Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Staðan í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum að loknum þremur mótum

Í meðfylgjandi skjölum má sjá stöðuna að loknum þremur mótum í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum.

Í Grand Prix mótaröðinni er Magnús Gauti Úlfarsson, BH  efstur í karlaflokki með 10 stig. Davíð Jónsson, KR, Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingi og Sindri Þór Sigurðsson, Víkingi hafa 8 stig.

Í kvennaflokki er Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi efst með 10 stig. Aldís Rún Lárusdóttir, KR, Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR og Guðrún Gestsdóttir, KR koma næst með 8 stig.

Í Aldursflokkamótaröðinni hafa tveir keppendur unnið öll mótin í sínum flokki. Það eru Ársól Clara Arnardóttir, KR í stúlknaflokki og Eiríkur Logi Gunnarsson, KR í piltaflokki. Aðrir leikmenn sem eru efstir í sínum flokki eru: Alexander Ivanov, BH í hnokkaflokki; Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR í tátuflokki; Agnes Brynjarsdóttir, Víkingi í telpnaflokki; Matiss Meckl, Akri og Thor Thors, KR í sveinaflokki; Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR í meyjaflokki og Magnús Gauti Úlfarsson, BH í drengjaflokki.

Staðan í Grand Prix mótaröðinni: Grand prix mótaröðin 2017-18

Staðan í Aldursflokkamótaröðinni: Aldursflokkamótaröðin 2017-18

Mynd af Stellu á forsíðu frá Íslandsmóti unglinga vorið 2017.

 

ÁMU

Aðrar fréttir