Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót unglinga fer fram 5.-6. mars 2016

Íslandsmót unglinga í borðtennis 2016 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 5.-6. mars 2016. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.

Leikið verður í fimm aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik og þremur aldursflokkum í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.

Laugardaginn 5. mars verður leikið í tvenndarkeppni og keppt í riðlum í einliðaleik. Leikið verður upp úr riðlum fram að undanúrslitum.

Sunnudaginn 6. mars verður leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik.

Dagskrá lýkur með sameiginlegri verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka.

 

Dagskrá

Laugardagur 5. mars

 

Tvenndarkeppni:

11.00 Tvenndarkeppni -15 ára, fædd 2001 og síðar

15.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 1998-2000

15.00 Tvenndarkeppni 19-21 árs, fædd 1995-1997

 

Einliðaleikur að undanúrslitum:

11.00 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2005 og síðar

12.00 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2005 og síðar

12.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2003-2004

13.00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2003-2004

14.00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2001-2002

14.00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2001-2002

15.30 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 1998-2000

16.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 1998-2000

16.00 Einliðaleikur ungmenna drengja 19-21 árs, fæddir 1995-1997

16.00 Einliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs, fæddar 1995-1997

 

Sunnudagur 6. mars

Tvíliðaleikur:

11.00 Tvíliðaleikur pilta -13 ára, fæddir 2003 og síðar

11.00 Tvíliðaleikur telpna -13 ára, fæddar 2003 og síðar

11.00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 1998-2000

11.00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 1998-2000

12.00 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2001-2002

12.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2001-2002

12.00 Tvíliðaleikur ungmenna drengja 19-21 árs, fæddir 1995-1997

12.00 Tvíliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs, fæddar 1995-1997

Einliðaleikur undanúrslit og úrslit:

13.00 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2005 og síðar

13.00 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2005 og síðar

13.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2003-2004

13.30 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2003-2004

13.30 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2001-2002

13.30 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2001-2002

13.30 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 1998-2000

14.00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 1998-2000

14.00 Einliðaleikur ungmenna drengja 19-21 árs, fæddir 1995-1997

14.00 Einliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs, fæddar 1995-1997

 

Verðlaunaafhending í öllum flokkum verður sunnudaginn 6. mars að loknum úrslitaleikjum

 

Fyrirkomulag keppni

Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti skv. reglugerð um Íslandsmót. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Ef eingöngu tveir keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram sunnudaginn 6. mars.

Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Leikið verður á Stiga Expert borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum.

Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

 

Þátttökugjöld og skráning

Þátttökugjald er 2.000 kr. í einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr. á mann) samkvæmt ákvörðun stjórnar BTÍ.

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 1. mars kl. 20.

Skráningum skal skilað til mótstjórnar með skráningu á vef Tournament Software á slóðinni http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=D49054D2-F97D-48F4-93AF-61992908F782.  Leiðbeiningar um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ, www.bordtennis.is. Ef vandkvæði eru með skráningu á vefnum má einnig skila skráningu til mótsstjórnar.

Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla miðvikudaginn 2. mars kl. 20:00.

Samkvæmt reglugerð er þátttaka á Íslandsmótum aðeins heimil íslenskum ríkisborgurum og erlendum ríkisborgururum sem hafa verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í fimm ár þegar mót fer fram.

 

Mótstjórn

Aldís Rún Lárusdóttir, gsm. 665 6330, [email protected]

Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]

Kristján Viðar Haraldsson, gsm. 820 0007 , [email protected]

 

Nöfn yfirdómara verða tilkynnt fljótlega.

 

Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR

Ásta M. Urbancic

Bréf um mótið: Íslandsmót unglinga í borðtennis 2016

Aðrar fréttir