Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Punktamót Dímonar sumardaginn fyrsta

Punktamót Dímonar á sumardaginn fyrsta 2014
Punktamót Dímonar verður haldið á sumardaginn fyrsta, 24. apríl 2014 í 
Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Keppt verður í 2. flokki karla og kvenna. 
Mótið hefst kl. 11.00
Skráningargjald er kr. 500,- á þátttakanda 
2. flokkur karla Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:00

2. flokkur kvenna Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:00
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 23. apríl kl. 22:00 
og skal skráningum skilað til [email protected]
Leikið verður með hvítum STIGA*** kúlum á STIGA ELITE borðum.
Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast 
áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. 
Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.
Yfirdómari verður. Ólafur Elí Magnússon / Sigurjón Sváfnisson
Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Keppni hefst kl. 11:00 að staðartíma á Hvolsvelli.
Dregið verður í riðla kl 08:30 að morgni keppnisdags á skrifstofu 
Dímonar í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli.
Verðlaunaafhending verður strax að loknu móti.
Mótstjóri verður Ásta Laufey Sigurðardóttir.

Aðrar fréttir