Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bikarkeppni félaga verður haldin 22. apríl

Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 22. apríl 2017 kl. 13:00.

Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.

Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina.

Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:

Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi.  Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði.  Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi.  Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.

Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:

  1. Einliðaleikur karla A – X
  2. Einliðaleikur karla B-Y
  3. Einliðaleikur kvenna
  4. Tvíliðaleikur karla
  5. Tvenndarkeppni
  6. Einliðaleikur karla A-Y
  7. Einliðaleikur karla B-X

Þar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð.  Tapi lið leiknum er það úr leik.  Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.  Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.

Þátttökugjaldið í mótið er kr. 5.000 á lið.

Dregið verður í mótið þriðjudaginn 18. apríl kl. 18:00 í  TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]

Síðasti skráningardagur er Þriðjudagur 18. fimmtudagur 20. apríl kl. 16:00.

Bréf um mótið: Bikarkeppni félaga 2017

Á forsíðumyndinni má sjá bikarmeistara síðasta árs.

 

ÁMU (skv. pósti frá Pétri Stephensen). Uppfært 14.4., þar sem síðasta skráningardegi var breytt. Hvenær dagsins skráning rennur út er ekki ljóst og heldur ekki hvenær verður dregið. 

Aðrar fréttir