loknum 8 umferðum hefur BH-A 16 stig, Víkingur-D 12 stig, KR-D 10 stig og Víkingur-E 8 stig. Þegar tvær umferðir eru eftir þrjú síðarnefndu liðin ennþá möguleika á að komast í undanúrslitin.

Úrslit úr einstökum leikjum

Víkingur-E – BH-B 4-0

  1. Pétur Ó. Stephensen – Kristján Kári Gunnarsson 3-0
  2. Jónas Marteinsson – Karl Jóhann Halldórsson 3-0
  3. Sigurður Herlufsen – Kristófer Júlían Björnsson 3-0
  4. Jónas/Pétur – Kristján/Kristófer 3-0

Víkingur-D – KR-C 4-0

Úrslit úr einstökum leikjum verða sett inn þegar þau hafa borist.

KR-D – BH-A 0-4

  1. Guðmundur Örn Halldórsson – Magnús Gauti Úlfarsson 1-3
  2. Hannes Guðrúnarson – Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson 0-3
  3. Bjarni Gunnarsson – Birgir Ívarsson 2-3
  4. Bjarni/Hannes – Birgir/Magnús 1-3

Á forsíðumyndinni má sjá lið BH-A, sem tryggði sér sigur í suðurriðli 2. deildar í kvöld.

 

ÁMU

Aðrar fréttir