Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Unglingamót KR 9. janúar 2016

Borðtennisdeild KR heldur 3. mótið í unglingamótaröð BTÍ laugardaginn 9. janúar í Íþróttahúsi Hagaskóla.

Aldursflokkar

  1. 11:00 Einliðaleikur hnokka f. 2005 og síðar
  2. 14:30 Einliðaleikur táta f. 2005 og síðar
  3. 11:00 Einliðaleikur pilta f. 2003-2004
  4. 14:30 Einliðaleikur telpna f. 2003-2004
  5. 12:30 Einliðaleikur sveina f. 2001-2002
  6. 14:30 Einliðaleikur meyja f. 2001-2002
  7. 14:00 Einliðaleikur drengja f. 1998-2000
  8. 14:30 Einliðaleikur stúlkna f. 1998-2000

Hver unglingur má aðeins leika í einum aldursflokki.

Fyrirkomulag keppni

Keppt er í riðlum og spilað er með útslætti upp úr riðlinum. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Leikið verður á Stiga expert borðum með hvítum Tibhar 3ja stjörnu kúlum.

Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld: 800 krónur á mann. Ef þátttökugjald er greitt í síðasta lagi 7.1. kl. 18 er veittur afsláttur og er þátttökugjaldið þá 600 krónur. Gjaldið greiðist inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected] og sett inn kennitala leikmanns, sem greitt er fyrir.

Skráning fer fram með tölvupósti til mótsstjórnar fyrir kl. 18 fimmtudaginn 7. janúar. Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ!

Dregið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudagskvöldið 7. janúar klukkan 20:00. Eftir að dregið hefur verið í mótið verður ekki bætt við keppendum, nema að um sannanleg mistök mótsstjórnar sé að ræða.

Mótstjórn:

Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]

Guðrún G Björnsdóttir, gsm. 695 2636, [email protected]

Hannes Guðrúnarson, gsm. 874 6964, [email protected]

Yfirdómari: Hannes Guðrúnarson.

 

Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR

Ásta M. Urbancic

Uppfært bréf um mótið: Unglingamót KR 9.1.2016 uppfært

 

ÁMU (uppfært 27.12. og 29.12.)

Aðrar fréttir