Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Grand Prix mót HK 2014

Grand Prix mót HK fer fram í íþróttamiðstöðinni Fagralundi laugardaginn 15. nóvember næstkomandi.  Leikið verður í opnum flokki karla og kvenna.  Leikinn er einfaldur útsláttur, fjórar lotur unnar.  Einnig verður leikið B-keppni fyrir þá keppendur sem detta út í 1. umferð.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Laugardagur 15. nóv kl. 11:00: Opinn flokkur kvenna

Laugardagur 15. nóv kl. 12:00: Opinn flokkur karla

Þátttökugjald í mótið er kr.1000-

Hægt er að greiða keppnisgjöld inná reikning 536-26-5337 kt. 6309810269, 1.000 kr.  Muna að setja kennitölu keppanda í skýringu með greiðslu.

Yfirdómari: Bjarni Þ. Bjarnason

Síðasti skráningardagur er 14. nóv kl. 17:00.  Eingöngu er tekið á móti rafrænum skráningum með því að smella á eftirfarandi tengil: http://goo.gl/forms/Pb4UUw447G

Leikið verður með 3ja stjörnu DHS kúlum

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 4 sætin.

Borðtenniskveðja

Borðtennisdeild HK.

Aðrar fréttir