Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2018 hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2018 (kallaður eftir viku 44) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa tvær umferðir í deildakeppni BTÍ, sem leiknar voru 13 og 20. október og Opna Hafnarfjarðarmótið þann 27. október verið lesin inn í styrkleikalistann.

Við uppfærslu á þessum lista gerðist það markvert að Magnús Gauti Úlfarsson í BH tyllti sér á topp karlalistans við hlið Magnúsar K. Magnússonar en þeir hafa nú jafnmörg stig á listanum. Harriet Cardew, BH, fór upp í 1. flokk kvenna í fyrsta skipti.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Á forsíðumyndinni má sjá Magnús Gauta Úlfarsson leika á EM unglinga í sumar.

 

ÁMU

Aðrar fréttir