Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Daði og Guðrún sigruðu á Grand Prix móti Víkings og Coca-Cola

Grand Prix Coca Cola mótið í borðtennis fór fram í TBR-Íþróttahúsinu  25.  febrúar 2017. Mótið var vel sótt þar sem keppendur komu frá Víkingi, BH, KR.

Í opnum flokki karla lék Daði Freyr Guðmundsson Víkingi úrslitaleik gegn Magnúsi Hjartarsyni Víkingi. Íslandsmeistarinn Daði sigraði nokkuð örugglega  4 – 1 (11-7, 9-11, 11-6, 11-5, 11-9).

Í opnum flokki kvenna lék Guðrún G Björnsdóttir KR úrslitaleik gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR. Íslandsmeistarinn Guðrún sigraði  4 – 0 (21-19, 11-8, 11-5 og 12-10).

Í B keppninni sigraði Ellert Georgsson KR í úrslitaleik við Pétur Ó. Stephensen Víkingi  3 – 1 (11-9, 9-11, 11-6 og 11-7).

Opinn flokkur karla

f.v. Breki, Magnús Gauti, Daði Freyr og Magnús Hjartarson.

Opinn flokkur karla:

1.       Daði Freyr Guðmundsson Víkingur

2.       Magnús Hjartarson Víkingur

3-4.  Breki Þórðarson KR

3-4.  Magnús Gauti Úlfarsson BH

 

Opinn flokkur kvenna

f.v. Guðrún, Þórunn og Stella.

Opinn flokkur kvenna:

1.      Guðrún G Björnsdóttir KR

2.      Aldís Rún Lárusdóttir KR

3-4. Stella Kristjándóttir Víkingur

3-4. Þórunn Árnadóttir Víkingur

 

B-Keppnin

B – Keppnin:

1.      Ellert Georgsson KR

2.      Pétur Ó. Stephensen Víkingur

3-4.  Aldís Lárusdóttir KR

3-4.  Birgir Ívarsson BH

 

ÁMU skv. frétt frá Pétri Stephensen (myndir settar inn 28.2.)

Aðrar fréttir