Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Landsdómaranámskeið 21. janúar 2017 í sal A ÍSÍ Laugardal

Laugardaginn 21. janúar nk. heldur BTÍ Landsdómaranámskeið í sal A sem er á 3. hæð í Íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal, Reykjavík.  Námskeiðshaldari verður Alþjóðadómarinn Árni Siemsen.  Námskeiðið stendur frá kl. 10:00-12:30 og verður þá gert stutt hlé.  Í framhaldi af því verður Landsdómaraprófið tekið.

Mikilvægt er fyrir hreyfinguna að nægur fjöldi landsdómara sé til staðar vegna móta innanlands.  Þá veita landsdómararéttindi heimild til að taka Alþjóðadómarapróf ITTF en til að geta verið dómari á mótum ITTF þarf Alþjóðadómararéttindi.

Þáttakendur eru beðnir um að taka með sér skriffæri og blöð og æskilegt er að vera með fartölvu.  Þá er óskað eftir að þáttakendur renni yfir efni það sem er að finna á í dómarahorninu á vef BTÍ, sjá hlekk hér að neðan.   Námskeiðsgjald verður kr. 1.500,- til að standa straum af kostnaði vegna veitinga í hléi og greiðist gjaldið á staðnum.

Skráningar berist BTÍ á netfangið [email protected].

BTÍ

https://bordtennis.is/domarahornidh/

Aðrar fréttir