Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2020 (kallaður eftir viku 5) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Hafnarfjörður Open 11. janúar, aldursflokkamót BH 12. janúar og leikir í deildakeppninni 18.-19. janúar verið lesin inn í styrkleikalistann.

Það sem gerðist m.a. markvert við þessa uppfærslu er að Birgir Ívarsson úr BH stökk upp í 6. sæti en hann var í 14. sæti á síðasta lista. Birgir vann alla leiki sína í janúar.

Tómas Róbertsson Larsen, KR, kemur aftur inn á listann með sín gömlu styrkleikastig.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Forsíðumynd af Birgi úr myndasafni BTÍ.

Aðrar fréttir