Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Hu Dao Ben fyrrverandi landsliðsþjálfari látinn 72 ára að aldri

 

Hu Dao Ben, borðtennismaður, þjálfari og  landsliðsþjálfari  lést þann 14. apríl síðastliðinn, 72 ára að aldri.

Hu var á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar í kínverska karlalandsliðinu og varð hann tvisvar sinnum heimsmeistari með liði Kínverja í liðakeppni.  Komst hann hæst í áttunda sæti á styrkleikalista alþjóða borðtennissambandsins.   Hann kom fyrst til Íslands árið 1989 45 ára að aldri en hann hafði áður eftir að hann hafði sjálfur lagt spaðann á hilluna verið í þjálfarateymi kínverska landsliðsins, svæðisþjálfari í Peking og einnig þjálfari á Ítalíu og Kýpur.  Var hann frá 1989 til 1990 þjálfari hjá Stjörnunni í Garðabæ og var þjálfari hjá Víkingum frá 1990.  Var hann fyrst valinn landsliðsþjálfari árið 1990 og fór hann þá með liðinu á Smáþjóðaleikana í ágúst til Luxemborg og árið eftir fór hann með landsliðinu á heimsmeistaramótið í Japan.  Frá þeim tíma hefur hann snert líf og borðtennisferil mikils fjölda íslenskra iðkenda á öllum aldri, bæði sem þjálfari hjá Víkingum og sem unglingalandsliðs- og landsliðsþjálfari.  Var hann meðal annars þjálfari landsliðsins í fjölmörgum landskeppnum við Færeyinga og Evrópumótum m.a. í í undankeppni EM í Aþenu í Grikklandi 1991, Stuttgart í Þýskalandi 1991, Birmingham  1994 og í eftirminnilegum sigri íslenska landsliðsins undir 16 ára við unglingalandslið Svía í mars 1994.  Þá var hann þjálfari liðsins í riðlakeppni Evrpópumótsins í Luxemborg 1999 og Wales 2001 og Evrópumótinu í Bremen Þýskalandi árið 2000 og Ítalíu 2003.  Einnig var hann þjálfari landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Manchester í Englandi 1997,  Malasíu árið 2000, Japan árið 2001 og París 2003.  Bestum árangri í liðakeppni EM og HM hefur íslenskt landslið náð undir handleiðslu Hu Dao Ben.  Braut hann ásamt leikmönnum íslenska landsliðsins blað á Smáþjóðaleikunum í Luxemborg 1999 þegar íslenska karlaliðið endaði í 2. sæti leikanna.  Einnig fór hann með liðinu á Smaþjóðaleikana í San Marinó árið 2001.  Var hann þjálfari liðsins á Norður Evrópumótinu í Litháen 2002.

Hu var  þjálfari Víkinga í fjölmörgum keppnum í liðakeppni bikarhafa m.a. við lið Waldegg Linz frá Austurríki 1992, lið Hapoel Ramat-Gan frá Ísrael 1995 og lið Bordeaux frá Frakklandi 1999.

Auk ofangreinds var hann einnig leiðbeinandi í borðtennis t.d. í Suðurhlíðarskóla og fór með ungt lið Víkinga í eftirminnilega æfinga- og keppnisferð árið 1993 til Kína.

Hu hafði á farsælum ferli sínum verið sæmdur gullmerki BTÍ og heiðursmerki BTÍ árið 2016  auk þess sem Borðtennisdeild Víkinga hafði  margsinnis heiðrað hann með viðurkenningum.

Borðtennisfólk á Íslandi vottar fjölskyldu og aðstandendum Hu samúð sína.  Fallinn er frá mikilsmetinn maður og afburðar þjálfari sem setti mark sitt á íslenskan borðtennis og verður hans ávallt minnst með hlýhug.

Hér að neðan er að finna nokkrar myndir af Hu sem birst hafa í blaðafréttum, sú elsta er frá árinu 1990 en sú yngsta frá árinu 2003.

Hér er svo hlekkur  á samantekt frétta af Hu í gegnum tíðina sem stjórn BTÍ hefur tekið saman fyrir þá sem vilja kynna sér feril hans hér á Íslandi betur.

II

Hu árið 1990 með Guðmundi Stephensen

 

Hu Dao Ben með íslenska landsliðshópum  á Evrópumótinu Í Stuttgart 1992

 

Hu Dao Ben með ungum leikmönnum Víkinga sem fór í æfinga- og keppnisferð til Kína 1993

 

Hu með A landsliði Íslands 1993 – Landskeppni við Færeyinga

 

Hu með yngsta landslið Íslands frá upphafi á leið á Evrópumótið  í Bermingham Englandi 1994

 

Hu með A karlalandsliði Íslands sem fór á HM í  Kuala Lumpur Malasíu árið 2000

 

Hu með A karlalandsliði Íslands í forkeppni Evrópumóts karla árið 2000

 

Hu með sigurliði Víkinga í 1. deild karla 2001

 

Hu með sigurliði Víkinga í 1. deild karla 2001

 

Hu með íslenska A karlalandsliðinu á HM í Osaka Japan 2001.  Frammistaða þar framar vonum

 

Hu með íslenska liðinu sem keppti á Smáþjóðaleikunum árið 2001

 

Hu með Íslandsmeisturum í 1. deild karla 2002

 

Hu með íslenska landsliðshópnum sem keppti á Heimsmeistaramótinu í París árið 2003

 

Aðrar fréttir