Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. mars hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2018  (kallaður eftir viku 10) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur, hafa Grand Prix mót KR og Keldunnar 3. febrúar, aldursflokkamót KR 4. febrúar, flokkakeppni unglinga 10.-11. febrúar, bikarkeppni BTÍ 24. febrúar, sem og keppni í Raflandsdeildinni og í 2. deild verið lesin inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu gerðist það helst markvert að Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR, komst upp í meistaraflokk í fyrsta skipti. Þá komst Daði Freyr Guðmundsson, Víkingi, upp í efsta sæti karlalistans í stað Magnúsar K. Magnússonar, sem tapaði tveimur leikjum í febrúar. Gestur Gunnarsson, KR, fékk 81 stig fyrir að vinna Arnór Gauta Helgason úr Víkingi á Grand Prix móti KR í byrjun febrúar, en það er með því mesta sem hægt er að vinna í einum leik.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Mynd af Auði Tinnu og Þórunni Ástu Árnadóttur frá RIG 2017.

 

Aðrar fréttir