Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2019 (kallaður eftir viku 15) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Íslandsmótið 2.-3. mars, aldursflokkamót Samherja 9. mars, flokkakeppni unglinga 16.-17. mars og Íslandsmót unglinga 30.-31. mars verið lesinn inn í styrkleikalistann. Einnig voru lagfærðir nokkrir leikir frá Grand Prix móti BH í febrúar, sem höfðu verið taldir með á listanum en höfðu ekki verið leiknir þar sem annar leikmaðurinn mætti ekki til leiks.

Við uppfærslu á þessum lista gerðist það helst markvert að Ársól Clara Arnardóttir, KR fór upp í meistaraflokk í fyrsta skipti. Þá fór Eiríkur Logi Gunnarsson KR, upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

ÁMU

Aðrar fréttir