Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Grand Prix mót Víkings og Coca-Cola 25. febrúar

Grand Prix mót Coca Cola fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 25. febrúar 2017 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt verður í Opnum flokkum karla og kvenna.  Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar. Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti og óvæntir vinningar.  Leikið með 3ja stjörnu plast kúlum. Leikið verður einnig í B – keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í Opnum flokki karla og kvenna.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1000-

Yfirdómari: Árni Siemsen

Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Magnús Finnur Magnússon.

 

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

 Laugardagur 25. febrúar: kl. 13:00  Opinn flokkur karla

  “                “                       kl. 13:30  Opinn flokkur kvenna

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 23. febrúar klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected]

Bréf um mótið: Grand prix Coca Cola 25. feb 2017

 

ÁMU

Aðrar fréttir