Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Grand Prix mót Víkings og Pepsi verður haldið 31. október

Grand Prix mót Pepsi fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 31. október  2015 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt verður í Opnum flokkum karla og kvenna.  Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar.

Leikið verður einnig í B – keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í Opnum flokki karla og kvenna.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000-

Yfirdómari:  Árni Siemsen

Mótstjórn skipa:  Pétur Ó. Stephensen, Daði Freyr Guðmundsson.

 

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Laugardagur 31. okt: kl. 12:00 Opinn flokkur karla

“                 “                  kl. 12:30  Opinn flokkur kvenna

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 29. október 2015 kl. 18:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected],

Bréf um mótið: Grand prix Pepsi 31 okt 2015

 

ÁMU

Aðrar fréttir