Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Grand Prix Coca Cola í borðtennis.

Síðasta Grand Prix mót keppnistímabilsins í borðtennis fór fram laugardaginn 21. febrúar 2015.

Allt besta borðtennisfólk landsins lék á mótinu.  Keppendur komu frá félögunum Víkingi, KR, HK, BH

og Umfl. Heklu.  Í undanúrslitum opnum flokki karla lék Kári Mímisson KR gegn Daða Freyr Guðmundssyni Víkingi,

leikar fóru þannig að Kári sigraði  í hörkuleik 4 – 2 (9-11, 11-7, 9-11, 11-6, 11-6,11-7.  Í hinum undanúrslitaleiknum

lék Magnús K. Magnússon gegn félaga sínum úr Víkingi Sinda Þór Sigurðssyni þar sem Magnús sigraði 4-0

(11-8, 11-6, 11-5 og 13-11).

Úrslitaleikinn lék því  Magnús K. Magnússon Víkingi gegn Kára Mímissyni KR.

Leikar fóru þannig að Magnús sigraði nokkuð örruglega 4 – 1 (9-11, 11-3, 12-10, 11-8 og 11-5).

 

Í undanúrslitum opnum flokki kvenna lék Aldís Rún Lárusdóttir KR gegn Guðrúnu Björnsdóttur KR. 

Aldís sigraði 4 – 2 ( 8-11, 11-4,11-8,11-13,11-5 og 11-6).  Í hinum undanúrslitaleiknum sigraði

Kolfinna Bjarnadóttir HK Sigrúnu Tómasdóttur KR 4 – 0 (12-10, 11-4, 11-6 og 11-7).

Úrslitaleikinn léku því  Kolfinna Bjarnadóttir HK gegn Aldísi R. Lárusdóttur KR.

Leikar fóru þannig að Kolfinna sigraði  í baráttuleik 4 – 1 (12-10, 4-11, 13-11, 11-8 og 11-9.

 

Í B. keppninni lék Ingi Darvis Víkingi úrslitaleikinn gegn Kolfinnnu Bjarnadóttur HK

þar sem Ingi sigraði 3 – 1 (4-11, 11-7, 11-8, 11-9).

Aðrar fréttir