Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Staðan í aldursflokkamótaröðinni

Staðan í aldursflokkamótaröðinni í jöfn og spennandi í flestum flokkum mótaraðarinnar fyrir síðasta mótið í mótaröðinni, sem fer fram í TBR-húsinu sunnudaginn 9. febrúar.

Í flestum flokkum eiga fleiri en einn keppandi möguleika á að vera stigahæstur að loknu lokamótinu. Það er aðeins í drengjaflokki (16-18 ára) sem sigurvegari í mótaröðinni liggur fyrir en þar hefur Þorbergur Freyr Pálmarsson úr BH tryggt sér sigur.

Efstu keppendur í sínum aldursflokki:

  • Tátur 11 ára og yngri: Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR, 16 stig
  • Hnokkar 11 ára og yngri: Jökull Ernir Steinarsson, Garpi og Tómas Hinrik Holloway, KR, 12 stig
  • Telpur 12-13 ára: Helga Dögg Ólafsdóttir, Dímon, Lisbeth Viðja Hjartardóttir, Garpur og Magnea Ósk Hafsteinsdóttir, Dímon 8 stig
  • Piltar 12-13 ára: Alexander Chavdarov Ivanov, BH, 16 stig
  • Meyjar 14-15 ára: Guðrún Margrét Sveinsdóttir, Dímon, 12 stig
  • Sveinar 14-15 ára: Kristófer Júlían Björnsson, BH, 12 stig
  • Stúlkur 16-18 ára: Sandra Dís Guðmundsdóttir, BH, 10 stig
  • Drengir 16-18 ára: Þorbergur Freyr Pálmarsson, BH, 18 stig

Skjal með stöðunni:

Aðrar fréttir