Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2015 hefur verið settur á vefinn

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2015 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar. 

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Víkingsmótið 10. janúar, Grand Prix mót KR 18. janúar, leikir í Norðurlandsdeildinni og leikir í 1. deild karla, 1. deild kvenna og 2. deild karla verið sett inn í listann, alls 228 leikir.

Meðal þess sem gerðist við þessa uppfærslu var að Hlynur Sverrisson úr Akri og Guðrún Gestsdóttir úr KR fluttust upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Sjá nánar: Rating 1.2.2015 

Aðrar fréttir