Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Pepsi Grand Prix mót Víkings verður haldið 8. desember

Grand Prix mót Pepsi fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 8. desember í umsjá Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt verður í opnum flokkum karla og kvenna.  Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar.

Leikið verður einnig í B – keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í opnum flokki karla og kvenna.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000.

Yfirdómari:  Árni Siemsen

Mótstjóri:  Pétur Ó. Stephensen

 

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Laugardagur 8. des:

kl. 12:00  Opinn flokkur karla

kl. 12:30  Opinn flokkur kvenna

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 6. desember klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected].

Bréf um mótið: Grand prix Pepsi 8. des 2018

 

ÁMU

Aðrar fréttir