Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. apríl hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2020 (kallaður eftir viku 14) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hefur flokkakeppni unglinga 7. mars verið lesin inn í styrkleikalistann.

Leikir á Íslandsmótinu 28. febrúar – 1. mars voru keyrðir aftur inn í styrkleikalistann eftir að mótið hafði verið tímasett. Af þeirri ástæðu gæti stigagjöf fyrir mótið hafa breyst lítillega frá síðustu uppfærslu.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Forsíðumynd af aldursflokkamóti BH í janúar 2020.

Aðrar fréttir