Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

KR-A og Víkingur leika til úrslita í Raflandsdeild kvenna

Önnur viðureignin í undanúrslitum í Raflandsdeild kvenna fór fram miðvikudaginn 7. mars í Íþróttahúsi Hagaskóla. Þá mættust annars vegar KR-B og Víkingur og hins vegar KR-C og KR-A. KR-A og Víkingur unnu viðureignirnar, eins og þær fyrstu, og leika til úrslita í deildinni.

Úrslit í leikjunum:

KR-B – Víkingur 1-3

  • Ársól Clara Arnardóttir – Agnes Brynjarsdóttir 3-1 (11-7, 9-11, 11-3, 11-6) 1-0
  • Lára Ívarsdóttir – Stella Karen Kristjánsdóttir 2-3 (9-11, 11-8, 3-11, 11-5, 6-11) 1-1
  • Ársól/Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir – Stella/Þórunn Ásta Árnadóttir 1-3 (6-11, 10-12, 11-8, 8-11) 1-2
  • Ársól Clara Arnardóttir – Stella Karen Kristjánsdóttir 1-3 (11-13, 15-13, 9-11, 6-11) 1-3

KR-C – KR-A 0-3

  • Lóa Floriansdóttir Zink – Aldís Rún Lárusdóttir 0-3 (9-11, 7-11, 7-11) 0-1
  • Þóra Þórisdóttir – Auður Tinna Aðalbjarnardóttir 0-3 (7-11, 7-11, 5-11) 0-2
  • Lóa/Þóra – Auður/Ásta M. Urbancic 2-3 (12-10, 12-10, 2-11, 10-12, 2-11) 0-3

Úrslitaleikirnir fara fram 19., 21. og 23. mars (ef með þarf) og sigrar það lið sem fyrr vinnur tvær viðureignir.

Á forsíðumyndinni má sjá lið Víkings í Raflandsdeild kvenna á þessu keppnistímabili.

 

ÁMU

Aðrar fréttir