Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. júní hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2019 (kallaður eftir viku 22) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa leikir á héraðsmóti HSK 4. maí og innbyrðis leikir Íslendinga á Arctic mótinu 17.-19. maí verið lesnir inn í styrkleikalistann.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Á forsíðunni má sjá einbeittan Samherjapilt á Íslandsmóti unglinga.

Aðrar fréttir