Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. október birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2020 (kallaður eftir viku 40) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu var listinn keyrður upp aftur frá 1. mars, þar sem leiki í norðurriðli 2. deildar, sem fram fóru í mars að mestu, vantaði í listann.

Einnig hefur úrslitakeppnin í 1. og 2. deild 19.-20. september verið lesin inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu hoppaði Íslandsmeistarinn Ingi Darvis Rodriguez upp í 2. sæti á karlalistanum.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Aðrar fréttir