Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2017  hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2017  (kallaður eftir viku 40) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur, hafa leikir á fyrsta leikdegi í 2. deild karla, 30. september, verið lesnir inn á styrkleikalistann.

Búið er að fjarlægja konur, sem ekki hafa leikið síðan 2012 af listanum og hafa því flestar borðtenniskonur færst upp á listanum miðað við styrkleikalistann 1. júní 2017. Upphaf árs 2013 var valið sem viðmið, þar sem það er viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ 2016.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU

Aðrar fréttir