Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalistinn uppfærður til bráðabirgða

Styrkleikalisti fyrir 15. janúar 2019 (kallaður eftir viku 4) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Þessi listi er uppfærður til bráðabirgða, en þar sem Borðtennisdeild Víkings hefur enn ekki skilað úrslitum úr styrkleikamóti sínu þann 19. janúar inn í Tournament Software tölvukerfið, er enn ekki hægt að keyra upp styrkleikalistann fyrir 1. febrúar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa 7. og 8. umferð í deildakeppni BTÍ, sem voru leiknar 12.-13. janúar verið lesnar inn í styrkleikalistann.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Á forsíðumyndinni má sjá Sindra Þór Sigurðsson, leikmann úr Víkingi.

ÁMU

Aðrar fréttir