Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. maí hefur verið settur á vefinn

Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2017 (nefndur eftir viku 18) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. apríl var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:

  • Úrslitakeppni í 1. deild karla
  • Leikir í 2. deild, sem fram fóru í apríl (þó vantar eina leikskýrslu frá leik Víkings-C og Dímonar/Heklu)
  • Stigamót Dímonar 20.4.
  • Bikarkeppni BTÍ 22.4.
  • Lokamót aldursflokkamótaraðar BTÍ 23.4.
  • Lokamót Grand Prix mótaraðarinnar 23.4.

Styrkleikalistinn fyrir 1. maí verður keyrður upp aftur þegar leikskýrsla úr leik Víkings-C og Dímonar/Heklu, sem fram fór í lok apríl, hefur borist.

Meðal þess sem helst hefur gerst markvert frá síðustu uppfærslu má nefna að Sól Kristínardóttir Mixa, BH hefur unnið sig upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Enn á eftir að ljúka vinnu við að fjarlægja konur, sem ekki hafa leikið síðan 2012 af listanum. Henni verður haldið áfram á næstunni. Upphaf árs 2013 var valið sem viðmið, þar sem það er viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ 2016.

Til að finna stig leikmanna, sem léku árið 2012 eða fyrr en ekki eru virkir lengur, þarf að fletta þeim upp í Excel skjalinu Styrkleikalisti 1. nóv.2015, sem er að finna í hægri dálkinum á síðunni, undir Nýtt á bordtennis.is.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Forsíðumynd af Sól og Alexíu Kristínardætrum Mixa frá Íslandsmóti unglinga.

 

ÁMU

Aðrar fréttir