Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Reykjavíkurleikar í borðtennis 2018 – Reykjavík International Games 2018. Úrslit

Sigurvegarar mótsins Avi Rodgaard og Ivik Nielsen

Glæsilegu og vel heppnuðu borðtennismóti lokið

Borðtennismót Reykjavíkurleikana 2018  fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 27. janúar 2018 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem allt besta borðtennisfólk landsins lék ásamt gestum frá Svíþjóð, Grænlandi, og Póllandi.

Í karlaflokki lék í undanúrslitum Ivik Nielsen frá Grænlandi gegn Magnúsi Gauta Úlafarssyni BH.  Leikar fóru þannig að Ivik Nielsen sigraði 4 – 1 í góðum leik (11-3, 8-11,13-11,11-5 og 11-9).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús Hjartarson Víkingi gegn Magnúsi K. Magnússini Víkingi.  Leikar fóru þannig að Magnús Hjartarson sigraði eftir mjög spennandi hörkuleik 4 – 3 (11-7, 12-10, 3-11, 11-5, 13-15,

5-11 og 11-7).

Úrslitaleikinn léku því Grænlendingurinn Ivik Nielsen gegn Magnúsi Hjartarsyni Víkingi.  Leikurinn var skemmtilegur og góður þar sem Grænlendingurinn Ivik Nielsen sigraði eftir skemmtilegan leik 4 – 1 (11,3, 8-11, 13-11, 11-5 og 11-9).

 

Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Avi Rodgaard Grænlandi gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR.  Avi sigraði eftir mjög góðan og spennandi leik 4-3 (11-8, 5-11, 11-5, 8-11, 13-11, 5-11 og 11-6).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Kolfinna Bjarnadóttir HK gegn Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur KR.  Kolfinna

sigraði  örugglega 4 – 0 (11-9, 11-4, 11-9, 11-8).

Úrslitaleikinn léku því Avi Rodgaard frá Grænlandi  gegn Kolfinnu Bjarnadóttur HK.  Leikar fóru þannig að Avi Rodgaard sigraði nokkuð örugglega  4 – 0 (11-9, 11-9, 11-6 og 11-6).

 

Úrslitin í mótinu voru þannig:

Einliðaleikur karla:

  1. Ivik Nielsen Grænlandi
  2. Magnús Hjartarson Víkingur

3-4.  Magnús Gauti Úlfarsson BH

3-4.  Magnús Kristinn Magnússon Víkingur

 

Einliðaleikur kvenna:

  1. Avi Rodgaard Grænlandi
  2. Kolfinna Bjarnadóttir HK

3-4.  Aldís Rún Lárusdóttir KR

3-4.  Auður Tinna Aðalbjarnardóttir KR

Aðrar fréttir