Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Grand Prix mót Víkings verður 5. nóvember

Grand Prix mót Pepsi fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 5. nóvember  2016 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt verður í opnum flokkum karla og kvenna.  Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar. Leikið verður með hvítum 3ja stjörnu kúlum.

Leikið verður einnig í B – keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í opnum flokki karla og kvenna.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000-

Yfirdómari:  Árni Siemsen

 

Mótstjórn skipa:  Pétur Ó. Stephensen, Daði Freyr Guðmundsson.

 

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Laugardagur 5. nóv:    kl. 12:00  Opinn flokkur karla

“                 “                  kl. 12:30  Opinn flokkur kvenna

 

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 3. nóv 2016 klukkan 18:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected],sms

Bréf um mótið: grand-prix-pepsi-5-nov-2016

Ekki verður haldið aldursflokkamót þann 5. nóvember, eins og fram kom á mótaskrá.

 

ÁMU

Aðrar fréttir