Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

KR-A og Víkingur sigruðu í fyrstu viðureignunum í undanúrslitum Raflandsdeildar kvenna

Úrslitakeppnin í Raflandsdeild kvenna hófst mánudaginn 5. mars. Þá mættust annars vegar KR-A og KR-C og hins vegar Víkingur og KR-B. KR-A og Víkingur unnu viðureignirnar og lauk báðum leikjunum með 3-0 sigri.

Úrslit í leikjunum:

KR-A – KR-C 3-0

  • Auður Tinna Aðalbjarnardóttir – Lóa Floriansdóttir Zink 3-0 (11-6, 11-6, 11-8) 1-0
  • Aldís Rún Lárusdóttir – Þóra Þórisdóttir 3-0 (11-7, 11-4, 11-5) 2-0
  • Aldís/Ásta M. Urbancic – Lóa/Þóra 3-0 (11-5, 11-4, 11-1) 3-0

Víkingur – KR-B 3-0

  • Stella Karen Kristjánsdóttir – Lára Ívarsdóttir 3-1 (11-0, 8-11, 11-6, 11-9) 1-0
  • Agnes Brynjarsdóttir – Ársól Clara Arnardóttir 3-0 (13-11, 11-9, 11-6) 2-0
  • Stella/Þórunn Ásta Árnadóttir – Ársól/Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir  3-0 (11-1, 11-4, 11-5) 3-0

 

Önnur viðureign í undanúrslitunum verður miðvikudaginn 7. mars og oddaviðureign, ef þörf krefur föstudaginn 9. mars.

Á forsíðumyndinni má sjá lið KR-C í Raflandsdeild kvenna á þessu keppnistímabili.

 

ÁMU (uppfært 6.3.)

Aðrar fréttir