Event Information:
-
Sat20Feb201611:00TBR
Unglingamót Víkings
Unglingamóti Borðtennisdeildar Víkings, sem átti að vera 14. febrúar hefur verið frestað til 20. febrúar.
Bréf um mótið: Unglingamót Víkings 20. febrúar 2016
Unglingamót borðtennisdeildar Víkings verður haldið laugardaginn 20. Febrúar 2016 sem er fjórða mótið í unglingamótaröð Borðtennissambands Íslands. Keppt er í riðum og síðan leikið með útslætti upp úr riðlum. Þrjár lotur þarf að vinna til að vinna leik. Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti.
Leikið verður með 3ja stjörnu plast kúlum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 800-
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Daði Freyr Guðmundsson.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 20. febrúar: kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka og táta f. 2005 og síðar
“ “ kl. 11:00 Einliðaleikur pilta og telpna f. 2003-2004
„ „ kl. 12:00 Einliðaleikur sveina og stúlknaf. 2001 – 2002
„ „ kl. 12:00 Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 1998-2000
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 18 febrúar
klukkan 17:00, en dregið verður í mótið
í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected],
Með Borðtenniskveðju
f.h. Borðtennisdeildar Víkings
Pétur Ó. Stephensen.
Borðtennisdeild Víkings