Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Kjartansmót KR verður haldið 12. nóvember

Borðtennisdeild KR heldur hið árlega Kjartansmót sunnudaginn 12. nóvember 2017 í Íþróttahúsi Hagaskóla. Keppt verður í liðakeppni unglinga í tveggja manna liðum í hverjum flokki leikmanna fæddra 2000 og síðar. Að þessu sinni verður ekki keppt í liðakeppni fullorðinna.

Tímaáætlun

  • 10:00 Liðakeppni hnokka f. 2007 og síðar
  • 10:00 Liðakeppni pilta f. 2005-2006
  • 10:00 Liðakeppni sveina f. 2003-2004
  • 13:00 Liðakeppni drengja f. 2000-2002
  • 12:00 Liðakeppni táta f. 2007 og síðar
  • 12:00 Liðakeppni telpna f. 2005-2006
  • 12:00 Liðakeppni meyja f. 2003-2004
  • 12:00 Liðakeppni stúlkna f. 2000-2002

Fyrirkomulag keppni

Spilaformið er tveir einliðaleikir og tvíliðaleikur og til að vinna heilan liðsleik þarf að vinna tvo staka leiki. Leikið verður í riðlum, og síðan með einföldum útslætti upp úr riðlunum ef þátttaka er næg. Ef skipt verður í fleiri en einn riðil í sama flokki verður raðað í riðla eftir stigum á styrkleikalista BTÍ.

Hvert lið samanstendur af tveimur leikmönnum, en leyfilegt er að tefla fram þriggja manna liðum. Mótanefnd mælist til þess að liðunum verði gefin nöfn, t.d. Garpar, Kempur.

Hver unglingur má aðeins leika í einum aldursflokki.

Mótsstjórn áskilur sér rétt til að sameina flokka ef færri en 4 lið eru skráð í flokkinn en samt sem áður verða veitt verðlaun fyrir hvern flokk fyrir sig.

Verðlaun

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir 4 efstu sætin í hverjum flokki. Sigurliðin fá glaðning auk verðlaunapenings.

Þátttökugjöld

Þátttökugjald er 2.000 kr. á lið. Hægt er að greiða þátttökugjald á keppnisstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR og skal tekið fram fyrir hvaða leikmann er verið að greiða á netfangið [email protected]. Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129.

Skráning

Skráning fer fram á vef Tournament Software (www.tournamentsoftware.com) til kl. 20 miðvikudaginn 8. nóvember 2017. Setja skal kennitölu sem „Member ID“ og skrá þarf liðsfélaga. Á vef BTÍ (www.bordtennis.is) eru leiðbeiningar um stofnun reiknings og skráningu á Tournament Software. Þeir, sem hafa áður stofnað reikning til að skrá sig á mót geta notað hann aftur. Ef ekki gengur að skrá sig á vef Tournament Software má senda skráningu til mótsstjórnar fyrir kl. 20 miðvikudaginn 8. nóvember 2017.

Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ! Þó má sleppa að skrá kennitölu liðsfélaga í liðakeppninni.

Bein slóð á skráninguna: http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=A15CA6A5-85BE-431B-9E6E-A4BF40B595A7

Dregið verður í Kjartansmótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudagskvöldið 9. nóvember kl. 20:00. Drátturinn verður birtur á vefnum á slóðinni www.tournamentsoftware.com.

Leikið verður á Stiga expert borðum með Stiga hvítum 3ja stjörnu plastkúlum.

Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Bréf um mótið: Kjartansmót KR í borðtennis 12.11.2017

 

ÁMU

Aðrar fréttir