Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Magnús Kristinn og Kolfinna Bergþóra Íslandsmeistarar í meistaraflokki

Verðlaunahafar í meistaraflokki karla á Íslandsmóti 2017

Magnús Kristinn Magnússon úr Víkingi og Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir úr HK sigruðu í einliðaleik í meistaraflokki á Íslandsmótinu í borðtennis, sem fram fór í KR-heimilinu við Frostaskjól 4.-5. mars. Magnús endurheimti þar með titilinn, sem hann vann 2014 og 2015 en Kolfinna vann sinn fyrsta titil í einliðaleik.

Aðrir Íslandsmeistarar voru Kári Ármannsson og Kári Mímisson, KR í tvíliðaleik karla og Ásta Urbancic, KR og Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon, í tvíliðaleik kvenna. Aldís Rún Lárusdóttir og Davíð Jónsson, KR sigruðu í tvenndarleik. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR sigraði í 1. flokki kvenna og Tómas Ingi Shelton, BH í 1. flokki karla. Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR, sigraði í 2. flokki kvenna og Karl A. Claesson, KR í 2. flokki karla.

Íslandmeistaratitilar í meistaraflokki dreifðust á leikmenn, svo enginn vann fleiri en einn titil.

Leikið var í 9 flokkum á mótinu og unnu KR-ingar 5,5 titla, BH, HK og Víkingur 1 titil hvert og Dímon 0,5 titil. Þá fengu KR-ingar flest verðlaun allra félaga.

Verðlaunahafar í einstökum flokkum

Meistaraflokkur kvenna

1.          Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir, HK

2.          Aldís Rún Lárusdóttir, KR

3.-4.     Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR

3.-4.     Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon

Ljóst var að nýr meistari yrði krýndur í kvennaflokki þar sem Guðrún G Björnsdóttir, Íslandsmeistari síðustu þriggja ára, lék ekki í einliðaleik og enginn keppenda hafði unnið titil í flokknum. Kolfinna sigraði Aldísi 4-1 (11-8, 9-11, 13-11, 12-10, 11-9) í baráttuleik og tryggði sér sinn fyrsta titil í einliðaleik í meistaraflokki. Þessar tvær voru áberandi sterkustu keppendurnir í meistaraflokki kvenna.

Meistaraflokkur karla

1.          Magnús K. Magnússon, Víkingur

2.          Kári Mímisson. KR

3.-4.     Daði Freyr Guðmundsson, Víkingur

3.-4.     Davíð Jónsson, KR

Kári Mímisson, KR, sló Íslandsmeistarann frá í fyrra, Daða Frey Guðmundsson úr Víkingi út í undanúrslitum 4-3 en Daði vann þrjár fyrstu loturnar í leiknum. Magnúsi K. Magnússon, Víkingi vann Davíð Jónsson, KR 4-2 í hinum undanúrslitunum. Magnús sigraði svo Kára örugglega 4-0 í úrslitunum (11-6, 11-7, 11-5, 11-6) og endurheimti þar með titilinn sem hann vann 2014 og 2015.

Verðlaunahafar í tvíliðaleik kvenna. Sveinu Rósu Sigurðardóttur vantar á myndina.

Tvíliðaleikur kvenna

1.          Bergrún Linda Björgvinsdóttir/Ásta M. Urbancic, Dímon/KR

2.          Auður Tinna Aðalbjarnardóttir/Aldís Rún Lárusdóttir, KR

3.-4.     Þórunn Ásta Árnadóttir/Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur

3.-4.     Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir/Sveina Rósa Sigurðardóttir, KR

Ásta og Bergrún sigruðu Auði og Aldísi 3-2 í spennandi úrslitaleik (11-5, 10-12, 12-10, 6-11, 11-8). Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Bergrúnar í meistaraflokki en fimmti titill Ástu í tvíliðaleik. Hún sigraði fyrst í tvíliðaleik fyrir 40 árum síðan, árið 1977, og síðast fyrir 25 árum.

Verðlaunahafar í tvíliðaleik karla.

Tvíliðaleikur karla

1.           Kári Ármannsson/Kári Mímisson, KR

2.          Daði Freyr Guðmundsson/Magnús K. Magnússon, Víkingur

3.-4.     Birgir Ívarsson/Magnús Gauti Úlfarsson, BH

3.-4.     Magnús Jóhann Hjartarson/Sindri Þór Sigurðsson, Víkingur

Nafnarnir Kári og Kári unnu Daða og Magnús, Íslandsmeistarana frá 2015 í æsispennandi úrslitaleik 3-2 (11-8, 11-13, 6-11, 11-9, 11-8). Þetta var fyrsti titill beggja Káranna í einstaklingskeppni í meistaraflokki.

Verðlaunahafar í tvenndarleik. Guðrúnu G Björnsdóttur vantar á myndina.

Tvenndarleikur

1.          Davíð Jónsson/Aldís Rún Lárusdóttir, KR

2.          Daði Freyr Guðmundsson/Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir, Vikingur/HK

3.-4.     Skúli Gunnarsson/Guðrún G Björnsdóttir, KR

3.-4.     Kári Mímisson/Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR

Davíð og Aldís endurheimtu titilinn sem þau unnu árið 2015. Þau sigruðu Daða og Kolfinnu 3-1 (8-11, 11-7, 11-9, 11-9) í úrslitaleiknum.

Verðlaunahafar í 1. flokki kvenna.

1. flokkur kvenna

1.          Auður Tinna Aðalbjarnardóttir,  KR

2.          Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon

3.-4.    Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingur

3.-4.     Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur

Auður Tinna sýndi góðan leik í úrslitaleiknum og sigraði Bergrúnu, sem var stigahæsti leikmaðurinn í flokknum í þremur jöfnum lotum 16-14, 11-9, 11-9.

Verðlaunahafar í 1. flokki karla.

1. flokkur karla

1.          Tómas Ingi Shelton, BH

2.          Ísak Indriði Unnarsson, Víkingur

3.-4.     Jóhannes Kári Yngvason, KR

3.-4.     Ellert Kristján Georgsson, KR

Tómas lagði Ísak 3-1 í úrslitaleiknum (9-11, 11-5, 11-5, 11-8) og vann sinn fyrsta titil í 1. flokki. Jóhannes Kári Yngvason, sem varð í 3.-4. sæti er enn í 2. flokki og lagði tvo 1. flokks leikmenn á leið sinni í undanúrslit.

Verðlaunahafar í 2. flokki kvenna.

2. flokkur kvenna

1.          Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR

2.          Karitas Ármannsdóttir, KR

3.-4.     Sól Kristínardóttir Mixa, BH

3.-4.     Áslaug Hrönn Reynisdóttir, ÍFR

Kristín var þriðja stigahæst í flokknum, og þurfti að slá út tvo stigahæstu leikmennina, sem báðar hafa leikið í 1. flokki, til að vinna titilinn. Hún vann Karitas 3-1 (11-8, 11-13, 11-7, 15-13) í úrslitaleiknum.

Verðlaunahafar í 2. flokki karla. Guðmund Ragnar Guðmundsson vantar á myndina.

2. flokkur karla

1.          Karl Andersson Claesson, KR

2.          Ingi Brjánsson, KR

3.-4.     Guðmundur Ragnar Guðmundsson,  Víkingur

3.-4.     Kamil Mocek, Víkingur

Karl sigraði Guðmund Ragnar, Íslandsmeistarann frá fyrra ári 3-2 í undanúrslitum í hörkuleik. Hann lagði svo Inga, félaga sinn úr KR 3-1 (13-11, 14-12, 6-11, 11-7) í úrslitaleiknum.

 

Öll úrslit eru aðgengileg á vef Tournament Software, http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=4B59C544-0CE6-401D-8895-00A03039CBFC

Myndir frá Finni Hrafni Jónssyni.

 

ÁMU (uppfært 6.3.)

Aðrar fréttir