Daði og Guðrún sigruðu á Grand Prix móti KR og Netsöfnunar
Daði Freyr Guðmundsson úr Víkingi og Guðrún G Björnsdóttir úr KR sigruðu á Grand Prix móti KR og Netsöfnunar, sem fram fór í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 10. janúar.
Daði Freyr sigraði Magnús Jóhann Hjartarson úr Víkingi 4-1 (11-6, 11-9, 8-11, 11-9, 11-7) nokkuð örugglega í úrslitaleik. Magnús Gauti Úlfarsson úr BH og Skúli Gunnarsson úr KR höfnuðu í 3.-4. sæti. Skúli sigraði óvænt næststigahæsta leikmann mótsins, Davíð Jónsson úr KR, í 16 manna úrslitum. Magnús Gauti lagði Breka Þórðarson úr KR í annað skipti sömu helgina til að komast í undanúrslitin.
Guðrún G Björnsdóttir sigraði vinkonu sína úr KR, Aldísi Rún Lárusdóttur, 4-0 (11-8, 12-10, 11-7, 11-6) í úrslitaleiknum. Tvær KR konur til viðbótar fengu bronsið, þær Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir og Sveina Rósa Sigurðardóttir.
Ísak Indriði Unnarsson úr Víkingi og Hrefna Namfa Finnsdóttir úr HK sigruðu í B-keppni karla og B-keppni kvenna.
Mótið er þriðja mótið í Grand Prix mótaröð Borðtennissambands Íslands. Daði hefur forystu í karlaflokki en Aldís hefur forystu í kvennaflokki.
Verðlaunahafar:
Karlar
1. Daði Freyr Guðmundsson, Víkingi
2. Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingi
3.-4. Magnús Gauti Úlfarsson, BH
3.-4. Skúli Gunnarsson, KR
Konur
1. Guðrún G Björnsdóttir, KR
2. Aldís Rún Lárusdóttir, KR
3.-4. Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir, KR
3.-4. Sveina Rósa Sigurðardóttir, KR
B-keppni karla
1. Ísak Indriði Unnarsson, Víkingi
2. Jóhannes Kári Yngvason, KR
3.-4. Birgir Ívarsson, BH
3.-4. Guðmundur Atli Pálmason, Víkingi
B-keppni kvenna
1. Hrefna Namfa Finnsdóttir, HK
2. Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi
3.-4. Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, KR
3.-4. Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingi
ÁMU