Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2015

Styrkleikalistinn fyrir 1. nóvember 2015 fylgir í viðhengi. Einnig fylgir með logskrá (Rating 1.11.2015), þar sem sjá má hversu mörg stig unnust og töpuðust í hverjum leik.

Frá því að listinn var uppfærður síðast, þann 1. október 2015, hafa 346 leikir verið lesnir inn í listann á þessum mótum:

  • Boot Camp mót Víkings 3. október
  • Aldursflokkamót Dímonar á fyrsta vetrardag, 24. október
  • Pepsi Grand Prix mót Víkings 31. október
  • Leikir í 1. deildum karla og kvenna og 2. deild.

Leikmennirnir Shahbaz og Shiraz, sem tóku þátt í Boot Camp móti Víkings voru ekki lesnir inn á listann, þar sem ekki hafði borist kennitala fyrir þá. Stjórn BTÍ ákveðið fyrir nokkrum árum að eingöngu þeir erlendu leikmenn yrðu lesnir inn í listann sem hefðu íslenska kennitölu.

Verið er að smíða nýtt forrit fyrir styrkleikalista en þar sem það er ekki tilbúið var listinn keyrður upp á gamla mátann.

Nú eru í fyrsta skipti birtar kennitölur á styrkleikalistanum, enda verður nýi styrkleikalistinn byggður á kennitölum. Vinsamlegast farið yfir ykkar kennitölu og látið vita ef hún er ekki rétt. Einnig væri gott að fá kennitölur þeirra leikmanna sem vantar kennitölu.

Enginn var fluttur yfir á lista óvirkra leikmanna leikmanna í sumar, eins og gert hefur verið undanfarin ár, þar sem nýja styrkleikalistaforritið mun ekki greina á milli virkra og óvirkra leikmanna.

Logskráin: Rating 1.11.2015

Styrkleikalistinn í Excel skjali: Styrkleikalisti 1.11.2015

Skjal um útreikning stiga á styrkleikalista: um_styrkleikalista_bti

 

ÁMU (uppfært 28.11.)

Aðrar fréttir