Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Nýr A-landsliðshópur valinn

Nýr landsliðsþjálfari, Aleksey Yefremov, verður á landinu 22.-26. nóvember. Hann mun halda sínar fyrstu æfingar 22.-25. nóvember. Þá mun hann fylgjast með leikmönnum í Raflandsdeildinni laugardaginn 24. nóvember og meta þá sem hann sér þar en hann hefur úrslitavald um hverjir verða í hópunum. Honum hefur verið sagt frá þeim leikmönnum sem nú eru erlendis að æfa.

Valinn hefur verið landsliðshópur sex karla og sex kvenna til æfinga hér á landi og eru eftirtaldir leikmenn í hópnum:

Karlar

Birgir Ívarsson, BH
Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, BH
Magnús Gauti Úlfarsson, BH
Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingi
Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, BH

Konur

Agnes Brynjarsdóttir, Víkingi
Aldís Rún Lárusdóttir, KR
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR
Ársól Arnardóttir, KR
Nevena Tasic, Víkingi
Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi

Agnes og Nevena eru nýliðar í hópnum en aðrir leikmenn hafa áður leikið landsleiki í flokki fullorðinna.

Æfingar hópsins:

Fimmtudagur 22. nóvember

17:30-19:30: Æfing í BH konur

19:30-21:30: Æfing í BH karlar

Föstudagur 23. nóvember

17:30-19:30 Æfing í Víkingi karlar og konur

Laugardagur 24. nóvember

Raflandsdeild karla og kvenna – Aleksey verður á staðnum

Sunnudagur 25. nóvember

09:00-11:00 Æfing í Víkingi – karlar og konur

16:00-18:00 Æfing í Víkingi – karlar og konur

Forsíðumyndin af nýliðunum Nevenu og Agnesi frá Grand Prix móti HK.

 

ÁMU

Aðrar fréttir