Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ísland sendir drengjalið á EM unglinga í Rúmeníu

Borðtennissamband Íslands hefur ákveðið að senda drengjalið (16-18 ára) á EM unglinga, sem fram fer í Cluj Napoca í Rúmeníu 15.-24. júlí. Liðið skipa þeir Birgir Ívarsson, BH; Ellert Kristján Georgsson, KR; Ingi Darvis Rodriquez, Víkingi og Magnús Gauti Úlfarsson, BH, sem allir hafa leikið áður á mótinu.

Unglingalandsliðsþjálfarinn Kristján Viðar Haraldsson verður með liðinu á mótinu. Hannes Guðrúnarson, alþjóðadómari mun dæma á mótinu, og er þetta í fyrsta skipti sem hann dæmir sem alþjóðadómari erlendis.

Dregið hefur verið í riðla í liðakeppni á mótinu og verður Ísland í G-riðli með Ísrael, Moldóvu og Serbíu. Einnig leika drengirnir í einstaklingskeppni en ekki hefur verið dregið í hana.

Heimasíða mótsins er https://www.ettu.org/en/events/european-youth-championships/general-information/.

Á forsíðumyndinni má sjá Birgi á EM unglinga 2017.

 

ÁMU

Aðrar fréttir