Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Grand Prix móti Víkings frestað frá 14. til 20. febrúar

Grand Prix móti Víkings, sem átti að vera 14. febrúar skv. mótaskrá, hefur verið frestað til 20. febrúar.

Auglýsing um mótið:

Grand Prix mót Coca Cola fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 20. febrúar  2016 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt verður í opnum flokkum karla og kvenna.  Leikinn verður einfaldur útsláttur, fjórar lotur unnar.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti  og óvæntir vinningar.

Leikið með 3ja stjörnu plast kúlum.

Leikið verður einnig í B – keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í opnum flokki karla og kvenna.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1000-

Yfirdómari:  Árni Siemsen

Mótstjórn skipa:  Pétur Ó. Stephensen, Daði Freyr Guðmundsson.

 

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Laugardagur 20. febrúar:

kl. 14:00  Opinn flokkur karla

kl. 14:30  Opinn flokkur kvenna

 

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 18 febrúar klukkan 17:00, en dregið verður í mótið  í TBR-Íþróttahúsinu 18. febrúar klukkan 18:00.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected]

Bréf um mótið: Grand prix Coca Cola 20. feb 2016

 

ÁMU

 

Aðrar fréttir