Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikamót Dímonar á sumardaginn fyrsta

Punktamót Dímonar verður haldið á sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2019 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli.

Keppt verður í 2. flokki karla og kvenna.

Mótið hefst kl. 11.00 og er skráningargjald kr. 1.000,- á þátttakanda.

• 2.flokkur karla: Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20.

• 2.flokkur kvenna: Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20.

Síðasti skráningardagur er þriðjudaginn 23. apríl kl. 20:00 og skal skráningum skilað á netfangið [email protected].

Leikið verður með hvítum STIGA*** kúlum á STIGA ELITE borðum. Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.

Yfirdómari verður. Ólafur Elí Magnússon.

Mótstjórn: Magnús Ágústsson, Guðmann Ó. Magnússon, Ragnhildur Á Guðmundsdóttir.

Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Bréf um mótið:

ÁMU

Aðrar fréttir