Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

HK-C, KR-B og BH-B taplaus eftir fjórar umferðir í 2. deild suður

Tvær umferðir voru leiknar í suðurriðli 2. deildar í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 17. janúar. Þessir leikir áttu upphaflega að fara fram 1. nóvember en var frestað vegna kórónaveirufaraldursins.

Að loknum fjórum umferðum eru þrjú lið taplaus, HK-C og KR-B í A-riðli og BH-B í B-riðli.

Úrslit úr leikjum dagsins:

A-riðill

  • KR-B – BH-D 3-0
  • BH-C – Víkingur-D 3-0
  • KR-C – HK-C 2-3
  • BH-C – KR-B 0-3
  • HK-C – BH-D 3-1
  • Víkingur-D – KR-C 0-3

B-riðill

  • Víkingur-C – Umf. Selfoss 3-0 (frestaður leikur frá 4. okt. 2020)
  • Víkingur-C – KR-E 3-0
  • BH-B – Umf. Selfoss 3-0
  • KR-D – Umf. Selfoss 3-0
  • Víkingur-C – BH-B 2-3

Staðan að loknum fjórum umferðum

A-riðill

  1. KR-B 8 stig, 4 leikir 12-0
  2. HK-C 8 stig 4 leikir 12-4
  3. BH-D 4 stig 4 leikir
  4. KR-C 2 stig 4 leikir 7-9
  5. BH-C 2 stig 4-9
  6. Víkingur-D 0 stig 4 leikir

B-riðill

  1. BH-B 6 stig 3 leikir
  2. Víkingur-C 6 stig 4 leikir
  3. KR-D 4 stig 3 leikir
  4. KR-E 0 stig 3 leikir 1-9
  5. Umf. Selfoss  0 stig 3 leikir 0-9

Öll úrslit verða fljótlega birt á vef deildarinnar á Tournament Software, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=7A149223-4A57-42D9-9F95-ED364B4DC06E

Einnig verða úrslitin sett inn í lista yfir umferðir í deildinni, hægra megin á síðunni: https://bordtennis.is/2-deild-umferdir/

Næst verður leikið í suðurriðli deildarinnar sunnudaginn 24. janúar í TBR-húsinu og verða leiknir leikir í 5. og 6. umferð.

Keppni er ekki hafin í norðurriðli 2. deildar en hefst væntanlega föstudaginn 22. janúar og verður leikið þéttar en áður var fyrirhugað.

Á forsíðunni má sjá mynd af liði BH-D 17. janúar 2021.

Aðrar fréttir