Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2016 hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2016 (nefndur eftir viku 40) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. júní var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:

  • Aldursflokkamót KR, 24. september
  • Styrkleikamót KR, 25. september

Frá því að síðasti listi var birtur hafa karlar, sem ekki hafa leikið síðan árið 2012, verið fjarlægðir af listanum. Byrjað er að fjarlægja konur, sem ekki hafa leikið síðan 2012, en þeirri vinnu er ekki lokið. Henni verður haldið áfram á næstunni. Upphaf árs 2013 var valið sem viðmið, þar sem það er viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ 2016.

Til að finna stig leikmanna, sem léku árið 2012 eða fyrr en ekki eru virkir lengur, þarf að fletta þeim upp í Excel skjalinu Styrkleikalisti 1. nóv.2015, sem er að finna í hægri dálkinum á síðunni, undir Nýtt á bordtennis.is.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU

Aðrar fréttir