Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2016 (viku 4) hafa verið birt á vef BTÍ, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. janúar var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:

  • Héraðsmót HSK 13. nóvember
  • Unglingamót KR 9. janúar
  • Grand Prix mót KR 10. janúar
  • Leikir í 1. og 2. deild
  • Einnig hefur vægi leikja í liðakeppni unglinga á Kjartansmótinu 21. nóvember verið leiðrétt.

Við þessa uppfærslu gerðist það helst markvert að Stella Karen Kristjánsdóttir úr Víkingi fluttist upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Eftir á að sía frá flesta óvirka leikmenn nema stigahæstu óvirku karlana en það verður gert á næstunni, og þá munu flestir virkir leikmenn hækka í sæti á listanum. Þegar búið er að taka frá óvirka leikmenn verður birtur listi yfir óvirka leikmenn á vef BTÍ, svo hægt sé að fletta upp þeirra stigum ef þeir snúa aftur til keppni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU

Aðrar fréttir